Ásakar Samtök atvinnulífsins um valdarán

Formaður VR vill að atvinnu­rek­endur víki úr stjórnum líf­eyr­is­sjóða þar sem þeir vilji hafa sjóð­ina út af fyrir sig „svo hægt sé að halda brask­inu áfram með pen­inga og fjár­muni launa­fólks.“

Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Samtaka Iðn­að­ar­ins og vara­for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, til­kynnti VR það í bréfi sem er dag­sett í gær að hún ætli ekki að boða til stjórn­ar­fundar með nýrri stjórn sjóðs­ins að svo stöddu. VR skip­aði í síð­ustu viku fjóra nýja stjórn­ar­menn til að sitja fyrir sína hönd í stjórn­inni.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar segir hann enn fremur að að inn­grip Guðrúnar sé „í eðli sínu ekk­ert nema valda­rán og gróft brot á sam­þykktum sjóðs­ins með því að neita skip­un­ar­að­ilum að skipa í stjórn sjóðs­ins. Hún telur sig geta stjórnað því hverjir koma inn í stjórn sjóðs­ins fyrir hönd þeirra sem skipa hana, sem er án for­dæma.“

Það sé skilj­an­legt að Samtök atvinnu­lífs­ins vildi halda áfram að „hafa sjóð­ina nokkurn veg­inn útaf fyrir sig svo hægt sé að halda brask­inu áfram með pen­inga og fjár­muni launa­fólks. Í það minnsta án afskipta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.“ Ragnar Þór spyr hvort að það sé virki­lega vilji verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og skjól­stæð­inga hennar að atvinnu­rek­endur stjórni líf­eyr­is­sjóð­unum og þar af leið­andi pen­ingum vinn­andi fólks og líf­eyr­is­þega og biður fólk að deila færsl­unni sinn ief það telur að atvinnu­rek­endur eigi að víkja úr sjóðum líf­eyr­is­sjóð­anna.

Vildu skipta um stjórnarmenn

VR til­­­­­­­nefnir helm­ing stjórn­­­­­­­ar­­­­manna í Líf­eyr­is­­­sjóði verzlunarmanna en sam­tök ýmissa atvinn­u­rek­enda hinn helm­ing­inn. Sem stendur er stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­mað­­­­ur­ sjóðs­ins, Ólafur Reimar Gunn­­­ar­s­­­son, úr röðum þeirra sem VR til­­­­­­­nefn­­­­ir. Hann er einn þeirra fjög­­urra sem VR hefur reynt að víkja úr stjórn líf­eyr­is­­sjóðs­ins.

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóð­i verzlunarmanna ­í júní síð­­­­ast­liðnum var sam­­­­­­­­þykkt að aft­­­­­­­­ur­­­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóðs verzlunarmanna og var að auki sam­­­­­­­­þykkt til­­­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­menn til­­­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­­­ hafði stjórn­­­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­­­að­­­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­mönnum félags­­­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­­­­lækk­­­­­­­­­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­­­­samn­ing­i. VR­ hefur lýst því yfir að þessi að­­­­gerð félags­­­­ins sé full­kom­­­­lega lög­­­­­­­leg.

FME stígur inn

Greint var frá því í fréttum í byrjun júlí að Fjár­mála­eft­ir­litið teldi aft­­ur­köllun á til­­­nefn­ingu stjórn­­­ar­­manna sjóða vega að sjálf­­stæði stjórna þeirra. VR sætti sig ekki við þetta heldur stendi Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í lok júlí síð­ast­lið­ins fyrir að við­ur­kenna ekki lög­­­­mæti ákvörð­unar full­­­trú­a­ráðs VR um að aft­­­ur­­­kalla umboð stjórn­­­­­ar­­­manna í Líf­eyr­is­­­sjóði verzlunarmanna.

Í síð­ustu viku skip­aði stjórn VR svo nýja stjórn­ar­menn til bráða­birgða. Þeir eru Guð­rún Johnsen, Bjarni Þór Sig­urðs­son, Helga Ing­ólfs­dóttir og Stefán Svein­björns­son.

Á meðan að stjórn sjóðs­ins kemur ekki saman geta þessir stjórn­ar­menn hins vegar ekki tekið til starfa.

Vakna af værum blundi

Ragnar Þór rekur í stöðu­upp­færslu sinni ástæður þess að hann telur að Samtök atvinnu­lífs­ins vinni harka­lega gegn því að verka­lýðs­hreyf­ingin sé að „vakna af værum blundi innan stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins.“

Hann rekur síðan dæmi um fjár­fest­ingu líf­eyr­is­sjóða í flug­fé­lag­inu Icelandair, en fyrr­ver­andi for­stjóri þess félags, Björgólfur Jóhanns­son var einnig for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Síðan rekur hann fjár­fest­ingar sem tengj­ast upp­bygg­ingu lúx­us­hót­els á Lands­símareitnum svo­kall­aða. Hægt er að lesa færslu Ragnars Þórs í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár