Ævintýraleg atburðarás í Hvíta húsinu

Óhætt er að segja að mikið hafi gengið á í Hvíta húsinu í þessari viku. Öll spjóta standa nú á Donald Trump Bandaríkja­forseta.

Frá því á mánudag þegar Washington Post greindi fyrst frá því að Donald J. Trump Bandaríkja­forseti hefði lekið leyni­legum upplýsingum um hin svonefndu ISIS hryðjuverka­samtök, þá má segja að uppnám hafi verið í Hvíta húsinu.

Heimildar­menn Washington Post voru embættis­menn sem ekki vildu koma fram undir nafni, og voru upplýsingarnar sagðar afar viðkvæmar. Trump átti að hafa deilt þeim með Sergey Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússa, og Sergey Kislyak, hinum umdeilda sendi­herra Rússa í Washington DC.

Síðan þessi frétt birtist fór af stað atburðarás sem ekki sér fyrir endann á ennþá.

Nokkur atriði má þar telja til.

1. Donald Trump brást æfur við fréttum Washington Post. Hann sagði fréttirnar rangar og þær væru dæmi um „falskar fréttir“. Undir þetta tóku starfs­menn hans í Hvíta húsinu, meðal annars fjölmiðla­fulltrúinn Sean Spicer. Á fundi í Hvíta húsinu fóru ráðgjafarnir Stephen Bannon, Mike Dubke, Sarah Sanders og fyrr­nefndur Spicer afsíðis um tíma, og heyrðu blaðamenn þá öskur og læti innan úr herberginu. Eitthvað var augljós­lega ekki eins og það átti að vera.

2. Wall Street Journal greindi síðar enn meira frá málinu í gær, og sagði að upplýsingarnar sem Trump lak í Rússa hafi sannarlega verið háleynilegar og taldar viðkvæmar, því þær voru komnar frá ísraelsku leyni­þjónustunni Mossad og yfir­völdum í Ísrael. Líkt og var með fréttir Washington Post þá var þessu mótmælt í Hvíta húsinu.

3. Í gærkvöldi tók þetta tiltekna mál, síðan nýja stefnu. Þegar Trump viðurkenndi, fúslega, að hafa deilt viðkvæmum leyni­legum upplýsingum með Rússum. Hann sagðist síðar, á Twitter aðgangi sínum, að hann hefði gert þetta af „mannúðar­ástæðum“ til að reyna að fá Rússa til meira samstarfs í barátt­unni gegn ISIS. Fyrra tal forsetans og starfs­manna hans, um falskar fréttir, reyndist því ekki á rökum reist.

4. Í gærkvöldi og nótt, að íslenskum tíma, voru síðan sagðar fréttir af því að í minnis­blaði James Comey, sem Trump rak úr starfi yfirmanns FBI á dögunum, kæmi fram að Trump hefði krafist þess að rannsókn alríkis­lögreglunnar á tengslum Michael Flynn, hins brott­rekna fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafa, við Rússa, yrði hætt. Þingmenn úr báðum flokkum, Demókrata og Repúblikana, hafa lagt fram kröfu um að öll gögn um samskipti forsetans við Comey verði lögð fram og þingmenn fái möguleika á því að greina þau. Sérfræðingar sem Washington Post ræddi við, sögðu að mögulega væri Trump að brjóta lögin með þessum afskiptum af rann­sókninni, ef þessar upplýsingar reyndust réttar.

5. Repúblikaninn John McCain sagði að þessi atriði sem tengdust leka hans á upplýsingum til Rússa og meintum afskiptum af rann­sókninni á tengslum Flynn við Rússa, væru alvarleg og að Banda­ríkjaþing þyrfti að fá réttar upplýsingar um það sem hefði gerst. Samkvæmt breska ríkis­útvarpinu BBC á hann að hafa sagt við valda gesti í kvöld­verði á dögunum, að málin sem tengdust Trump, væru nú á svipuðum stalli og Watergate hneykslið, sem að lokum leiddi til þess að Richad Nixon, þáverandi forseti Banda­ríkjanna, fór úr embætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár