Hagavatnsvirkjun: Frá stórhugmynd til smávirkjunar

Orku­stofnun end­ur­nýj­aði í fyrra rann­sókn­ar­leyfi Íslenskrar vatns­orku ehf. vegna áforma um 18 MW virkjun við Hagavatn. Í nýrri til­lögu er rætt um 9,9 MW virkjun, rétt undir þeim mörkum sem kalla á með­ferð í ramma­á­ætlun.

Íslensk vatns­orka ehf. áformar að reisa rétt tæp­lega 10 MW virkjun við Hagavatn sunnan Lang­jök­uls. Fram­kvæmdin yrði innan mið­há­lend­is­línu og að hluta í óbyggðu víð­erni. Fyrstu hug­myndir gerðu ráð fyrir stór­virkjun en á síð­ari stigum og er verk­efnið var kynnt fyrir fag­hópum ramma­á­ætl­unar var aflið 20 MW. Í nýrri til­lögu að mats­á­ætlun, sem lögð var fram í lok síð­asta árs, er það svo komið niður í 9,9 MW. Rann­sókn­ar­leyfi, sem Orku­stofnun end­ur­nýj­aði í fyrra, mið­ast hins vegar við 18 MW.

Þó að megawöttin séu færri er umfang fram­kvæmd­ar­innar sjálfrar nokkuð sam­bæri­legt á milli til­lagna. Stíflur eru jafn margar, jafn háar og svipað langar og miðl­un­ar­lónið sem yrði til með stíflun Haga­vatns yrði jafn stórt. Ef upp­sett afl er innan 10 megawatta þarf virkj­un­ar­kostur ekki að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar. Í til­lögu að þriðja áfanga hennar, sem leggja á fram á vor­þingi, er hug­myndin um 20 MW Haga­vatns­virkjun enn í bið­flokki.

Tillaga að mats­á­ætlun er eitt af þeim skrefum sem tekin eru við mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda og end­an­leg áætlun, sem sam­anstendur af til­lögu fram­kvæmda­að­ila og ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar um hana, lýsir því með hvaða hætti leggja skal mat á umhverf­is­á­hrif.

Í athuga­semdum nátt­úru­vernd­ar­sam­taka við til­lögu að mats­á­ætlun Haga­vatns­virkj­unar er það sem þau telja upp­brot fram­kvæmd­ar­innar harð­lega gagn­rýnt og sagt óheim­ilt. Ekki verði betur séð en að um sömu fram­kvæmd og áður sé að ræða.

„Dagljóst er að fram­kvæmd­ar­að­ili reynir með und­an­brögðum að kom­ast hjá því að fara að gild­andi lögum í land­inu,“ segir í umsögn Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Suð­ur­lands. „Heildar umhverf­is­á­hrif fram­kvæmda vegna fyr­ir­hug­aðrar 18 MW Haga­vatns­virkj­unar er það sem metið skal, í einu lagi.“

Í við­tali Morg­un­blaðs­ins í nóv­em­ber í fyrra við Eirík Bragason, fram­kvæmda­stjóra Íslenskrar vatns­orku, kemur fram að um fyrsta áfanga stærri virkj­unar sé að ræða.

Fara bæði Land­vernd og Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Suð­ur­lands fram á að Skipu­lags­stofnun vísi til­lög­unni frá.

Hug­myndir um að hækka vatns­borð Haga­vatns með því að stífla útfall þess, Farið, eru ekki nýjar af nál­inni. Á árum áður var það fyr­ir­hugað sem liður í upp­græðslu­verk­efni vegna sand­foks og „mikið áhuga­mál“ sveit­ar­stjórnar Blá­skóga­byggðar og sveit­ar­stjórnar Bisk­ups­tungna­hrepps þar á undan. Á síð­ari árum kvikn­aði áhugi á að nýta þá fram­kvæmd og vatn Haga­vatns til orku­fram­leiðslu.

Tvö stór hlaup á fyrri hluta 20. aldar

En hver er saga Haga­vatns sem sumir vilja stífla, aðrir virkja og enn aðrir vernda í núver­andi ástandi?

Skrið og hop Lang­jök­uls og skrið­jökla hans, Vestari- og Eystri-Haga­fellsjökla, eru stærstu mót­un­aröflin sem áhrif hafa á Hagavatn. Á fyrstu árum 20. aldar var það um 30 fer­kíló­metrar í stað um 4 km² í dag. Árið 1929 brast jök­ulstífla og mikið hlaup varð í Farinu og Tungufljóti. Við þetta mynd­að­ist Leyni­foss. Tíu árum seinna hljóp Hagavatn aftur, fór í nýjan far­veg, Nýifoss mynd­að­ist og Leyni­foss hvarf. Við þetta lækk­aði vatns­yf­ir­borðið um 10 metra.

Síðan þá hafa land­mót­un­aröfl haldið áfram með hopi og skriði jöklanna.

Hagavatn var mun stærra við upphaf síðustu aldar. Í hlaupi árið 1929 varð Nýifoss í Farinu til.
Hagavatn var mun stærra við upp­haf síð­ustu aldar. Í hlaupi árið 1929 varð Nýifoss í Farinu til.

Gert er ráð fyrir 20 MW Haga­vatns­virkjun í nýlega sam­þykktu aðal­skipu­lagi Blá­skóga­byggðar. „Til að draga úr upp­blæstri í nágrenni Haga­vatns og minnka fok yfir byggð­ina þá er stefnt að því að end­ur­heimta Hagavatn í þeirri mynd sem það var fyrir hlaupið árið 1939,“ segir í grein­ar­gerð. „End­ur­heimt Haga­vatns er for­senda þess að hægt sé að ráð­ast í frek­ari land­græðslu­að­gerðir sunnan þess. Til að auka hag­kvæmni fram­kvæmd­ar­innar er æski­legt að nýta stækkað Hagavatn til raf­orku­fram­leiðslu.“

Land­græðslan hafði hug á því árið 1996 að reisa 15 metra háa stíflu og „sökkva gömlum vatns­botni Haga­vatns undir vatn og stöðva þannig áfok sem talið er ógna gróðri á heiðum uppi af Bisk­ups­tungum og Laug­ar­dal“, eins og sagði í frum­mats­skýrslu. Skipu­lags­stjóri féllst á fram­kvæmd­ina með skil­yrðum en umhverf­is­ráðu­neytið úrskurð­aði hana í frekara umhverf­is­mat því það taldi ekki fyr­ir­liggja rann­sóknir sem styddu þá full­yrð­ingu að sand­fok mætti rekja til upp­þornaðra vatns­botna Haga­vatns frekar en til nær­liggj­andi svæða.

Ekkert varð af þessum fram­kvæmdum.

Kort úr kynningu Orkuveitu Reykjavíkur á virkjun Hagavatns árið 2009.
Kort úr kynn­ingu Orku­veitu Reykja­víkur á virkjun Haga­vatns árið 2009.

Árið 1985 vann Orku­stofnun for­at­hugun að virkjun við Hagavatn og var upp­sett afl mögu­legrar virkj­unar áætlað 30-40 MW. Næstu árin héldu ýmsar rann­sóknir áfram og árið 2007 gerðu Orku­veita Reykja­víkur, Land­græðslan, Blá­skóga­byggð og land­eig­endur með sér sam­komu­lag um könnun á því að end­ur­heimta eldri stærð Haga­vatns. Mark­miðið með end­ur­heimt­inni var að hefta sand­fok og átti að kanna mögu­leika raf­orku­fram­leiðslu sam­hliða.

Orku­veitan hafði fyrr það ár fengið úthlutað rann­sókn­ar­leyfi á svæð­inu og nokkrum árum síðar, er virkj­un­ar­kost­ur­inn var til umfjöll­unar í verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar, var Haga­vatns­virkjun orðið sam­vinnu­verk­efni Orku­veit­unnar og Íslenskrar vatns­orku ehf. Fyr­ir­huguð stærð virkj­unar var þá 20 MW.

Ekki jöfnunarlón heldur endurheimt vatns

Verk­efn­is­stjórnin setti virkj­un­ina í bið­flokk og við þá ákvörðun var Íslensk vatns­orka ósátt. Í athuga­semdum félags­ins sagði að allar „eðli­legar og nauð­syn­legar rann­sóknir“ hefðu farið fram og að þær sýndu að verk­efnið hefði „lág­marks­á­hrif á umhverfið“.

Eyþór Arnalds, núver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, var stjórn­ar­for­maður Haga­vatns­virkj­unar ehf., félags sem Íslensk vatns­orka stofn­aði um verk­efnið. Í við­tali við mbl.is í upp­hafi árs 2012 sagði hann að um hreina rennsl­is­virkjun yrði að ræða. „Það er ekki verið að fara í jöfn­un­ar­lón eða neitt slíkt heldur ein­fald­lega að end­ur­heimta vatnið sem var þarna áður.“

En bið­flokkur í ramma­á­ætlun var nið­ur­staðan sem sam­þykkt var á þingi árið 2013.

Nýifoss í Farinu. Í tillögu að matsskýrslu um Hagavatnsvirkjun segir að vatn yrði tekið af fossinum.
Nýifoss í Farinu. Í til­lögu að mats­skýrslu um Haga­vatns­virkjun segir að vatn yrði tekið af foss­inum.

Í mars árið 2015 lagði meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar Alþingis til að fjórir virkj­ana­kostir yrðu færðir úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk, meðal ann­ars Haga­vatns­virkjun. Til grund­vallar lágu m.a. umsagnir Íslenskrar vatns­orku þar sem fram kom að um rennsl­is­virkjun með stöð­ugu vatns­borði yrði að ræða. Það var ekki sam­hljóma skýrslu sem verk­fræði­stofan Mannvit vann um til­högun virkj­un­ar­innar eins og rakið var í ítar­legri frétta­skýr­ingu á Kjarn­anum á þeim tíma.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, til­kynnti svo í maí þetta ár að breyt­inga­til­lagan sem gerði ráð fyrir Haga­vatns­virkjun í nýt­ing­ar­flokki, hefði verið dregin til baka. Væri það gert til að „leiða fram sem mesta mögu­lega sátt“.

Kennslubókardæmi um hörfunarsögu jökuls

Vinna var þá þegar hafin við þriðja áfanga áætl­un­ar­innar og enn var það nið­ur­staða verk­efn­is­stjórnar að virkj­unin skyldi í bið­flokk. Í loka­skýrslu hennar, sem gefin var út í ágúst 2016, er fjallað ítar­lega um virkj­ana­kost­inn Haga­vatns­virkjun. Þar segir að svæðið hafi fengið hæstu mögu­legu verð­mæta­ein­kunnir fyrir víð­erni og jarð­grunn og að mati fag­hóps sé það „kennslu­bók­ar­dæmi um hörf­un­ar­sögu jök­uls á 19. og 20. öld með til­heyr­andi vanda­málum, flóðum og foki“.

Þar kemur enn fremur fram að virkj­un­ar­mann­virki myndu að hluta til lenda inni á svæði sem er óbyggt víð­erni og „virkjun á svæð­inu væri inn­grip í óraskað land­svæði þar sem nátt­úran hefur fengið að þró­ast án álags af mann­legum umsvifum“.

Þá benti verk­efn­is­stjórn á að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá virkj­un­ar­að­ila komi til greina að veita Jarl­hettu­kvísl um skurð í Hagavatn til að auka afkasta­getu virkj­unar. Yrði það gert myndi vatnafar svæð­is­ins breyt­ast og áin sem rennur hjá nær­liggj­andi sælu­húsi hverfa. „Í ljósi fram­an­greindra þátta telur verk­efn­is­stjórn rétt, með til­liti til almanna­hags­muna, að bíða með ákvörðun um ráð­stöfun svæð­is­ins.“

Stóra-Jarlhetta, einnig þekkt sem Tröllhetta.
Stóra-Jarl­hetta, einnig þekkt sem Tröll­hetta.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem byggð er á nið­ur­stöðu verk­efn­is­stjórn­ar­innar hefur tví­vegis verið lögð fram á þingi en vegna tíðra stjórn­ar­skipta hefur hún ekki enn verið afgreidd. Til stendur að leggja hana fram í þriðja sinn og í óbreyttri mynd nú á vor­þingi.

Á meðan hefur félagið Íslensk vatns­orka ehf. ekki setið auðum höndum. Í lok árs 2018 sótti það um fram­leng­ingu rann­sókn­ar­leyfis vegna virkj­un­ar­á­for­manna til Orku­stofn­unar. Féllst stofn­unin í byrjun árs 2019 á að fram­lengja leyfið til árs­loka 2023.

Í þeirri umsókn félags­ins sagði m.a. að hug­myndir um Haga­vatns­virkjun hefðu tekið nokkrum breyt­ingum og að virkj­un­ar­hug­myndin væri „ mun umhverf­is­vænni útfærslu en áður var áformað“. Hún yrði 18 MW í stað 35 MW og útfærð sem rennsl­is­virkjun, „þ.e. mun minni sveiflur verði á vatns­borði ofan stíflu“.

Ekki keyrðar á fullu afli

Gert væri ráð fyrir þremur 6 MW vélum og að vatna­svið Jarl­hetta, röð móbergst­inda við Eystri-Haga­fells­jökul, yrði einnig nýtt. „Þar sem nýt­ing Jarl­hetta er að hluta til við­kvæmara mál sem þarfn­ast betri skoð­unar þá var ákveðið að byrja á fyrstu tveimur áföng­unum við virkj­un­ina, þ.e. tveimur 6 MW vélum sem þó yrðu ekki keyrðar á fullu afli eða um 9,9 MW. Með slíkum rekstri næst nokkuð jöfn nýt­ing á vél­bún­aði meg­in­hluta árs­ins. Mik­il­vægt er þó að halda til haga áformum um fulla stærð virkj­un­ar­innar 18 MW.“

Í nóv­em­ber í fyrra, nokkrum mán­uðum eftir að rann­sókn­ar­leyfið var end­ur­nýjað, lagði Haga­vatns­virkjun ehf. fram til­lögu að mats­á­ætlun og var hún birt og aug­lýst á vef Skipu­lags­stofn­unar. Í henni er sem fyrr segir fjallað um allt að 9,9 MW virkjun. Hvergi er minnst á það að stærri útfærsla sé í bið­flokki ramma­á­ætl­unar og þess hvergi getið að um fyrsta áfanga virkj­unar sé að ræða. Þá kemur heldur ekki fram að fyr­ir­huguð sé nýt­ing á vatna­sviði Jarl­hetta.

Fram­kvæmda­stjóri Íslenskrar vatns­orku stað­festi hins vegar í við­tali við Morg­un­blaðið síðla árs í fyrra að áformin nú væru fyrsti áfangi stærri virkj­unar. 

Jarlhettudalur. Í umsókn að endurnýjun rannsóknarleyfis vegna hugmynda um virkjun Hagavatns kom fram að hugmynd væri uppi um að nýta vatnasvið Jarlhetta.
Jarl­hettu­dalur. Í umsókn að end­ur­nýjun rann­sókn­ar­leyfis vegna hug­mynda um virkjun Haga­vatns kom fram að hug­mynd væri uppi um að nýta vatna­svið Jarl­hetta.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök segja í athuga­semdum sínum að ekki sé heim­ilt sam­kvæmt lögum að skipta fram­kvæmd upp með þeim hætti sem til­lagan ráð­geri og benda á að fyr­ir­ætl­anir fram­kvæmda­að­il­ans sjá­ist glöggt í umsókn um end­ur­nýjun rann­sókn­ar­leyfis þar sem segi að „mik­il­vægt“ sé að „halda til haga áformum um fulla stærð virkj­un­ar­innar 18 MW“.

Í mats­á­ætl­un­ar­til­lög­unni sem verk­fræði­stofan Mannvit vinnur fyrir Haga­vatns­virkjun ehf., segir að til­högun virkj­un­ar­innar gangi út á að virkja Farið, hækka vatns­borð vatns­ins og nota það sem miðlun og til að hefta áfok af svæð­inu. „Með end­ur­heimt Haga­vatns er von­ast til að gróð­ur­þekja auk­ist og að svifryks­mengun minnki með bættum lífs­gæðum á svæð­inu og í byggð, einkum í upp­sveitum Árnes­sýslu.“

Fimm metra sveifla

Í inn­gangi skýrsl­unnar segir að um „sam­bæri­lega aðgerð“ sé að ræða og Land­græðsla rík­is­ins stóð fyrir á sínum tíma við Sandvatn þegar vatns­borð var hækkað með stíflum. „Eini mun­ur­inn er sá að vatns­borði Sand­vatns er haldið stöð­ugu á meðan gert er ráð fyrir að sveifla vatns­borði Haga­vatns um 5 metra.“

Byggðar yrðu tvær stíflur; ofan við Nýjafoss og ofan við Leyni­foss. Stíflan við Nýjafoss yrði um 250 metra löng og mesta hæð um 25 metrar. Stíflan ofan við Leyni­foss yrði mest um 15 metrar á hæð og um 300 metrar að lengd. Gert er ráð fyrir að vatns­borð Haga­vatns yrði þá 455 m.y.s. og lón­stærð um 23 km² en að hægt yrði að „draga niður í því“ um 5 metra og yrði lón­stærð þá um 17 km². Einungis yrði virkjað „til að nýta til­tæka orku“ og er aflið þá um 9,9 MW.

Er fyr­ir­huguð 20 MW Haga­vatns­virkjun var kynnt fyrir fag­hópum ramma­á­ætl­unar árið 2015 komu fram sam­bæri­leg atriði; ein­ungis yrði virkjað „til að nýta til­tæka orku“ en aflið þá um 20 MW. Stíflur við Leyni­foss og Nýjafoss eru með sama sniði og flat­ar­mál lóns jafn stórt og sveifla á vatns­borði þess jafn mikil. Það sem skilur að er að í nýju til­lög­unni er ekki talað um virkjun Jarl­hettu­kvíslar og stífla við Leyni­foss hefur lengst um 20 metra og stífla ofan Nýjafoss um 50 metra, svo dæmi séu tekin.

Land­vernd krefst frek­ari skýr­inga á þessum breyt­ingum á afli virkj­un­ar­innar og svara við því hvaða hug­myndir séu uppi um nýt­ingu vatna­sviðs Jarl­hetta. „Rök­styðja þarf hvers vegna til­laga að mats­á­ætlun um 9,9 MW virkj­un­ar­hug­mynd heyrir ekki undir ramma­á­ætlun þegar áform eru um afl­meiri virkjun.“

Hvað hug­myndir um heft­ingu foks frá svæð­inu varðar bendir Land­vernd á að gert sé ráð fyrir allt að 5 metra sveiflum í uppi­stöðu­lón­inu og að þegar vatns­staðan í því verði lægst verði 6 km² „af leir­ugum lón­botni á þurru landi sem skapar mikla hættu á jarð­vegs­foki“.

Langjökull ofan Hagavatns og Farið, útfall þess.
Lang­jök­ull ofan Haga­vatns og Farið, útfall þess.

Flat­ar­mál íslenskra jökla hefur minnkað um rúm­lega 750 km² síðan árið 2000 og síð­ustu ár hefur heild­ar­flat­ar­mál þeirra minnkað að með­al­tali um u.þ.b. 40 km² árlega. Á árinu 2018 hop­uðu jök­ul­sporðar víða um tugi metra og Haga­fells­jök­ull eystri í Langjökli stytt­ist um 700 metra þegar dauðís­breiða slitn­aði frá sporð­inum.

„Ljóst er að líf­tími Lang­jök­uls héðan af verður ekki mældur í öldum,“ stendur í athuga­semdum Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Suð­ur­lands og benda þau á mik­il­vægi þess að bera virð­ingu fyrir síkvikri nátt­úr­unni. Óraun­hæft sé að ætla sér að „end­ur­heimta“ stöðu jök­ul­lóns á borð við Hagavatn. Fyrirséð sé að jök­ull­inn muni halda áfram að hopa hratt og að breyt­ingar á landi verði miklar. „Vegna áfram­hald­andi hops Lang­jök­uls er ein­sýnt að þótt Farið yrði stíflað og flat­ar­mál Haga­vatns með því aukið, myndi það ekki leysa þann fok­vanda sem lýst hefur verið og lagður er til grund­vallar umræddum fram­kvæmdum.“

Skipu­lags­ferlið varð­andi fyr­ir­hug­aða Haga­vatns­virkjun er enn skammt á veg komið. Í til­lögu að mats­á­ætlun er tekið fram að eftir eigi að rann­saka til hlýtar hvaða áhrif stækkun Haga­vatns kæmi til með að hafa á sand­fok og svifryks­mengun frá svæð­inu. Þá standi til að kort­leggja hörf­un­ar­sögu Haga­fellsjökla.

Skipu­lags­stofnun á eftir að taka ákvörðun um þá til­lögu sem rakin var hér að framan. Í kjöl­farið gæti tekið við vinna að frum­mats­skýrslu fram­kvæmda­að­ila, þar sem virkj­ana­á­formin eru útfærð nákvæmar. Sú skýrsla þarfn­ast svo einnig álits Skipu­lags­stofn­unar. Í öllu því ferli gefst færi á athuga­semdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár