Facebook mun breytast - Á að vera meira jákvætt en neikvætt

Búast má við róttækum breytingum á frétta­straumi notenda Facebook á næstunni, samkvæmt því sem Mark Zuckerber, forstjóri, lét hafa eftir sér í dag.

Frétta­straumur (News Feed) fólks á Facebook mun taka miklum breytingum á næstunni, og mun hann fyrst og fremst endur­spegla það sem vinir og fjölskyldu­meðlimir notenda hafa að segja.

Minna mun fara fyrir mynböndum og efni frá hinum ýmsu frétta- og efnis­veitum, eins og reyndin er nú og hefur færst verulega í aukana á undan­förnum árum.

Óhætt er að segja að Facebook hafi verið mikið til umræðu að undan­förnu, ekki síst vegna þess hve fyrir­ferðamikill samfélags­miðillinn er orðinn í lífi fólks, en notendur hans eru nú um tveir milljarðar um allan heim, eða sem nemur tæplega 30 prósent af öllum íbúum jarðar.

Í umfjöllun New York Times segir Zuckerberg að Facebook þurfi að endur­skilgreina kerfi sitt. „Við viljum að vörur okkar séu ekki aðeins til skemmtunar, heldur séu góðar fyrir fólk,“ segir Zuckerberg.

Markmiðið með breytingunum er ekki síst það, að fólk finni fyrir meiri jákvæðni þegar það skoða frétta­strauminn sinn, að því er segir í umfjöllun New York Times.

https://twitter.com/businessinsider/status/951624282290970626

Spjótin hafa í vaxandi mæli beinst að Facebook að undan­förnu, ekki síst vegna þess hve miðillinn er orðinn áhrifa­mikill og hvernig hagsmuna­aðilar, hvort sem er í stjórn­málum eða á örðum vettvangi, hafa geta nýtt sér frétta­strauminn sem notendurnir tengjast til að koma ýmsum á framfæri, svo sem fölskum fréttum og áróðri.

Zuckerberg hefur opinber­lega beðist afsökunar á því að Facebook hafi ekki vandað sig nægilega, þegar kemur að uppbyggingu á frétta­straumnum og hvernig upplýsingar flæða milli fólks á þessum áhrifa­mikla samfélags­miðli. Hann hefur einnig sagt, að honum finnist það leitt, ef fólki telji að Facebook ali á sundrungu í samfélagslegri umræðu, og vill halda áfram að breyta hlutum til hins betra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár