Bezos sleppir stjórnartaumunum hjá Amazon í sumar

Stofnandi og forstjóri Amazon-veldisins hyggst færa sig yfir í nýtt hlutverk innan fyrir­tækisins á þriðja ársfjórðungi. Andy Jessy, sem hefur starfað hjá Amazon frá 1997, tekur við keflinu.

Jeff Bezos ætlar að hætta sem forstjóri Amazon í sumar.
Jeff Bezos ætlar að hætta sem for­stjóri Amazon í sumar. Mynd: EPA.

Jeff Bezos stofnandi og forstjóri bandaríska stór­fyrir­tækisins Amazon ætlar að skipta um hlutverk í sumar og færa sig yfir í hlutverk stjórnar­formanns hjá fyrir­tækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Amazon.

Þar segir að Andy Jessy, sem í dag er æðsti yfirmaður skýja­vinnslu­deildar fyrir­tækisins, verði næsti forstjóri. Hann mun taka við keflinu af Bezos í upphafi þriðja ársfjórðungs.

Jessy hefur starfað hjá Amazon allt frá árinu 1997 og hefur löngum verið talinn líklegastur til þess að verða næsti forstjóri, þegar Bezos myndi stíga frá daglegum rekstri Amazon-veldisins fyrir fullt og allt. Nú er ljóst hvenær það verður.

Geispið besta hrósið

Í tilkynningunni frá Amazon er haft eftir Bezos að Amazon sé það sem það sé í dag vegna nýjunganna sem það hafi komið með fram á sjónar­sviðið.

„Ef þú framkvæmir hlutina rétt þá verður óvænt nýsköpun orðin venjuleg innan fárra ára. Fólk geispar. Þetta geisp er besta hrós sem uppfinninga­maður getur fengið,“ er haft eftir Bezos, í tilkynningunni frá Amazon.

Þar segir hann einnig að hann telji Amazon aldrei hafa verið jafn skapandi og því sé þessi tíma­punktur kjörinn til að hann sjálfur taki að sér nýtt hlutverk.

Bezos stofnaði Amazon árið 1994, í upphafi einfald­lega sem rafræna bókabúð. Síðan þá hefur fyrir­tækið heldur betur vaxið og er í dag orðið stærsta netverslunar­fyrirtæki í heimi, auk þess sem fyrir­tækið hannar og fram­leiðir margskonar vörur undir eigin vörumerki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár