Ég verð að viðurkenna að bæði ótta- og kjánahrollur fóru um mig þegar ég las fréttaumfjallanir af mótmælum félagasamtakanna Ísland – þvert á flokka, sem haldin hafa verið á Austurvelli í sumar. Verið var að mótmæla meintu stjórnleysi í innflytendamálum á Íslandi og margir vildu eigna innflytendum og hælisleitendum allt það sem miður fer í íslensku samfélagi, og þá sér í lagi ofbeldisverkum hérlendis. Ég sá í fréttaflutningi af mótmælunum hvítan íslenskan mann sem stóð ógnandi á móti konu sem var augljóslega hrædd við hann. Tölfræðilega er það rétt birtingarmynd af ofbeldismanni og þolanda á Íslandi. Ég minnti sjálfa mig á samspil sálfræði og lífeðlisfræði og hvernig tilfinningar á borð við ótta og reiði skerða blóðflæði til framheilans og hamla þannig ákvarðanatöku byggða á rökhyggju og dómgreind. Ég minnti sjálfa mig líka á hvernig þeir sem valdið bera hafa notað þessar tilfinningar til að stýra fjöldanum fáum í hag og …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































"Ofbeldi íslenskra karlmanna gegn íslenskum konum er faraldur"
Magnús Þór Jónsson (Megas)