Volkswagen seldi 11 milljón bíla með svindlkerfi

Dagar stjórn­enda Volkswagen-bíla­fram­leið­ands virð­ast vera taldir eftir að þessi næst stærsti bíla­fram­leið­andi heims við­ur­kenndi að hafa fram­leitt 11 milljón bíla og selt um allan heim með kerfi sem var ætlað að svindla á útblást­urs­próf­unum.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, er meðal þeirra þjóð­ar­leið­toga sem hafa tjáð sig um málið. „Ég vona að allar stað­reyndir máls­ins verði uppi á borðum eins fljótt og auðið er,“ sagði hún og bætti við að umferð­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands væri í beinum sam­skiptum við fyr­ir­tækið.

Volkswagen hefur neitað því að Martin Winterkorn, þýskur for­stjóri Volkswagen, verði lát­inn fara og að Matthias Müller, for­maður stjórnar syst­ur­fé­lags­ins Porche taki við. Dag­blaðið Tagesspi­egel hafði eftir ónafn­greindum heim­ildum úr stjórn fyr­ir­tæk­is­ins að Winterkorn verði lát­inn fara.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur Hekla, umboðs­að­ili Volkswagen á Íslandi, ekki fengið upp­lýs­ingar um málið og getur ekki stað­fest hvort bílar með þessum bún­aði hafi verið seldir hér á landi.

Winterkorn sendi frá sér yfir­lýs­ingu síð­degis í dag þar sem hann sagð­ist sjálfur enn vera að viða að sér upp­lýs­ingum um málið. „Misferli hjá Volkswagen má aldrei ger­ast aftur,“ sagði hann og ítrek­aði að rann­sókn­ar­ferlið verði opið og gagn­rýnið.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Martin Winterkorn ásamt Matthias Müller. (Mynd: EPA)[/caption]

Hluta­bréfa­verð í Volkswagen hefur hrunið síðan málið kom upp um helg­ina og segj­ast stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins nú hugs­an­lega þurfa að skuld­setja fyr­ir­tækið í fyrsta sinn, eftir að hafa sett 6,5 millj­arða evra til hliðar til þess að borga hugs­an­legar skaða­bætur og kostnað vegna svindls­ins.

Virði fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aði hefur fallið um þriðj­ung, eða því sem nemur 25 millj­örðum evra síð­ustu tvo daga. Hluta­bréfa­verð í öðrum evr­ópskum bíla­fram­leið­endum hefur einnig hrunið. Hið franska Peugeot hefur fallið um sjö pró­sent, BMW um fimm pró­sent og Daimler (eig­andi Mercedes-Benz) hefur fallið um 5 pró­sent.

Kjarninn sagði frá því á sunnu­dag að Volkswagen hefði verið gert að end­ur­kalla 482 þús­und bíla í Banda­ríkj­unum vegna þess að hug­bún­að­ar­galli í bíl­unum gerðu það að verkum að þeir meng­uðu mun meira en þeir máttu gera sam­kvæmt banda­rískri lög­gjöf. Jafn­framt hefur Volkswagen verið sektað um 37.500 dali fyrir hvern bíl sem mælist ólög­legur.

Winterkorn sendi frá sér yfir­lýs­ingu á sunnu­dag, og las hana upp tár­votur á blaða­manna­fundi. „Afsakið“ sagði hann, og horfði síðan út í sal. Hann sagði við­skipta­vini og birgja fyr­ir­tæk­is­ins eiga skilið að fá afsök­un­ar­beiðni vegna þessa „galla“ sem fund­ist hefði í hug­bún­aði í bílum fyr­ir­tæk­is­ins. Sá bún­aður stýrir afl­stýr­ingu í vél­inni, og reynd­ist ýta undir alltof mikla losun á nítrógen oxíði, eða um fjör­tíu­falt meiri losun en leyfi­legt er.

Auk þess eru uppi ásak­anir um að fyr­ir­tækið hafa vís­vit­andi svindlað á próf­unum banda­rískra yfir­valda, en engar ákærur hafa verið gefnar út ennþá. Samkvæmt umfjöllun Quartz og BBC er ekki úti­lokað að það verði gert og eru það þá æðstu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins sem þurfa að bera ábyrgð. Winterkorn fékk spurn­ingar frá blaða­mönn­unum á fund­inum, um hugs­an­legt glæp­sam­legt athæfi, en neit­aði að tjá sig um þær.

Volkswagen er álitið varða í þýskum iðn­aði. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 1937 til þess að fram­leiða ódýra fjöl­skyldu­bíla fyrir þjóð­ina. Meira en hálf milljón manns starfar hjá fyr­ir­tæk­inu um allan heim og það stjórnar fjölda vöru­merkja auk Volkswagen eins og Audi, Bentley, Seat og Lamborg­hini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár