WOW air birtir ársuppgjör seinna en í fyrra af „engri ástæðu“

WOW air skil­aði upp­gjöri í febr­úar í fyrra, en hefur ekki skilað upp­gjöri í ár. Sonur banka­stjóra Arion banka, við­skipta­banka WOW air, er lyk­il­starfs­maður hjá flug­fé­lag­inu.

Afkomu 2016 var flaggað
Afkomu 2016 var flaggað WOW air flagg­aði góðri afkomu sinni 2016 í lok febr­úar 2017. Afkoma 2018 liggur hins vegar ekki fyrir en Skúli Mogensen segir enga ástæðu vera fyrir því. Mynd: Sigurjón Ragnar

Skúli Mogensen, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi flug­fé­lags­ins WOW air, segir að það sé „engin ástæða“ fyrir því af hverju flug­fé­lagið hefur ekki greint frá árs­upp­gjöri sínu fyrir árið 2017. Í fyrra, eftir að WOW air hafði skilað 4,3 millj­arða bók­færðum hagn­aði árið 2016, greindi flug­fé­lagið frá ársnið­ur­stöðu sinni í lok febr­úar 2017. Stundin leit­aði svara við þessu mis­ræmi í miðlun upp­lýs­inga um afkomu WOW air á milli ára en fær þau svör frá Skúla að það sé engin ástæða fyrir þessum mun. 

Tals­verðar sögu­sagnir hafa verið uppi um að gang­ur­inn hafi verið erf­ið­ari hjá WOW air í fyrra en árið þar á undan. Meðal ann­ars er hermt að við­skipta­banki WOW, Arion, hafi áhyggjur af stöð­unni. Skúli segir að hann viti ekki til þess að þetta sé rétt: „Kannast ekki við það.“

Kemur ekki að fjármögnun WOW

Arion er við­skipta­banki WOW á Íslandi og hefur meðal ann­ars lánað fé …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár