VR skipar nýja stjórnarmenn í Lífeyrissjóð verzlunarmanna

Guðrún Johnsen er á meðal þeirra þriggja sem skipuð hefur verið sem aðal­maður í stjórn Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna. Hún verður lík­leg­ast næsti stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins.

Guðrún Johnsen hefur verið skipuð í stjórn lífeyrissjóðs verzlunarmanna til bráðabirgða.
Guðrún Johnsen hefur verið skipuð í stjórn líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna til bráða­birgða. Mynd: Arion banki

Stjórn VR sam­þykkti í gær til­lögu um að skipa nýja stjórn­ar­menn í líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna til bráða­birgða. Þá var einnig sam­þykkt að hefja þegar í stað fag­legt umsókn­ar­ferli fram­tíð­ar­stjórn­ar­manna félags­ins hjá líf­eyr­is­sjóðnum.

Í frétt frá VR segir að til­lagan hafi veirð sam­þykkt með 14 atkvæðum gegn einu. Nýir aðal­menn VR í stjórn sjóðs­ins verða Guðrún Johnsen, Bjarni Þór Sig­urðs­son, Helga Ing­ólfs­dóttir og Stefán Svein­björns­son. Heim­ildir Kjarnans herma að Guðrún verði næsti stjórn­ar­for­maður líf­eyr­is­sjóðs­ins.

[adspot]Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna er næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins. Heild­ar­eignir hans voru mentar á 713,5 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Hann er mjög umsvifa­mik­ill fjár­festir í íslensku við­skipta­lífi og á stóran hlut í flestum skráðum félögum hér­lend­is. Verð­mætasta hluta­bréfa­eign sjóðs­ins er hluti í Mar­el. 

Sjóð­ur­inn á einnig stóran hlut í félögum á borð við HB Granda, Reg­inn, Icelandair og Eim­skip. Þá er Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Kviku banka með 9,49 pró­sent hlut.

VR til­­­­­nefnir helm­ing stjórn­­­­­ar­­­manna í Líf­eyr­is­­sjóði verzl­un­ar­manna en sam­tök ýmissa atvinn­u­rek­enda hinn helm­ing­inn. Sem stendur er stjórn­­­­­ar­­­for­­­mað­­­ur­ sjóðs­ins, Ólafur Reimar Gunn­­ar­s­­son, úr röðum þeirra sem VR til­­­­­nefn­­­ir. Hann er einn þeirra fjög­urra sem VR hefur reynt að víkja úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins.

Trúnaðarbrestur vegna hækkunar á vöxtum

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­­sjóð­i verzl­un­­­ar­­­manna ­í júní síð­­­ast­liðnum var sam­­­­­­­þykkt að aft­­­­­­­ur­­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­­sjóðs verzl­un­­­ar­­­manna og var að auki sam­­­­­­­þykkt til­­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­menn til­­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­­ hafði stjórn­­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­­að­­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­mönnum félags­­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­­­­lækk­­­­­­­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­­­samn­ing­i. VR­ hefur lýst því yfir að þessi að­­­gerð félags­­­ins sé full­kom­­­lega lög­­­­­leg.

[adspot]Ragnar Þór Ing­­­ólfs­­­son, for­­­mað­­­ur­ VR, sagði í stöð­u­­­færslu á Face­­­book á þeim tíma að það væri ekk­ert í lögum sem banni sér og stjórn­­ VR­­ að skipta út stjórn­­­­­ar­­­­mönnum í líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­um. Hann benti á að stjórn­­­­­ar­­­­menn í líf­eyr­is­sjóðnum væru ekki kosnir á aðal­­­­fundi heldur skip­aður af þeim aðilum sem að sjóðnum standa. „Ég treysti því fólki, sem full­­­trú­a­ráðið valdi, full­kom­­­lega til að taka mál­efna­­­lega og sjálf­­­stæða afstöðu í þeim málum sem kunna að koma á borð stjórn­­­­­ar­innar fram að þeim tíma.“

Hann sagði jafn­­framt lík­­­­­lega væri það eina ­leiðin til raun­veru­­­­legra breyt­inga að sjóð­­­­fé­lagar líf­eyr­is­­­­­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint. Þannig væri hægt að aftengja atvinn­u­lífið og verka­lýðs­hreyf­­­ing­una sem hann sagði að væri í ákveð­inn­i ­mót­­­sögn við sjálfa sig sem fjár­­­­­magns­eig­anda.

FME gerir athugasemdir

Greint var frá því í fréttum í byrjun júlí að Fjár­mála­eft­ir­litið teldi aft­ur­köllun á til­nefn­ingu stjórn­ar­manna sjóða vega að sjálf­stæði stjórna þeirra. Fjár­­­mála­eft­ir­litið beindi því með dreifi­bréfi til stjórna líf­eyr­is­­sjóða að taka sam­­þykktir sínar til skoð­unar með það að leið­­ar­­ljósi að skýra hvort og þá við hvaða aðstæður sé mög­u­­legt að aft­­ur­­kalla umboð stjórn­­­ar­­manna sem kjörn­ir/til­­nefndir hafa ver­ið.

Auk þess kom fram í til­­kynn­ing­u frá Fjár­mála­efn­ir­lit­inu í byrjun júlí að sam­­kvæmt lögum um skyld­u­­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­­semi líf­eyr­is­­sjóða skuli meðal ann­­ars kveða á um hvernig vali stjórn­­­ar­­manna líf­eyr­is­­sjóðs­ins og kjör­­tíma­bili þeirra skuli hátt­að. Hins vegar væri ekki frekar kveðið á um hvernig að til­­­nefn­ingu eða kjöri skuli staðið eða hvort aft­­ur­köllun sé heim­il.

Enn fremur taldi Fjár­­­mála­eft­ir­litið að val stjórn­­­ar­­manna færi eftir ákvæðum í sam­­þykktum líf­eyr­is­­sjóða sem væru þó „al­­mennt hljóðar um hvort og þá við hvaða aðstæður umboð stjórn­­­ar­­manna verði aft­­ur­­kall­að. Óskýrar sam­­þykktir hvað þetta varðar gera ferli við val og mög­u­­lega aft­­ur­köllun á umboði stjórn­­­ar­­manna ógagn­­sætt.“

VR sætti sig ekki við þetta heldur stendi Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í lok júlí síð­ast­lið­ins fyrir að við­ur­kenna ekki lög­­­mæti ákvörð­unar full­­trúa­ráðs VR um að aft­­ur­­kalla umboð stjórn­­­ar­­manna í Líf­eyr­is­­sjóði verzl­un­­ar­­manna.

Fyrrverandi varaformaður stjórnar Arion banka

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að vilji sé til þess á meðal for­svars­manna VR að Guðrún Johnsen verði næsti stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Hún var um ára­bil vara­for­maður stjórnar Arion banka en var láti hætta í stjórn hans síðla árs 2017.

[links]Hún greiddi meðal ann­ars atkvæði í stjórn­inni gegn umdeildri sölu á hlut bank­ans í Bakkavör í nóv­em­ber 2015 og lagði það síðan til á fundi stjórnar Arion banka 14. nóv­em­ber 2018 að gerð yrði könnun á sölu­ferli eign­ar­hlut­ar­ins. Sú til­laga var felld. Í minni­blaði sem Banka­sýsla rík­is­ins skrif­aði Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna þeirrar sölu, sem stofn­unin mat að rík­is­sjóður hafi tapað 2,6 millj­örðum króna á, kom fram að degi eftir að Guðrún lagði fram til­lög­una hafi henni verið tjáð að „breyt­ingar væru fyr­ir­hug­að­ar á stjórn bank­ans og [henn­ar] að­komu væri ekki óskað“.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur sagt að salan á Bakkavör gæti verið eitt stærsta fjársvika­mál Íslands­sög­unnar og kallað efftir því að opin­ber rann­sókn fari fram á því hvort að líf­eyr­is­sjóð­irnir sem áttu hlut í fyr­ir­tæk­inu hafi verið blekktir.

Hægt er að lesa ítar­lega úttekt Kjarnans á bar­átt­unni um Bakkavör hér.

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár