Hörður „gengst við því“ að vera sá sem misnotaði yfirburðarstöðu sína gagnvart Jódísi

Hörður J. Oddfríðarson, dagskrár­stjóri göngu­deildar SÁÁ á Akureyri, segir í samtali við Stundina að hann gangist við því að vera maðurinn sem misnotaði yfirburðar­stöðu sína gagnvart Jódísi Skúla­dóttur þingkonu Vinstri grænna. Hörður er kominn í leyfi frá störfum hjá SÁÁ og hefur í dag sagt sig frá ýmsum starfs­skyldum, meðal annars sem formaður fulltrúa­ráðs Samfylk­ing­ar­innar. Þá hefur hann sagt sig úr stjórn Sund­sambands Íslands.

Hörður J. Oddfríðarson segist í samtali við Stundina hafa „dregið við sig“ að svara fyrir­spurnum um hvort hann væri maðurinn sem Jódís Skúla­dóttir, alþingis­kona nefndi í status á Facebook í fyrradag,  „Ég gengst við því“ segir Hörður hinsvegar í samtali við Stundina og bætir við að hann sé að klára yfir­lýsingu þess efnis sem hann muni svo senda frá sér. Valgerður Rúnars­dóttir, forstjóri Vogs segir að Hörður sé kominn í leyfi frá störfum sínum fyrir SÁÁ og málið sé til skoðunar hjá samtökunum.  

Jódís lýsti því að maður sem misnotaði yfirburða­stöðu sína gagnvart henni hefði tekið á móti henni þegar hún var send í eftir­meðferð á Staðar­felli þremur árum síðar.

„Þegar ég mætti með rútunni í eftir­meðferð á Staðar­fell í Dölum tók á móti mér maður sem var kanóna innan SÁÁ, sá sami hafði misnotað yfirburð­aðstöðu sína gagnvart mér þrem árum fyrr. Ég hafði þá verið 17 ára, hann 30 ára. Hann, edrú, gaf mér áfengi, káfaði á mér og tróð tungunni upp í mig. Ég forðaði mér en hann mætti heim til mín um nóttina og vildi komast inn.“

Á hans ábyrgð að stíga fram 

Jódís sagði nóg komið og kallaði eftir aðgerðum því „hvert ömurlega málið hafi rekið annað árum saman innan SÁÁ“.  Hörður segir í samtali við Stundina að hann hafi viljað að taka tillit til Jódísar og því ekki sagt frá því að hann væri maðurinn sem um ræddi.  ,,En ég gengst við þessu og hefði gjarnan viljað ræða við hana en ég rengi að sjálfsögðu ekki frásögn Jódísar á neinn hátt og mun birta yfir­lýsingu um málið hið fyrsta.” segir Hörður. 

„Ég gengst við því“

Stundin náði tali af Jódísi og bar þessi orð undir hana. „Ég tók ákvörðun um að nafn­greina hann ekki af því að það er á hans ábyrgð að stíga fram.“

Hörður hefur sagt sig frá öllum trúnaðar­störfum fyrir Samfylkinguna vegna málsins, en hann var formaður fulltrúa­ráðs flokksins. 

Hörður segist einnig vera búinn að segja sig úr stjórn Sund­sambands Íslands  en hann var formaður sambandsins um árabil. „Mold­viðrið í SÁÁ undan­farið gerir það að verkum að ég ætla að draga mig í hlé frá trúnaðar­störfum fyrir Samfylkinguna og úr Sund­sambandinu.“

Heldur áfram hjá SÁÁ  enn um sinn

Aðspurður hvort hann ætli að halda áfram að vinna hjá SÁÁ þar sem hann er dagskrár­stjóri göngu­deildar á Akureyri segist hann halda áfram, enn um sinn, að sinna þeim verkum sem yfirmenn sínir hjá SÁÁ muni fela sér.  „Þetta samtal er ekki búið milli mín og minna yfirmanna hjá SÁÁ,“ segir Hörður.

Hann segist hafa gengið of langt í að gagnrýna Sjúkra­tryggingar Íslands en sem kunnugt er hafa Sjúkra­tryggingar kært SÁÁ til saksóknara vegna þúsunda tilhæfu­lausra reikninga og krafið samtökin um 174 milljóna króna endur­greiðslu. „Sú skoðun tengist að nokkru leyti verkefnum sem ég hef haft með að gera og kostar mikla vinnu og yfirlegu. Ég þarf eins og aðrir þegar ég sé fréttir af því að verið sé að kæra það að setjast yfir það og athuga hvort einhver fótur sé fyrir því þegar saksóknari bankar uppá,“ segir Hörður og aðspurður um gagnrýni sína á störf Sjúkra­trygginga í Frétta­blaðinu fyrir nokkrum dögum síðan vegna málsins. Þar sakaði Hörður Sjúkra­tryggingar Íslands um að hafa framið brot við rannsókn málsins. 

Þá segist hann enn vera á þeirri skoðun að starfs­stétt ráðgjafa sé sýndur hroki í bréfi SÍ en það skipti ekki máli þegar upp sé staðið. „Ég var of fljótur á mér þegar ég gagnrýndi SÍ sem er bara að vinna sína vinnu,“ segir Hörður. 

Valgerður Rúnars­dóttir, forstjóri Vogs stað­festir við Stundina að Hörður sé enn starfandi hjá SÁÁ en að málið sé til skoðunar þar.  Hún segir að rannsókn á málinu hafi byrjað hjá SÁÁ þegar hún sá skrif Jódísar Skúla­dóttur alþingis­konu. Valgerður segist hafa sent Jódísi skilaboð og beðið um að fá að heyra í henni.  „Ég spurði hvort sá sem hún væri að skrifa um væri starfs­maður hjá SÁÁ núna. Hún staðfesti það og þá fór af stað rannsókn á málinu hér hjá okkur. Atburðurinn sem Jódís segir frá átti sér stað áður en starfs­maðurinn kom til vinnu hjá SÁÁ, hins vegar var hann sannarlega að vinna hjá samtökunum þegar Jódís kom í meðferð eins og hún lýsir sjálf,“ segir Valgerður og bætir við að nú sé verið að skoða málið út frá starfseminni í dag. , ,Verklag í þessum málum er gjör­breytt hjá samtökunum en það er alltaf hægt að gera betur og læra af því sem gerst hefur í fortíðinni“ segir Valgerður Rúnars­dóttir, forstjóri Vogs.

Hörður J. Oddfríðarson sendi eftir­farandi tilkynningu eftir að Stundin birti frétt um málið síðdegis: 

Yfir­lýsing varðandi sögu Jódísar Skúla­dóttur alþingis­manns 

  

Jódís Skúla­dóttir, þingmaður VG, hefur greint frá atviki sem hún varð fyrir þegar hún var sautján ára og undir­ritaður þrítugur. Þremur árum eftir þetta atvik átti sér stað fór hún í meðferð og þá tók ég á móti henni, þá orðinn starfs­maður SÁÁ. 

 

Ég fór sjálfur í meðferð skömmu eftir að þetta atvik átti sér stað og hóf störf hjá samtökunum skömmu síðar.  


Ég rengi ekki frásögn Jódísar á nokkurn hátt og bið hana afsökunar því sem gerðist og þeim afleiðingum sem það hefur haft fyrir hana.  


Ég er í samtali við mína yfirmenn hjá SÁÁ um framtíð mína og hef óskað eftir því að úttekt verði gerð á mínum störfum þar sl. 25 ár.     

  

Akureyri 27. janúar 2022 

Hörður J. Oddfríðarson

Valgerður Rúnars­dóttir, forstjóri Vogs, hafði samband við Stundina rétt í þessu og tilkynnti að Hörður væri kominn í leyfi frá störfum sínum fyrir SÁÁ. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Það er enginn að taka hann af lífi. Auðvitað vont og leiðinlegt en hann gengst við að hafa hagað sér eins og fífl gagnvart annarri manneskju í viðkvæmri stöðu. Það er gott. Ég hef enga trú á að hann sé illmenni
    0
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Er ekki doldið langt gengið að maðurinn sé tekinn af lífi fyrir eitthvað fylleríisrugl fyrir 30 árum eða svo ef hann hefur lifað flekklausu lífi síðan og jafnvel getað nýtt reynslu sína af ruglinu til að hjálpa oðrum? Tveir alkar á fylleríi kann yfirleitt ekki góðri lukku að stýra og fáheyrt að það þurfi að neyða áfengi ofaní virka alkóhólista.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár