Banni við þungunarrofi hafnað í hinu íhaldssama Kansas-ríki

Hátt í 60 prósent kjósenda í Kansas voru andvíg því að fella niður rétt til þungunar­rofs. Ríki allt í kringum Kansas hafa saumað að réttinum til þungunar­rofs eða jafnvel bannað með öllu og er ríkið orðið eins konar athvarf kvenna sem vilja rjúfa þungun.

Fyrr á þessu ári mótmælti fólk ákvörðun hæstaréttar Bandaríkjanna um að snúa við dómi í máli Roe gegn Wade.
Fyrr á þessu ári mót­mælti fólk ákvörðun hæsta­réttar Banda­ríkj­anna um að snúa við dómi í máli Roe gegn Wade. Mynd: EPA

Réttur til þungunar­rofs hefur verið tryggður í Kansas í Banda­ríkjunum eftir að laga­breytingar­tillögu var hafnað í kosningum í ríkinu. Tillagan sem um ræðir fjallaði um afnám þessa réttar í stjórnar­skrá ríkisins og hefði því getað haft í för með sér verulega skerðingu á aðgengi kvenna að þungunar­rofi eða hreinlega leitt til banns á þungunar­rofi. Þegar 95 prósent atkvæða höfðu verið talin voru 59 prósent greiddra atkvæða gegn tillög­unni en 41 prósent með.

Kosningarnar í Kansas eru þær fyrstu sem fjalla um rétt til þungunar­rofs eftir að hæstiréttur landsins sneri dómnum í máli Roe gegn Wade fyrr á þessu ári. Málið var fordæmis­gefandi og hafði tryggt konum rétt til þungunar­rofs í Banda­ríkjunum öllum frá árinu 1973.

Stjórn­völd í fjölda ríkja Banda­ríkjanna hafa lýst yfir vilja til þess að banna þungunarrof og víða hefur verið saumað að rétti kvenna í þessum efnum á undan­förnum árum. Í nokkrum ríkjum er þungunarrof til að mynda ólöglegt að sex vikna meðgöngu­tíma liðnum. Um þessar mundir er þungarrof bannað í tíu ríkjum Banda­ríkjanna en líklegt er talið að þessi tala muni hækka fljótlega.

Repúblikanar í hópi mótfallinna í ríkinu

Fram kemur í umfjöllun New York Times að þessi miklu munur á stuðningi og andstöðu við laga­breytinguna, 59 prósent gegn 41 prósenti, hafi komið á óvart. Milljónum dala hafi verið eytt í kosninga­baráttu samtaka á báðum hliðum. Þar að auki eru íbúar ríkisins með þeim íhalds­sömustu í Banda­ríkjunum. Allir öldunga­deildar­þingmenn ríkisins hafa til dæmis komið úr röðum Repúblikana frá því á fjórða áratug síðustu aldar og þá hafa kjósendur í Kansas stutt vel við bak forseta­efnis Repúblikana í öllum forseta­kosningum frá því Lyndon B. Johnson stóð uppi sem sigurvegari forseta­kosninganna árið 1964.

Skráðir flokks­félagar Repúblikana­flokksins eru mun fleiri en skráðir flokks­félagar Demókrata í ríkinu. Aðgerða­sinnar fylgjandi rétti til fóstur­eyðinga reyndu því að biðla til fólks sem ekki er skráð í flokka sem og til Repúblikana sem hallast í átt að miðjuás stjórn­málanna. Ljóst er að einhver fjöldi þeirra kjósenda sem mótfallnir voru laga­breytingunum koma úr hópi kjósenda Repúblikana­flokksins, niður­stöðurnar voru það afgerandi.

Hæstiréttur ríkisins fellt takmarkanir úr gildi

Kansas er eitt þeirra ríkja sem þrengt hefur að rétti kvenna til þungunar­rofs á síðustu árum með laga­setningum. Árið 2019 féll aftur á móti dómur í hæstarétti ríkisins sem hafði það í för með sér að margar þeirra takmark­anna sem festar höfðu verið í lög voru afnumdar – rétturinn mat það sem svo að aðgengi að þungunar­rofi væri stjórnar­skrár­varinn réttur. Sú niður­staða reiddi Repúblikana til reiði, eins og það er orðað í umfjöllun New York Times um málið, en þeir höfðu unnið að takmörkununum árum saman. Repúblikanar notuðu því mikinn meirihluta sinn á löggjafar­þingi ríkisins til þess að koma málinu, þ.e. tillögu um stjórnar­skrár­breytingu sem takmarka myndi aðgengi að þungunar­rofi, í atkvæða­greiðslu innan ríkisins.

Fyrir atkvæða­greiðsluna lá ekki ljóst fyrir hversu langt stjórn­völd í Kansas myndu ganga í að takmarka aðgengi að þungunar­rofi, yrði laga­breytingin samþykkt. Stuðnings­menn frum­varpsins sögðu að það myndi ekki sjálf­krafa banna þungunarrof með öllu. „Samþykkt frumvarp þýðir ekki að þungunarrof verði bannað, það þýðir að við ætlum að leyfa löggjafanum að ákveða umfang þungunar­rofs,“ er haft eftir Mary Jane Muchow, eins stuðnings­manna frum­varpsins í umfjöllun New York Times. „Ég held að þungunarrof ætti að vera löglegt, en ég held að það ætti að vera einhverjum takmörkunum háð,“ sagði hún.

Margir andstæðingar frum­varpsins óttuðust aftur á móti að samþykkt frumvarp myndi leiða af sér algjört bann við þungunar­rofi.

Konur af stóru svæði sækja til Kansas til að rjúfa þungun

Fram kemur í umfjöllun New York Times að Kansas hafi verið í brennidepli í umræðu um þungunarrof í Banda­ríkjunum frá því snemma á 10. áratugnum þegar mikil mótmæli áttu sér stað í Wichita, fjölmennustu borg ríkisins. Þá komu mótmælendur víða að frá Banda­ríkjunum til þess að mótmæla þungunar­rofi. Mótmælendur stóðu meðal annars vörð um lækna­stofur sem framkvæmdu þungunarrof og meinuðu þannig fólki aðgang að þeim.

Á síðustu árum hefur Kansas aftur á móti orðið að eins konar athvarfi kvenna úr nærliggjandi ríkjum sem óska þess að rjúfa þungun. Meira að segja áður en hæstiréttur sneri niður­stöðu í máli Roe gegn Wade var helmingur þeirra kvenna sem fóru í þungunarrof í Kansas búsettur í öðru ríki.

Í Oklahoma og Missouri, ríkjum sem liggja að Kansas, er þungunarrof ólöglegt, gerð er undan­tekning í Oklahoma ef þungun er tilkomin vegna nauðgunar eða sifjaspells. Talið er líklegt að þungunarrof í Nebreska, öðru nágranna­ríki Kansas, verði fest í lög síðar á árinu og nú þegar hafa konur frá Arkansas og Texas lagt leið sína til Kansas til þess að geta rofið þungun sína með löglegum hætti.

Í dag er þungunarrof löglegt í Kansas fram að 22. viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár