Óttalausa stúlkan verður áfram á Wall Street

Áhrifa­mikið listaverk sem minnir á það að langt er í að jafnrétti sé náð á fjármála­markaði.

Borgar­stjórinn í New York, Bill De Blasio, tilkynnti um það í gær, að lista­verkið Óttalausa stúlkan fengi að standa í það minnsta fram í febrúar á næsta ári, beint gegn hinu fræga nauti (Chargin Bull) á Wall Street, eftir Arturo Di Mocia.

Í tilkynningu sagði De Blasio að verkið stæði gegn yfir­valdinu og hefði skapað líflegar og mikil­vægar umræður um hlutverk kynjanna á vinnu­markaði í Banda­ríkjunum, og ekki síst á fjármála­markaði.

Verkið er eftir Kirsten Visbal og var það unnið fyrir eigna­stýringar­félagið SSGA, sem vildi með verkinu minna á að konur gætu tekið að sér fleiri ábyrgðar­störf á fjármála­markaði, ekki síst stjórnar­störf. Um fjórðungur af þrjú þúsund fyrir­tækjum á fjármála­markaði í Banda­ríkjunum hefur enga konu í stjórn og í langflestum tilvikum eru konur í miklum minni­hluta.

Nautinu var upphaf­lega komið fyrir 1989 og átti það að tákn styrk fólksins í Banda­ríkjunum, eftir mikið fall á mörkuðum árið 1987 með tilheyrandi niður­sveiflu í efnahags­lífinu. Í seinni tíð hefur það hins vegar orðið táknmynd ótemjunnar á Wall Street, þar sem fjármála­fyrirtækin ráð ríkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár