Markaðsvirði skráðra félaga á Íslandi rýrnað um meira en 100 milljarða á fjórum mánuðum

Eftir miklar hækkanir á hlutabréfa­mörkuðum frá upphafi kórónu­veiru­faraldurs hafa hlutabréf sem skráð eru í Kauphöll Íslands lækkað umtals­vert í virði síðustu mánuði. Lækkun var meiri í febrúar en hún hefur verið innan mánaðar frá upphafi faraldurs.

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands. Mynd: Reitir

Úrvals­vísitala Kaup­hallar Íslands, sem mælir gengi bréfa þeirra tíu félaga á aðal­markaði sem hafa mestan seljanleika, hefur lækkað um 12,2 prósent frá því í byrjun nóvember í fyrra. Hún lækkaði alls um 5,3 prósent í nýliðnum febrúar sem er mesta lækkun sem mælst hefur á vísi­tölunni síðan í mars 2020, þegar heims­faraldur kórónu­veiru skall á af fullum þunga. Vísitalan lækkaði líka, alls um 4,7 prósent, í janúar 2022.

Heildar­markaðs­virði allra skráðra félaga í Kaup­höllinni, jafnt þeirra sem skráð eru á aðal­markað og First North markaðinn, var 2.420 milljarðar króna í lok febrúar en var 2.527 milljarðar króna í byrjun nóvember í fyrra. Því hafa 107 milljarðar króna af markaðs­virði horfið á fjórum mánuðum.

Þetta má lesa út úr viðskipta­yfirlitum Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höllina.

Miklar hækkanir síðustu ár

Mikill gangur hefur verið á hlutabréfa­markaði frá því að kórónu­veiru­faraldurinn skall á. Þannig hækkuðu bréf í öllum félögum sem skráð eru á aðal­markað á árinu 2021. Úrvals­vísitala Kaup­hallarinnar hækkaði um þriðjung á síðasta ári, saman­borið við 20,5 prósent á árinu 2020.

Mest hækkuðu þau hjá Arion banka, alls um 100,5 prósent, en minnst hjá Marel, stærsta skráða félagi landsins og því eina sem er í umfangs­miklum alþjóð­legum vaxtafasa, en bréf þess hækkuðu um 10,9 prósent. Bréf Marel eru líka skráð á markaði í Hollandi.

Bréf í Arion banka hafa lækkað um tíu prósent frá því í lok október í fyrra en bréf í Marel hafa lækkað um 20 prósent á sama tíma.

Ýmis félög hafa á sama tíma hækkað í verði. Bréf í Icelandair Group hafa til að mynda hækkað um 11,4 prósent frá því í byrjun nóvember í fyrra og bréf í sjávar­útvegs­risanum Brim hafa hækkað um sex prósent.

Þróunin er í takti við spár og það sem gerst hefur alþjóð­lega, en miklar vaxta­lækkanir og sértækar aðgerðir seðla­banka víðs vegar um heiminn við upphaf faraldurs, sem miðuðu að því að dæla ódýru fjármagni inn í fjármála­kerfi heimsins, ýttu hlutabréfa­verði skarpt upp.

Síðustu mánuði hafa vextir hins vegar að hækka og hérlendis eru þeir búnir að fara úr 0,75 í 2,75 prósent frá því í maí í fyrra. Þetta er gert til að takast á við aukna verðbólgu, en á Íslandi er hún nú 6,2 prósent og hefur ekki mælst hærri í tæp tíu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár