Bitcoin hefur rokið upp

Rafmyntin Bitcoin hefur hækkað gríðar­lega hratt, eftir mikla eftir­spurnar­aukningu frá Asíu.

Hækkun á verði rafmyntarinnar Bitcoin hefur verið gríðarlega hröð.
Hækkun á verði raf­mynt­ar­innar Bitcoin hefur verið gríð­ar­lega hröð. Mynd: EPA

Rafmyntin Bitcoin hefur rokið upp í verði að undan­förnu, en gengi hennar stendur nú í 2.800 Bandaríkja­dölum, eftir að hafa farið í fyrsta skipti yfir 3.000 Bandaríkja­dali í fyrri nótt. 

Hækkun á verði rafmyntarinnar hefur verið gríðar­lega hröð, og samkvæmt umfjöllun Bloomberg má meðal annars rekja hækkunina til mikillar eftir­spurnar­aukningar á mörkuðum í Asíu

Hækkunin að undan­förnu hefur meðal annars verið rakin til þess að höft á viðskipti voru afnum í Kína í síðustu viku, en í febrúar voru settar hömlur á úttektir á myntinni.

Í mars­mánuði var gengi Bitcoin undir 1.000 Bandaríkja­dölum, og hefur hækkunin, á einungis rúmum tveimur mánuðum, verið gríðar­lega hröð. 

Stefnu­breyting yfirvalda í Japan er einnig sögð hafa haft mikil áhrif á gang viðskipta með myntina, en nú er frekar horft til þess að liðka fyrir viðskiptum með myntina heldur en hitt.

Í umfjöllun Bloomberg kemur einnig fram, að margir fjár­festar óttist bólu­myndun á markaði með rafmyntina, og þá ekki síður hversu erfitt sé að átta sig á því hver virkni undir­liggjandi markaðarins með hana sé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár