Volkswagen skandallinn: Rannsókn hafin á forstjóranum

Sak­sókn­arar í Þýska­landi hafa hafið rann­sókn á Martin Winterkorn, frá­far­andi for­stjóra bíla­fram­leið­and­ans Volkswagen, í tengslum við útblást­urs­hneyksli sem fyr­ir­tækið hefur verið staðið að. Rann­sóknin á Winterkorn snýr að sölu­svikum, þar sem hann hafi vís­vit­andi leyft sölu bíla með hug­bún­aði sem fals­aði útblást­urs­tölur. Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum og í Suður-Kóreu hafa einnig sagst ætla að rann­saka málið, auk þess sem hóp­mál­sókn er í und­ir­bún­ingi af hálfu við­skipta­vina.

Winterkorn sagði af sér vegna máls­ins á mið­viku­dag í síð­ustu viku eftir níu ára setu á for­stjóra­stóli og á föstu­dag var til­kynnt að Matthias Müller yrði nýr for­stjóri, en hann hefur und­an­farið verið for­stjóri Porsche, dótt­ur­fyr­ir­tækis Volkswagen.

Ráð­gjafa­hópur hlut­hafa í Volkswagen kall­aði eftir því í dag að ráð­ist yrði í alls­herj­ar­breyt­ingar á stjórn­ar­háttum fyr­ir­tæk­is­ins. Ráðn­ingin á Müller hefur verið gagn­rýnd, enda sé hann inn­an­búð­ar­maður hjá fyr­ir­tæk­inu og með ráðn­ingu hans hafi glat­ast tæki­færi til nýs upp­hafs hjá fyr­ir­tæk­inu.

Í morgun við­ur­kenndi Audi, sem er líka dótt­ur­fyr­ir­tæki Volkswagen, að 2,1 milljón Audi-bíla hefðu einnig verið búnir þessum hug­bún­aði. Um 1,4 millj­ónir bíla eru í Vestur-Evrópu, þar af tæp­lega 600 þús­und í Þýska­landi, og um 13 þús­und bílar eru í Banda­ríkj­unum. Meðal þeirra bíl­teg­unda sem hafa hug­bún­að­inn eru A1, A3, A4, A5, A6, TT, Q3 og Q5 bíl­arnir.

Tvö þýsk dag­blöð greindu frá því um helg­ina að starfs­fólk og einn birgi fyr­ir­tæk­is­ins hefðu varað við því fyrir mörgum árum síðan að verið væri að nota hug­bún­að­inn, sem greindi þegar verið var að útblást­urs­prófa bíla.

Hluta­bréf í Volkswagen höfðu fallið um fimm pró­sent í kaup­höll­inni í Frank­furt í morgun, til við­bótar við miklar lækk­anir í síð­ustu viku þegar skandall­inn komst upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár