Volkswagen tapar jafnvirði 500 milljarða króna í kjölfar útblásturshneykslisins

Þýski bíla­fram­leið­and­inn skil­aði rekstr­ar­tapi í fyrsta sinn í yfir 15 ár.

Þýski bíla­fram­leið­and­inn Volkswagen, sem nýlega varð upp­vís að meiri­háttar svindli á útblást­urs­próf­unum, skil­aði 3,48 millj­arða evra tapi á þriðja árs­fjórð­ungi 2015. Upphæðin er jafn­virði tæp­lega 500 millj­arða króna. Til sam­an­burðar nam heild­ar­verð­mæti alls vöru­út­flutn­ings Íslands á árinu 2014 um 590 millj­örðum króna.

Þetta er í fyrsta sinn í meira en 15 ár sem bíla­fram­leið­and­inn skilar rekstr­ar­tapi. Uppgjör félags­ins var birt í dag.

Hluta­bréf í Volkswagen hækk­uðu um meira en þrjú pró­sent við birt­ingu upp­gjörs­ins. Það getur bent til þess að fjár­festar hafi verið reiðu­búnir enn verra upp­gjöri, auk þess sem sala á bílum jókst milli ára um 5,3 pró­sent.

Mark­aðsvirði félags­ins hefur lækkað um 21 millj­arða evra frá því að upp komst um svind­lið í sept­em­ber síð­ast­liðnum, að því er greint er frá í umfjöllun Bloomberg um upp­gjörið. Samkvæmt árs­hluta­reikn­ingnum þá hefur kostn­aður vegna hneyk­l­is­ins verið um 6,7 millj­arðar evra til þessa, sem er meira en þeir 6,5 millj­arðar evra sem félagið lagði til hliðar til að mæta mögu­legum kostn­aði. Sér­fræð­ingar telja að heild­ar­kostn­aður muni á end­anum nema um 20 millj­örðum evra, til­komin vegna lög­sókna, sekta og lag­fær­inga á um ell­efu milljón öku­tækjum Volkswagen.

Þann 18. sept­em­ber komst upp um meiri­háttar svindl Volkswagen á útblást­urs­próf­unum með ólög­legum hug­bún­aði. Yfirvöld í bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum hófu þegar rann­sókn á mál­inu. Hér má lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um hvað Volkswagen gerði rangt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár