Vilja „bjarga heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og samgöngum frá langvinnri vanrækslu“

Katrín Jakobs­dóttir og Svandís Svavars­dóttir lögðu áherslu á uppbyggingu innviða og eflingu samneysl­unnar í ræðum sínum í kvöld.

„Við teljum svo mikilvægt að laga heilbrigðis­kerfið, samgöngurnar og mennta­kerfið að við tókumst það á hendur, við Vinstri græn undir forystu Katrínar Jakobs­dóttur, að efna til samstarfs við þá flokka sem við höfum gagnrýnt hvað mest og aldrei unnið með áður,“ sagði Svandís Svavars­dóttir, heilbrigðis­ráðherra nýrrar ríkis­stjórnar, í umræðum um stefnu­ræðu forsætis­ráðherra í kvöld. 

„Það er stundum talað um að við séum ekki að stuðla að kerfis­breytingum í þessari ríkis­stjórn. Það er rangt. Við erum að bjarga heilbrigðis­kerfinu, mennta­kerfinu og samgöngum frá langvinnri vanrækslu og ásælni peninga­aflanna. Það er búið að rétta við efnahags­lífið eftir hrunið. Eftir standa innviðirnir, margir hverjir vanræktir til langs tíma. Viðfangs­efnin eru alls staðar. Þess vegna erum við hér.“ Svandís sagði nýja ríkis­stjórn leggja áherslu á að gera við samfélags­innviðina en um leið að „virða samfélags­sáttmálann, hefja aftur á loft þá sýn okkar flestra að enginn verði skilinn eftir og vinna samkvæmt því“. 

Hún sagði að leggja þyrfti grunn að róttækri stefnu í loftslags­málum og umhverfis­málum. „Við erum að efla opinbera heilbrigðis­kerfið, hlut aldraðra og öryrkja, skólana, tungu­tæknina og náttúru­verndina. Við ætlum okkar að styrkja stöðu barna­fólks, kvenna­stétta og brotaþola kynferðis­brota. Þetta eru mikil­vægar samfélags­umbætur.“

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra lagði einnig áherslu á uppbyggingu innviða, heilbrigðis­kerfisins og mennta­kerfisins, í stefnu­ræðu sinni. „Það er eðlileg krafa að íslenska heilbrigðis­kerfið standist samanburð við það besta sem gerist í heiminum. Allir landsmenn eiga að fá notið góðrar þjónustu, óháð efnahag og búsetu og mun ríkis­stjórnin leggja áhersla á að draga úr kostnaði sjúklinga, bæta geðheil­brigðis­þjónustu sérstak­lega og forvarnir og byggja upp hjúkrunar­rými,“ sagði hún. „Í fjár­laga­frumvarpinu sem lagt var fram í dag er lögð sérstök áhersla á heilbrigðismál en nánari uppbygging hennar mun svo koma fram í þeirri fjármála­áætlun sem verður lögð fyrir þingið í lok mars á næsta ári.“

Þá sagði hún að í mennta­málum yrði ráðist í stórsókn. „Fjár­framlög til háskóla munu ná meðaltali OECD-ríkjanna árið 2020 og stefnt verður að því að þau nái meðaltali Norður­landanna fyrir árið 2025. Iðn-, verk- og starfsnám verður eflt og rekstur framhalds­skólanna styrktur í takt við það sem þeim var lofað í fjármála­áætlun þarsíðustu ríkis­stjórnar. Aðgerða­áætlun um máltækni verður fjár­mögnuð sem er alveg gríðar­lega mikilvægt mál til að íslenskan geti orðið gjaldgeng í stafrænum heimi. Þar erum við beinlínis í kapp­hlaupi við tímann enda hafa tækni­framfarir verið hraðar.“ 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár