Bezos ríkasti maður sögunnar - Gæti keypt höfuðborgarsvæðið allt tvisvar

Jeff Bezos, 54 ára gamall Bandaríkja­maður, er sá fyrsti í sögunni sem er á lista Forbes með eignir upp á meira en 100 milljarða Bandaríkja­dala. Eignir hans nú eru vel rúmlega það, eða nálægt 130 milljörðum Bandaríkja­dala.

Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon, er ríkasti maður heims, samkvæmt nýjum lista Forbes fyrir auðugustu einstaklinga heimsins. Hann er sá fyrst í sögunni sem á eignir upp á meira en 100 milljarðar Bandaríkja­dala, en næstur á eftir honum er nágranni hans við Lake Washington, á Seattle svæðinu, Bill Gates, stofnandi Microsoft.

Eignir hans nema um127,8 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 13 þúsund milljörðum króna. Ólíkt mörgum öðrum sem eru á listanum, eru eignir Bezos að langmestu leyti óskuldsettar. Yfir 90 prósent eigna hans eru í hluta­bréfum í Amazon en hann á ennþá 17 prósent hlut í smásölu- og tækni­risanum.

Markaðs­virði Amazon hefur vaxið með ólíkindum hratt, frá því að Bezos stofnaði fyrir­tækið árið 1994, þá sem netverslun með bækur. Fyrir­tækið varð til eftir að hann ferðaðist þvert yfir Banda­ríkin, frá New York til Seattle, eftir að unnið hjá vogunar­sjóðum á Wall Street á árunum 1986 til 1994.

Í dag, tæplega aldar­fjórðungi síðar, er Amazon virði 747 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 75 þúsund milljörðum króna.

Það er upphæð sem er 80 falt virði íslenska hlutabréfa­markaðarins í heild sinni, bara til að setja hana í samhengi við einhverja þekkta stærð í íslenskum veruleika.

Ef Bezos myndi selja hlutabréf sín í Amazon, á núverandi gengi, þá gæti hann stað­greitt allar fasteignir og lóðir á höfuð­borgar­svæðinu, tvisvar sinnum, sé mið tekið af fasteigna­mati ríkisins fyrir árið 2018.

Virði allra fasteigna var tæplega 7.300 milljarðar en á höfuð­borgar­svæðinu var það um 6 þúsund milljarðar.

Á undan­förnu ári jókst virði Amazon um tæplega 60 prósent, og hefur vöxturinn í markaðs­virði verið stanslaus. Fjár­festar virðast horfa til þess að Amazon hafi mikla möguleika í sínu viðskipt­líkani, og að flestir geirar hagkerfa heimsins muni með einum eða öðrum hætti tengjast þessu síbreytilega og stækkandi fyrirtæki, sem nú er með um 400 þúsund starfs­menn, að langmestu leyti í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár