Ragnheiður Elín þáði boðsferð frá WOW air

Flaug til Banda­ríkj­anna í boði WOW vegna beiðnar frá flug­vell­inum í Washington. Flug­völl­ur­inn borg­aði hótel í tvær nætur. Siða­reglur ráð­herra mæla gegn boðs­ferðum.

Siðareglur mæla gegn boðsferðum
Siða­reglur mæla gegn boðs­ferðum Siða­reglur ráð­herra mæla gegn því að þeir þiggi boðs­ferðir. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir þáði slíka ferð frá flug­fé­lag­inu WOW um þar síð­ustu helgi. Hún sést hér ásamt Skúla Mogensen, eig­anda og for­stjóra WOW, og Birni Óla Hauks­syni, for­stjóra Isavia, klippa á borða á Kefla­vík­ur­flug­velli til að fagna nýju flug­leið­inni til Washington.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir,  iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, fór til Washingon-borgar í Banda­ríkj­unum í boði flug­fé­lags­ins WOW-air um síð­ustu helgi. Um var að ræða jóm­frú­ar­flug WOW til Baltimore Washington fug­vallar. Flug­fé­lagið greidd fyrir flug­miða ráð­herr­ans en flug­völl­ur­inn greiddi hót­el­kostnað ráð­herr­ans í tvær nætur. Eig­in­maður Ragn­heiðar Elínar fór sömu­leiðis með í ferð­ina og greiddi Ragn­heiður Elín flug­miða hans. Þetta kemur fram í svari frá upp­lýs­inga­full­trúa WOW air við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um ferð­ina. 

Orðrétt segir í svar­inu frá flug­fé­lag­inu: „WOW air greiddi fyrir flug­miða ráð­herra og Baltimore Washington flug­völlur greiddi hót­el­kostnað í tvær nætur. Ragn­heiður Elín borg­aði flugið fyrir eig­in­mann sinn að öllu leiti sjálf með sínu per­sónu­lega kredit­korti. Það sama má segja með aðra boðs­gesti en WOW air greiddi fyrir flugið en Baltimore Washington flug­völlur greiddi hót­el­kostnað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár