Sigraðu kommentakerfið

Kommenta­kerfið verður afhent í húsa­kynnum Stundarinnar kl. 15 í dag. Sá sem á besta kommentið við þessa frétt fær spilið að gjöf.

Í dag afhendir Óli Gneisti Sóleyjarson, leikja­fræðingur, nýtt spil í húsa­kynnum Stundarinnar. Spilið nefnist #Kommenta­kerfið og byggir á raun­verulegum athuga­semdum frá íslenskum netverjum. Fjár­mögnun fyrir spilið fór fram á fjáröflunar­síðunni Karolina Fund og gekk vonum framar. Þar sem #Kommenta­kerfið byggir á raun­verulegum athuga­semdum af frétta­miðlum fannst eigendum Stundarinnar við hæfi að spilið yrði afhent á raun­verulegum fjölmiðli, sem einnig var stofnaður með tilstuðlan hópfjármögnunar á Karolina Fund. Spilið verður afhent kl. 15 á skrif­stofu Stundarinnar að Austur­stræti 17. 

„Mig langaði fyrst bara að prufa hvort hægt væri að þýða Cards Against Humanity en mistókst. Síðan datt mér í hug að yfirfæra hugmyndina á Útvarp Sögu, þar sem menn skiptust á að vera útvarps­maður og innhringjandi. Sú hugmynd hvarf mjög fljótt og í staðinn kom Kommenta­kerfið.

Ég hafði nokkrum sinnum tekið þátt í svona fjár­mögnunum. Þar á meðal þegar Stundin fór af stað. Það heillaði mig mjög að þurfa ekki að skipta við banka. Með því að setja hugmyndina á Karolina Fund gat ég bæði fjár­magnað spilið og komist að því hvort hugmyndin næði til fólks. Það gekk rosalega vel að safna. Ég endaði í næstum 150% af markinu og með því að leggja fram eigið sparifé líka gat ég prentað ágætt upplag,“ segir Óli Gneisti. „Þessa daganna er heimili mitt undirlagt spilum og vinir og ættingjar mínir eru að hjálpa mér að raða í kassa.“

Viltu vinna spil?

Einn heppinn netverji á kost á að vinna eintak af spilinu. Sá sem fær flest „like“ við athugasemd sína í kommenta­kerfinu við þessa frétt fær #Kommenta­kerfið að launum. Tilkynnt verður um sigurvegara á Facebook-síðu Stundarinnar kl. 17 í dag. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár