Pence: Bandaríkin til í viðræður við Norður-Kóreu

Ólympíu­andinn virðist vera að liðka fyrir viðræðum á Kóreu­skaga þar sem mikil spenna og yfirlýsinga­gleði andstæðinga, hefur þótt vera ógn við heims­friðinn.

Mike Pence, vara­forseti Banda­ríkjanna, segir að Banda­ríkin séu tilbúin til viðræðna við yfirvöld í Norður-Kóreu um hvernig megi draga úr spennu á Kóreu­skaga og stuðla að friði.

Eftir að Norður-Kórea samþykkti þátttöku á Ólympíu­leikunum í vetrar­íþróttum, sem nú eru hafnir í Suður-Kóreu, þá hafa komist á betri samskipti milli Norður- og Suður-Kóreu.

Samkvæmt umfjöllun Washington Post hefur forseti Suður-Kóreu, Moon Jae-in, verið sá sem liðkað hefur fyrir samskiptum milli þeirra sem deila harðast vegna tilrauna Norður-Kóreu með lang­drægar flaugar.

Mike Pence er sagður hafa samþykkt viðræður við yfirvöld í Norður-Kóreu, en þó aðeins á forsendum Banda­ríkjanna. Strangar viðskipta­þvinganir sem samþykktar voru af öllum 15 þjóðunum í öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna eru enn í gildi, en þær miða meðal annars að því að hindra innflutning á olíu til landsins og beita Norður-Kóreu þrýstingi til að láta af tilraunum sínum með eldflaugar sem geta borið kjarnorku­sprengjur.

Pence hefur sagt, að Banda­ríkin standi með Suður-Kóreu og að ekki verið látið undan neinu því sem Norður-Kórea vilji ná fram. Þátttaka Banda­ríkjanna í viðræðum snúist fyrst og fremst um að tryggja hagsmuni Banda­ríkjanna og þeirra þjóða sem Norður-Kórea ógnar mest, nágrönnunum Suður-Kóreu og Japan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár