22 létust á einum degi í Svíþjóð: Sænsk stjórnvöld vænd um fórna mannslífum með stefnu sinni

62 einstak­lingar eru nú látnir í Svíþjóð út af kóróna­veirunni. Sænsk stjórn­völd hafa verið gagnrýnd fyrir stefnu sína gegn kóróna­veirunni sem meðal annars gengur út á að byggja upp hjarð­ónæmi hjá sænsku þjóðinni. Sænskir vísinda­menn hafa kallað stefnuna „kalkúleraða“ og „kaldlynda“ á meðan sóttvarnar­læknir ríkisins segir að það geti vel farið saman að vernda gamla og veika fyrir veirunni að reyna að ná hjarð­ónæmi samtímis.

Hjarðónæmishugmyndin er góð
Hjarð­ó­næm­is­hug­myndin er góð Anders Tegnell, smt­sjúk­dóma­læknir sænska rík­is­ins, segir að hug­myndiin um hjarð­ó­næmi sé góð og að það sé ekki mót­sögn að vinna með þá hug­mynd sam­tímis og hug­mynd­ina um að tak­marka smit­hættu meðal aldr­aðra og sjúka.

Alls létust 22 einstaklingar vegna kóróna­veirunnar í Svíþjóð í gær og aldrei hafa eins margir fallið frá á einum degi frá því að útbreiðsla kórónu­veirunnar hófst í landinu. Fyrsta dauðsfallið í Svíþjóð út af kóróna­veirunni átti sér stað þann 11. mars og hafa dagleg andlát vegna veirunnar verið undir 10 allt þar til í fyrradag þegar 13 létust. Þessi tala snar­hækkaði svo frá þriðjudegi til miðvikudags og fór upp í 22 andlát á einum degi. 62 einstaklingar hafa nú látist í Svíþjóð vegna kóróna­veirunnar.  Meðal­aldur þeirra sem látist hafa er svipaður og í öðrum löndum, eins og Ítalíu til dæmis, rúmlega 80 ár. 

Á sama tíma og tíðni dauðsfalla hefur aukist aukast staðfest smit verulega á milli daga í Svíþjóð. Staðfest smit í Stokk­hólmi jukust til að mynda um 11 prósent á milli þriðjudags og miðvikudags, eða um meira en 100, og staðfest smit í landinu jukust um 227. Tekið skal fram að um er ræða staðfest smit, þar sem stjórn­völd í Svíþjóð hafa ekki þá stefnu að prófa sem flesta heldur eingöngu þá sem eru það sjúkir að þeir þurfa að leita sér læknis­aðstoðar. Staðfest smit í Svíþjóð eru enn sem komið er 2.562, þar af 1.070 í Stokk­hólmi.

Til saman­burðar eru staðfest kóróna­veirusmit á Íslandi 737 en íbúa­fjöldinn á Íslandi er um það bil 1/30 af íbúa­fjölda Svíþjóðar. Þar af leiðandi má nánast fullyrða að staðfest smit í Svíþjóð séu verulega vanmetin. 

22 lét­ust í gærGrafið sýnir útbreiðslu stað­festra til­fella af Covid í Svíþjóð og fjöldi lát­inna dag frá degi.

„En þetta er ansi kaldlynd stefna þar sem fórnar­kostnaðurinn felur í sér að mörg hundruð, ef ekki þúsund, einstaklingar munu láta lífið“

Gagnrýni á stefnu stjórnvalda

Gagnrýnin umræða fer nú fram í Svíþjóð um stefnu stjórn­valda gegn kórónaveriunni. Sá sem verður helst fyrir þeirri gagnrýni er Anders Tegnell, sóttvarnar­læknir sænska ríkisins. Tegnell hefur sagt að höfuð­markmið sænskra heilbrigðis­yfirvalda sé ekki að byggja upp hjarð­ónæmi hjá Svíum með því að leyfa veirunni að dreifa sér meðal yngra fólks og eða heilbrigðara sem ætla megi að verði ekki mjög veikt af henni. „Megin­markmið snýst ekki um það [hjarð­ónæmi] heldur er megin­taktíkin að smitin dreifist hægt og yfir langt tímabil og að álag á sjúkra­húsin verði ekki of mikið. Þessi tvö markmið eru í mótsögn við hvort annað […] Sem hugmynd er hjarð­ónæmi mjög góð,“ sagði Tegnell við Svenska Dagbladet þann 15. mars þegar þrír Svíar höfðu látist úr COVID-19. 

Tegnell var með orðum sínum að svara mati fyrirrennara síns í embætti sóttvarnar­læknis, Anniku Linde, sem sagði að stefnan byggði sannarlega á hjarð­ónæmis­hugmyndinni. „Ég skil stefnu heilbrigðis­yfirvalda þannig að verið sé að reyna að ná hjarð­ónæmi, að eins margir eigi að smitast og mögulegt er og þar með verða ónæmir fyrir veirunni, án þess þó að verða fársjúkir. Þá er mikilvægt að lengja það tímabil sem ætla má að fólk smitist og gæta þess að ekki of margir verði sjúkir samtímis til að álagið á heilbrigðis­kerfið verði ekki of mikið,“ sagði Linde við Svenska Dagbladet fyrr í mars. 

Bretland, eða ríkis­stjórn Boris Johnson forsætis­ráðherra, var með hjarð­ónæmis­hugmyndina sem opinbera stefnu sína til að berjast gegn kóróna­veirunni þar til skýrsla háskóla í Englandi sýndi fram á að stefnan gæti leitt 250 þúsund dauðsfalla. Þá breytti breska ríkis­stjórnin um stefnu. 

Áhrif á daglegt líf minni

Stefna stjórn­valda í Svíþjóð, sem vakið hefur eftirtekt langt út fyrir landsteinanna, virðist með öðrum vera að ná hjarð­ónæmi meðal þjóðarinnar en þetta er talið þýða að viss hluti þjóðarinnar verði þar með ónæmur fyrir veirunni til framtíðar, geti ekki fengið hana aftur og geti þar af leiðandi ekki verið smitberar fyrir hana. Þessi taktík stjórn­valda byggir líka á því að hugsanlegt sé að veiran breiðist út aftur í haust og ef hjarð­ónæmi næst nú þá verði tjónið af þeirri útbreiðslu ekki eins mikið í fram­tíðinni. 

Svíþjóð hefur valið að ganga ekki eins langt í aðgerðum til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar og flest önnur lönd í Evrópu hafa gert. Útbreiðsla kóróna­veirunnar hefur enn sem komið er haft minni áhrif á daglegt líf í Svíþjóð en í löndunum í nágranna­löndunum Noregi og Danmörku til dæmis.  Svíar hafa í raun ekki fylgt þeim tillögum sem Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin (WHO) hefur sett fram til að berjast gegn útbreiðslu kóróna­veirunnar. 

Samkomu­bannið í Svíþjóð miðast til dæmis ennþá bara við 500 manns, á meðan það miðast til dæmis við 2 í Þýska­landi og 20 á Íslandi; leik­skólar og skólar eru ennþá opnir þó framhalds­skólar og háskólar hafi tekið upp fjar­kennslu en til saman­burðar var grunn- og leik­skólum í Finnlandi loks lokað á miðvikudaginn; líkams­ræktar­stöðvar og sund­laugar eru ennþá opnar og er stærsta líkamsræktarstöð Norður­landanna, SATS, til dæmis að opna aftur í dag eftir að hafa verið lokuð í tæpar tvær vikur. 

Kannski best að gera ekki neittKári Stef­áns­son er gagn­rýn­inn á stefnu sænskra stjórn­valda út af Covid en vonar að hann hafi rangt fyrir sér og að kannski sýni það sig að best sé að gera ekki neitt til að verj­ast smit­hætt­unni.

Lokanir og eða hjarðónæmi?

Hópur vísinda­manna birti í gær opið bréf til ríkis­stjórnarinnar í Svíþjóð þar sem skorað var á hana að taka upp harðari varnar­aðgerðir gegn útbreiðslu veirunnar. Meðal annars var skorað á stjórnina að gera fleiri prófanir á mögulega sýktum einstaklingum í stað þess að eingöngu prófa þá sem eru það sjúkir að þeir þurfa að leita sér læknis­aðstoðar, sem og heilbrigðis­starfsfólk. 

Kjarninn í gagnrýni margra á stefnu stjórn­valda er að stefna þeirra sé í raun að byggja upp hjarð­ónæmi fyrir kóróanveirunni hjá sænsku þjóðinni samtímis og að áhættu­hópar eins og gamalt og langveikt fólk með viðkvæm ónæmis­kerfi eru varðir fyrir veirunni með aðgerðum. Skorað er á eldri borgara og fólk með undir­liggjandi sjúkdóma að halda sig heima hjá sér sem og þá sem finna fyrir minnstu flensu­einkennum. Gagnrýnin byggir því á að stjórn­völd séu með tvíþætta stefna að þessu leyti og séu í reynd að stíla um of inn á hjarð­ónæmis­nálgunina án þess að það sé opinber­lega sagt. 

Einn af vísinda­mönnunum sem skrifaði opna bréfið til sænsku stjórnarinnar segir til dæmis um þetta við sænska blaðið Dagens Nyheter: „Við fáum það á tilfinninguna að stjórn­völd vilji að smit dreifi sér til að ónæmi gegn smitum náist. En þetta er ansi kaldlynd stefna þar sem fórnar­kostnaðurinn felur í sér að mörg hundruð, ef ekki þúsund, einstaklingar munu láta lífið,“ segir maðurinn, Olle Kampe, ónæmis­fræðingur við Karolinska Institutet í Stokk­hólmi. 

Annar vísinda­maður sem hefur gagnrýnt stefnu sænskra stjórn­valda er Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, sem hefur sagt að stefna yfirvalda þar í landi gangi út á að gera ekki neitt. Kári gagnrýnir Svía fyrir að gera ekki fleiri prófanir á íbúum til að athuga hvort þeir séu með sjúk­dóminn og að með þessu sé Svíþjóð ekki að gera nóg til að hamla útbreiðslu veirunnar.  „Vonandi mun ég þurfa að taka gagnrýni mína á Svíþjóð til baka. Kannski er rétt að gera bara ekki neitt, það krefst líka ákveðins þors,“ sagði Kári við sænska ríkis­útvarpið fyrir nokkrum dögum. 

Forsíða FokusForsíða sænska tíma­rits­ins Fókus súmmerar ágæt­lega upp umræð­una um stefnu Sví­þjóðar í Coviid-bar­átt­unni. Sumir vís­inda­menn vilja meina að stfenan byggi öðrum þræði á hag­rænum áhyggjum á meðan sænski sótt­varn­ar­lækn­ir­inn seigr að stefnan byggi ein­göngu á umhyggju fyrir heild­ar­heilsu þjóð­ar­innar.

Peningana eða lífið? 

Annar vísinda­maður, smit­sjúkdóma­fræðingurinn Joachim Rocklöv, sem er prófessor við Háskólann í Umeå, hefur spurt þeirrar spurningar í lokuðum umræðu­hópi sem sænskir fjöl­miðlar fengu aðgang að hvort þessi stefna stjórn­valda byggi á efnahags­legum forsendum; hvort markmiðið sé frekar að vernda sænskt atvinnulíf en að bjarga manns­lífum. „Þýðir þetta að þetta er kalkúleruð niður­staða sem ríkis­stjórnin og land­læknis­embættið hafa komist að í sameiningu og þeim finnst bara í lagi? Hversu mörgum manns­lífum eru þeir tilbúnir að fórna í stað þess að loka samfélaginu alveg með tilheyrandi áhættu fyrir efnhagslífið í landinu?“

Anders Tegnell hefur vísað þeirri gagnrýni á bug að stofnunin sem hann stýrir taki efnhagsleg atriði inn í myndina þegar stefna gegn kóróna­veirunni er metin. „Við höfum alla tímann unnið hörðum höndum að því að heilsa þjóðarinnar sé sem best. Að hugsa um efnahags­lífið er hlutverk annarra,“ sagði Tegnell við sænska ríkis­útvarpið fyrir nokkrum dögum.

Hann sjálfur hefur sagt þá felst ekki mótsögn í því að vinna með báðar hugmyndirnar samtímis, að takmarka áhrifin af veirunni á gamalt fólk og sjúkt með vissum aðgerðum, á sama tíma og stílað er inn á að hjarð­ónæmi náist. Tegnell hafnar því hins vegar alfarið að þessi taktík hafi eitthvað með efnahagsleg sjónarmið að gera og hefur heldur enginn sýnt fram á að heilbrigðis­yfirvöld í Svíþjóð taki hagræna þætti með í reikninginn í aðgerðum sínum. 

„Enginn getur með fullvissu sagt hvaða leið er best.“

Svarið liggur í framtíðinni

Alveg ljóst er hins vegar að til skamms tíma þá hefur stefna stjórn­valda í Svíþjóð skárri áhrif á sænskt efnahagslíf en að loka samfélaginu alveg eða nær alveg eins, og gert hefur verið í mörgum Evrópu­löndum. En hvort þetta sé rétt taktík er erfitt að segja á þessari stundu. Vegna þessa hefur einn af gagnrýndendum stefnunnar, stærðfræði­prófessorinn Magnus Carlsson sagt að sænsk stjórn­völd séu að spila „rússneska rúllettu“ með mannslíf vegna þessarar stefnu sinnar. 

En hver hefur rétt fyrir sér? Á þessari stundu er ekki hægt að fullyrða neitt um það. Kannski mun tíminn leiða í ljós að Anders Tegnell og Svíar eru að gera rétt með þessari stefnu sinni, eins og til dæmis Kári Stef­ánsson útilokar ekki.

Í viðtali við Svenska Dagbladet í dag segir þýski prófessorinn Gérard Krause, sem er sérfræðingur í smit­sjúkdómum, að ómögulegt sé að segja til um þetta núna. „Enginn getur með fullvissu sagt hvaða leið er best. En sænska leiðin getur verið árangursrík. Þá verður samfélagið hins vegar að sætta sig við að manneskjur muni deyja vegna smitsins. [...] Ef samfélagið samþykkir þetta og sættir sig við það samtímis að stór hluti þjóðarinnar smitist og verði ónæmur þá getur heildar­stefnan vel virkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár