Verkföll skerða flugumferð um alla Evrópu

Verkföll meðal starfs­manna flug­félaga og flug­umferðar­stjóra hafa raskað flug­umferð um alla Evrópu það sem af er ári. Hagsmuna­samtök flug­félaga segja tjónið vera gríðarlegt, en meðal krafna verkalýðs­félaganna eru launuð veikinda­leyfi.

Flugmenn, flugfreyjur og flugþjónar Ryanair eru ekki sáttir með kjörin sín.
Flugmenn, flug­freyjur og flug­þjónar Ryanair eru ekki sáttir með kjörin sín.

Flugmenn og flug­umferðar­stjórar í Evrópu hafa reglulega lagt niður störf það sem af er ári, en talið er að áætlanir milljónir ferða­manna hafi raskast vegna þeirra auk þess sem vænta má fleiri verkfalla. Samkvæmt hagsmuna­samtökum flug­félaga er tjón vegna verk­fallanna gríðarlegt og nemur milljörðum evra, en verkalýðs­félögin segja launað veikinda­leyfi og aflétting á ströngum sölu­skilyrðum vera meðal megin­markmiða starfs­mannanna.

Hrina verkfalla hjá Ryanair

Samkvæmt frétt Evening Standard aflýsti írska flug­félagið Ryanair 24 flugum til og frá Írlands síðasta föstudag vegna verkfalls flugmanna félagsins. Verk­föllin munu svo halda áfram í dag, en flug­freyjur og flug­þjónar munu einnig leggja niður störf í Belgíu, Portúgal og á Spáni í dag og á morgun.

Flug­félagið hefur orðið fyrir tíðum verk­föllum eftir að hafa ákveðið að samþykkja myndun verkalýðs­félaga starfs­manna sinna í desember á síðasta ári. Enn fremur hafa verkföll flug­umferðar­stjóra leitt til aflýsingar á 2.500 flugum hjá félaginu á fyrsta ársfjórðungi ársins. Á sama tíma lækkaði hlutfall stundvísra fluga Ryanair svo úr 89% niður í 75%. Framkvæmda­stjóri félagsins, Michael O‘Leary, hefur hótað að segja upp starfs­mönnum sínum ef verk­föllin halda áfram. Hann segir hætta á að vetrar­áætlun flug­félagsins raskist vegna verk­fallanna, „sem gæti leitt til minnkunar flotans á viðeigandi flug­völlum auk uppsagna,“ samkvæmt Financial Times.

O‘Leary er þó sérstak­lega í nöp við flug­umferðar­stjóra, en hann sagði þá hafa valdið „áætlunum flug­félögunum viða­miklum skaða“ og kallaði þá „verstu lögbrjótana.“ O‘Leary hefur nú þegar sagst munu leggja fram formlega kvörtun til Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins vegna Franskra flug­umferðar­stjórar sem voru í verkfalli níu helgar á fyrsta ársfjórðungi.

13,4 milljarða evra tjón síðan 2010

Hagsmuna­samtökin Airlines for Europe sendu svo frá sér frétta­tilkynningu í dag, en samkvæmt henni hafa flug­umferðar­stjórar í Evrópu lagt niður störf í 29 daga á fyrstu sex mánuðum ársins, þar sem 22 þeirra voru í Frakk­landi. Samtökin telja aflýsingarnar hafa haft áhrif á milljónir ferða­manna og lýsa þau yfir áhyggjum af því fjárhags­tjóni sem verk­föllin kunna að bera með sér nú á háannatíma ferða­þjónustunnar. Samtökin vitna einnig í nýrri skýrslu sem PriceWaterhouseCooper vann fyrir þau, en þar er efnahagslegt tjón flug­verkfalla á síðustu átta árum metið á 13,4 milljarða evra.

Ólaunað veikindaleyfi og sölumarkmið á skafmiðum

Samkvæmt regnhlífar­samtökum verkalýðs­félaga starfs­manna í samgöngum, ITF, snúast verkföll starfs­manna Ryanair meðal annars um að geta fengið launað veikinda­leyfi og þurfa ekki að fylgja hörðum sölu­markmiðum. The Guardian greindi frá þessum sölu­markmiðum í fyrra, en samkvæmt þeim varð starfs­mönnum fyrir­tækisins refsað ef þeir náðu ekki að selja ákveðið magn af ilmvatni og skafmiðum.

Samkvæmt frétt The Independent snýst kjara­barátta flugmanna Ryanair hins vegar um viðurkenningu á starfs­reynslu, launað sumar­leyfi og flutningur starfs­manna milli evrópskra og Norður-afrískra flug­stöðva.

ITF segir starfs­menn fyrir­tækisins hafa unnið við þessar aðstæður of lengi án þess að nein breyting hafi orðið þar á, þrátt fyrir yfir­lýsingar fyrir­tækisins um að svo muni verða. Ryanair gerir hins vegar lítið úr kröfum ITF og kallar þær „tilgangs­lausar,“ auk þess sem félagið bendir á marg­vísleg fríðindi sem starfs­menn þess njóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár