Svíar búast við að bólusetja fimmtung þjóðarinnar á næsta ársfjórðungi

Þrátt fyrir að íslenska ríkis­stjórnin, sem fær bóluefni frá Svíþjóð, voni að hjarð­ónæmi gegn COVID-19 náist á fyrsta ársfjórðungi 2021, búast sænsk yfirvöld ekki við því að bólusetja nema fimmtung af þjóðinni gegn veirunni á sama tíma.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar
Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar Mynd: EPA

Sænsk sóttvarnar­yfirvöld gera ráð fyrir að fá bóluefni gegn COVID-19 fyrir tvær milljónir Svía á fyrsta ársfjórðungi 2021, en það jafn­gildir fimmtungi af mann­fjöldanum. Svíar hafa milli­göngu um kaup Íslendinga á bóluefni, en búist er við því að þrír fjórðu Íslendinga muni verða bólu­settir á fyrsta fjórðungi næsta árs.

Samkvæmt frétt sem birtist í sænska ríkis­útvarpinu SVT í gær hefur sænska land­læknis­embættið skilgreint áhættu­hópa sem munu hafa forgang að bólu­efninu. Í fyrsta forgangs­flokki eru 570 þúsund manns, en sá flokkur inni­heldur heilbrigðis­starfsfólk og gamalt fólk með undir­liggjandi sjúkdóma. Heilt yfir eru þó 2,6 milljónir Svía flokkaðar í áhættu­hópum gegn veirunni og hafa þeir því einhvern forgang.

Hefjast í janúar en taka tíma

Johan Carlson, land­læknir Svíþjóðar, sagði í viðtali við SVT að bólu­setningarnar hjá fólki í þessum áhættu­hópum geti hafist strax í janúar á næsta ári, en nokkra mánuði þurfi þar til allir innan þessara hópa gætu fengið bóluefni. Á fyrsta fjórðungi næsta árs er búist við að fjórar milljónir skammta muni koma til landsins og verður það nóg til að bólusetja tvær milljónir Svía.

Íbúa­fjöldi Svíþjóðar nær rétt rúmum tíu milljónum, þannig að einungis er búist við að um fimmtungur þeirra verði bólu­settur á næsta ársfjórðungi. Þetta er nokkru minna en stjórn­völd hérlendis vonast til að náist á sama tíma, en heilbrigðis­ráðuneytið tilkynnti fyrr í vikunni að vonir standi til þess að 75 prósent þjóðarinnar verði bólusett innan næstu fjögurra mánaða. 

Bóluefnið sem Íslendingar munu fá mun koma frá Svíþjóð, þar sem landið hefur ákveðið að framselja bóluefni sem það fær frá Evrópu­sambandinu til aðildar­ríkja Evrópska efnahags­svæðisins. Auk Íslands fá því Noregur og Liechtenstein einnig bóluefni frá Evrópu­sambandinu með milli­göngu Svíþjóðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár