ESB vill fjárfesta beint í nýsköpunarfyrirtækjum

Nýkynntur nýsköpunar­hraðall Evrópu­sambandsins felur í sér stefnu­breytingu í opinberri fjár­mögnun til tækni­fyrirtækja í álfunni, en með honum getur sambandið keypt beina eignar­hluti í sprota­fyrirtækjum fyrir allt að 2,2 milljarða króna.

Margrethe Vestager, yfirmaður stafrænnar vegferðar Evrópusambandsins
Margrethe Vestager, yfir­maður staf­rænnar veg­ferðar Evr­ópu­sam­bands­ins Mynd: EPA

Nýsköpunarráð Evrópu­sambandsins (EIC) hyggst fjárfesta beint í sprota­fyrirtækjum í álfunni fyrir allt að 2,2 milljörðum króna í gegnum nýsköpunar­hraðalinn EIC Accelerator sem var kynntur í vikunni. Formaður ráðsins segir hraðalinn gera sambandinu kleift að taka áhættur sem einka­fjárfestar treysta sér ekki til þess að taka og hagnast á fjár­festingum sínum þegar vel gengur.

Meiri áhætta, en möguleiki á arðgreiðslur

Margrethe Vestager, sem fer fyrir stafrænni vegferð Evrópu­sambandsins, kynnti hraðalinn á miðvikudaginn, ásamt Mariya Gabriel, nýsköpunar­ráðherra sambandsins. Samkvæmt frétt Politico um málið felur þessi kynning í sér stefnu­breytingu á fjár­mögnun ESB til tækni­fyrirtækja, en hingað til hefur hún einungis falið í sér styrk­veitingar til einka­fjárfesta.

Með beinni fjár­festingu í tækni­fyrir­tækjunum er sambandið hins vegar að taka meiri áhættu, en gæti hins vegar fengið að njóta góðs af mögulegum arðgreiðslum fyrir­tækjanna. Samkvæmt ESB munu arðgreiðslurnar renna beint í nýsköpunar­sjóð sambandsins, sem nemur nú 10,1 milljörðum evra, eða um 1.500 milljörðum íslenskra króna.

Einkafjárfestar taka svo við keflinu

Formaður EIC, Jean-David Malo, sagði í viðtali við Politico að Evrópu­sambandið væri með þessu að taka áhættur sem enginn annar væri að taka. Samkvæmt honum er megin­markmið hraðalsins að fylgja nýjum tækni­fyrirtækjum í stækkunar­fasa sínum þangað til að tækni þeirra er orðin reyndari og einka­fjárfestar eru tilbúnir að taka við.

Samkvæmt vefsíðu nýsköpunar­hraðalsins geta evrópsk sprota­fyrirtæki, auk lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja, sótt um að taka þátt í hann. Þau fyrirtæki sem komast í gegnum hraðalinn fá svo beina hlutafjár­innspýtingu frá Evrópu­sambandinu að andvirði 0,5 til 15 milljóna Evra, en það jafn­gildir 73 til 2.200 milljónum króna. Sambandið mun svo leggja áherslu á að stækka fyrir­tækið og reyna að fá fleiri fjárfesta að borðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár