Áhersla á fullgildingu fríverslunarsamnings við Filippseyjar

Tillaga til þings­ályktunar um full­gildingu fríverslunar­samnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja er eitt af örfáum málum utan­ríkis­ráðherra á þing­málaskrá sem ekki er EES-mál.

Tillaga til þings­ályktunar um full­gildingu fríverslunar­samnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja er eitt af örfáum áherslu­málum Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar utan­ríkis­ráðherra á þinginu sem nú er að hefjast sem ekki er EES-mál, þ.e. skyldu­bundin innleiðing á reglum Evrópska efnahags­svæðisins í íslenskan rétt.

Þings­ályktunar­tillagan var lögð fram í mars en dagaði uppi á síðasta þingi. Var tillagan gagnrýnd harðlega, bæði af nokkrum þing­mönnum stjórnar­andstöðunnar og lögfræðingi Alþýðu­sambands Íslands. Var vísað til alvarlegra mann­réttinda­brota í Filippseyjum og fullyrt að með tillög­unni væru viðskipta­hagsmunir teknir fram yfir mann­réttinda­sjónarmið. „Af hverju kemur ríkis­stjórn Íslands með svona mál hingað inn í sal Alþingis? Af hverju vill ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, liðka fyrir viðskiptum við morðóða menn? Eru viðskipta­hagsmunir virkilega metnir hér meira en sjálfsögð mann­réttindi?“ spurði Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þingkona Vinstri grænna, þegar rætt var um málið á Alþingi þann 25. apríl síðastliðinn. 

Önnur mál sem Guðlaugur ætlar að leggja fram á þinginu er frumvarp breytingu á lögum um Íslands­stofu. Í því felst endur­skoðun á ákvæðum um hlutverk utan­ríkis­þjónustunnar og Íslands­stofu í útflutnings­aðstoð við íslenskt atvinnulíf á erlendum mörkuðum, ímynd og orðspor Íslands, kynningu á íslenskri menningu erlendis og markaðs­starf gagnvart erlendum ferða­mönnum og fjár­festum. Er markmið endur­skoðunarinnar grundvöll fyrir framtíðar­fyrir­komulag útflutnings­aðstoðar og markaðs­starfs.

Þá hyggst Guðlaugur leggja fram frumvarp til laga um stofnun Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. „Frum­varpið felur í sér að sett verði á fót stofnun Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Undir stofnunina myndu falla fjórir skólar sem nú starfa á vegum Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, þ.e. jarðhita-, sjávar­útvegs-, land­græðslu- og jafnréttis­skólar Háskóla Sameinuðu þjóð­anna,“ segir í þing­málaskránni. „Í frum­varpinu verður gert ráð fyrir að stofnunin verði hluti af Háskóla Sameinuðu þjóðanna með formlega stöðu alþjóða­stofnunar í skilningi laga nr. 98/1992, um friðhelgi og forréttindi alþjóða­stofnana.“

Guðlaugur mun leggja fram þings­ályktunar­tillögur um stað­festingu samnings milli Íslands og Færeyja um fisk­veiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu, bæði fyrir árið 2017 og 2018. Þá mun hann tala fyrir þings­ályktunar­tillögu um alþjóð­lega þróunar­samvinnu­stefnu Íslands 2018‒2022 eins og gert er ráð fyrir í lögum, og veita Alþingi hina árlegu skýrslu um utan­ríkismál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár