Vilja einfalda lög og reglur um smávirkjanir

Þingmenn Framsóknar­flokksins segja umsóknar­ferli varðandi minni virkjanir fjárfrekt og langt og að smávirkjanir séu umhverfis­vænir orku­gjafar þar sem þær stuðli „að minni útblæstri óæskilegra efna sem hafa áhrif á hitastig jarðar“.

Virkjanir undir 10 MW hafa verið kallaðar smávirkjanir.
Virkj­anir undir 10 MW hafa verið kall­aðar smá­virkj­anir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fimm þingmenn Framsóknar­flokksins hafa lagt fram tillögu tilþingsályktunar um endur­skoðun á laga­umhverfi svokallaðra smávirkjana. Lagt er til að Alþingi feli umhverfis- og auðlinda­ráðherra og atvinnu- og nýsköpunar­ráðherra að endur­skoða lög og reglur um leyfis­veitingar til uppsetningar smávirkjana með það að markmiði að einfalda umsóknar­ferli í tengslum við þær.

Fyrri umræða um tillöguna er á dagskrá þing­fundar í dag.

Hugmyndir að smávirkjunum, eins og virkjanir með uppsett rafafl á bilinu 200 kW og 9,9 MW hafa verið kallaðar, þurfa ekki að fara til meðferðar verkefnis­stjórnar ramma­áætlunar um vernd og orku­nýtingu landsvæða. Þær eru hins vegar tilkynninga­skyldar til Skipulags­stofnunar samkvæmt lögum um mat á umhverfis­áhrifum. Sumar þessara virkjana­hugmynda eru ávallt háðar umhverfis­mati en um aðrar tekur stofnunin ákvörðun um með tilliti umfangs, eðlis og stað­setningar.

Í greinar­gerð með tillögu þing­mannanna segir að reynslan sýni að kröfur leyfisveiteinda hafi þróast í átt að fullu umhverfis­mati. „Ferlið við leyfis­veitingar fyrir smávirkjanir er því kostnaðar­samt, þungt og tímafrekt og ekki í samræmi við framkvæmdir að sama umfangi í öðrum geirum, eins og t.d. í land­búnaði og ferða­þjónustu,“ segir í greinar­gerðinni.

Fram kemur að það geti tekið tvö til þrjú ár að fá leyfi til að byggja litla eða meðal­stóra virkjun. Lána­stofnanir veiti sjaldnast lán fyrr en fyrir­huguð virkjun er komin með öll tilskilin leyfi. Undir­búnings­kostnaður sé því oft mjög stór hindrun fyrir framkvæmda­aðilann. „Dæmi eru um að einstaklingar hafi lagt út í háan kostnað til að afla leyfa fyrir smávirkjanir áður en niður­staða liggur fyrir um hvort leyfi fáist fyrir framkvæmdinni. Bændur sem vilja byggja litla virkjun heima á bænum þurfa því að uppfylla sömu skilyrði og um stór­virkjun væri að ræða með tilheyrandi kostnaði.“

Minnka útblástur efna sem hafa áhrif á hitastig jarðar

Að mati þing­mannanna eru smávirkjanir umhverfis­vænir orku­gjafar þar sem þær stuðli „að minni útblæstri óæskilegra efna sem hafa áhrif á hitastig jarðar“.

Mannvirki og náttúru­rask vegna smávirkjana eru að því er fram kemur í greinar­gerðinni oft að fullu aftur­kræfar framkvæmdir. Ekki sé verið að sökkva stórum landsvæðum undir lón eins og með stór­virkjunum. Þá tengist smávirkjanir raforku­kerfinu um dreifi­veitur landsins og styrki þannig þær flutnings­leiðir og geti einnig styrkt raforku­framleiðslu í einstökum lands­hlutum við uppbyggingu smærri atvinnu­starfsemi.

Halla Signý Kristjáns­dóttir, fyrsti flutnings­maður tillög­unnar, bendir á að horfa mætti til Noregs í þessu sambandi þar sem ein stofnun hafi umsjón með leyfis­veitingum smávirkjana.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, sagði í viðtali við Kjarnann í janúar að ramma­áætlun væri mikilvægt stjórn­tæki við að flokka virkjana­kosti eftir ákveðnum forsendum en að hún væri ekki gallalaus. Benti hann sérstak­lega á hið umtalaða 10 MW viðmið í því sambandi. Sagðist hann vilja endur­skoða það. Stærð virkjunar segði langt frá því alla söguna um umhverfis­áhrif hverrar framkvæmdar fyrir sig.

Virkjunum rétt undir 10 MW, sem þá þurfa ekki að fara í gegnum ferli ramma­áætlunar, hefur fjölgað síðustu ár.

Guðmundur Ingi sagðist ekki sann­færður um að stærðar­viðmið sé heppilegasta leiðin. „Einhver ein tala, um ákveðið mörg megawött, er það endilega rétti mæli­kvarðinn? Ég tel að það séu frekar áhrifin sjálf sem skipti mestu. Við þurfum að skoða það með opnum huga að finna betra fyrir­komulag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár