Íslendingar munu áfram geta sótt nám í Bretlandi

Tryggt er að íslenskir nem­endur, sem þegar stunda nám á vegum Erasmus+ áætl­un­ar­innar í Bret­landi, muni geta lokið dvöl sinni eins og fyr­ir­hugað var þrátt fyrir útgöngu Bret­lands úr ESB. Áætlað er að um 200 íslenskir háskóla­nemar stundi nám þar í landi.

Eftir útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu munu íslenskir nem­endur áfram geta sótt um að fara í grunn- eða fram­halds­nám til Bret­lands og tryggt er að íslenskir nem­endur, sem þegar stunda nám á vegum Erasmus+ áætl­un­ar­innar í Bret­landi, muni geta lokið dvöl sinni eins og fyr­ir­hugað var þrátt fyrir útgöngu Bret­lands 31. októ­ber næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Íslensk stjórn­völd fylgj­ast náið með þróun mála í tengslum við Brexit og á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær upp­lýsti mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir, rík­is­stjórn­ina um þær ráð­staf­anir sem þegar hafa verið gerðar vegna íslenskra náms­manna í Bret­landi.

„Áætlað er að um 200 íslenskir háskóla­nemar stundi nám í Bret­landi, ýmist á eigin vegum eða sem skiptinemar sem hafa fengið styrk til skipti­náms eða starfs­þjálf­unar frá mennta-, æsku­lýðs- og íþrótta­á­ætlun ESB - Erasmus+,“ segir í svar­inu.

Áhyggju­efni hversu ­fáir íslenskir ­rík­is­borgar hafa sótt um Settled Sta­tu­s

Kjarninn greindi frá því þann 21. ágúst síð­ast­lið­inn að Íslend­ing­ar, sem og aðrir rík­is­borg­arar frá ríkjum innan EES, sem flytja til Bret­lands eftir 31. októ­ber á þessu ári þurfi að greiða fyrir þjón­ustu í breska heil­brigð­is­kerf­inu (NHS) í kjöl­far ­fyr­ir­hug­aðr­ar ­út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Breskir fjöl­miðlar greindu frá því að frjáls för fólks kynni að stöðvast strax í kjöl­far útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu í lok októ­ber. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá breska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu á það hins vegar ekki við um EES-­rík­is­borg­ara sem flytja til Bret­lands fyrir þann tíma. Að sama skapi hafa fjöl­miðlar greint frá því að rík­is­borgar frá ríkjum innan EES þurf­i að greiða fyrir þjón­ustu í breska heil­brigð­is­kerf­inu í kjöl­far Brex­it en sam­kvæmt sendi­ráði Íslands á það ekki við sem búsettur eru í Bret­landi fyrir útgöngu.

Stefán Haukur Jóhann­es­son, sendi­herra Íslands í London, sagði það áhyggju­efni hversu ­fáir íslenskir ­rík­is­borgar hefðu sótt um svo­kall­að­an ­Settled Sta­tu­s en í þar­síð­ustu viku höfðu ein­göngu borist um 200 umsóknir frá Íslend­ing­um. Um­sókn­ar­frest­ur er til 31. des­em­ber 2020 en Stefán Haukur hvatti Íslend­inga til að draga það ekki of á lang­inn að sækja um, þar sem afgreiðslu­tím­i um­sókn­anna ­gæti verið lang­ur.

„Við mælum ein­dregið með því að fólk sæki um sem allra fyrst þar sem óvissa ríkir enn um útfærslu á útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þó að samn­ingar hafi náðst við bresk stjórn­völd um rétt­indi borg­ara eft­ir Brex­it þá þurfa allir sem hér dvelja og hyggj­ast gera svo áfram að hafa rétt­indi til búsetu, þ.e. ­settled sta­tu­s eða pre-­settled sta­tus,“ sagði Stefán Hauk­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár