Þórdís Lóa segir ekki ólíklegt að Viðreisn og Framsókn séu að fara að vinna saman

Oddviti Viðreisnar segir Samfylkingu, Pírata og Viðreisn eiga málefna­lega samleið í mikil­vægum mála­flokkum og að Framsókn virðist standa nærri þeim. Það sé þó ljóst að gamli meirihlutinn sé fallinn og að næstu skref séu að mynda nýjan.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, oddviti og eini borgar­fulltrúi Viðreisnar í Reykjavík, segir að það sé ekki ólíklegt að Viðreisn og Framsóknar­flokkur séu að fara að vinna saman í borginni, þótt aðrir leikir séu vissulega í stöðunni.

Hún segir ljóst að gamli meirihlutinn, sem Viðreisn var hluti af, sé fallinn og að næstu skref séu að mynda nýjan meirihluta. „Í þessum fyrstu skrefum munum við standa saman; Viðreisn, Samfylking og Píratar. Við vitum að málefna­lega eigum við samleið í mikil­vægum mála­flokkum sem snúa að framtíð borgarinnar; í skipulags­málum, samgöngu­málum og stafrænu uppbyggingunni. Þetta eru allt saman mála­flokkar þar sem Framsóknar­flokkurinn virðist standa nærri okkur, sé mið tekið af kosninga­loforðum. En slíkur meirihluti yrði annar meirihluti en sá sem er nú að líða undir lok. Það er alveg augljóst.“

Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu á Facebook sem hún birti í dag.

Tapaði manni og fylgi en er í lykilstöðu

Viðreisn fékk 5,2 prósent atkvæða á laugardag í borgar­stjórnar­kosningunum í Reykjavík og tapaði þremur prósentu­stigum frá síðustu kosningum. Það varð til þess að flokkurinn tapaði öðrum borgar­fulltrúa sínum. Flokkurinn er ákveðinni lykil­stöðu þar sem stærsti flokkurinn í Reykjavík, Sjálfstæðis­flokkurinn, getur ekki myndað meirihluta án Viðreisnar í ljósi þess að Píratar, Sósíalista­flokkur Íslands og Samfylking hafa útilokað samstarf við hann og Vinstri græn ætla að vera í minni­hluta eftir að hafa fengið fjögur prósent atkvæða.

Haldi þessi staða er eina leið Sjálfstæðis­flokks til að mynda meirihluta að ná með sér Framsókn, Viðreisn og Flokki fólksins. Viðreisn á líka möguleika að mynda sterkan 13 manna meirihluta með Samfylkingu, Pírötum og Framsóknar­flokki og þeir tveir fyrr­nefndu virðast horfa mun frekar til Viðreisnar sem samstarfs­flokks en Sósíalista­flokks Íslands, sem fékk tvo borgar­fulltrúa kjörna.

Enginn einn borgarstjóri ræður Reykjavík næstu árin

Þórdís Lóa segir í stöðu­uppfærslunni að Viðreisn sé aftur komið í það hlutverk að aðrir flokkar vilja vinna með þeim í Reykjavík, hvoru megin miðju sem þeir standa, nema einna helst Sósíalista­flokkurinn sem Viðreisn treysti sér þó alveg til að vinna með. „Þessi staða kemur ekki af sjálfu sér, heldur vegna þess að Viðreisn getur unnið bæði til hægri og vinstri og við sýndum það á síðasta kjör­tímabili. Við vorum í meirihluta með Samfylkingu, Pírötum og Vinstri grænum. En við unnum líka náið með Sjálfstæðis­flokknum að ýmsum verkefnum, t.a.m. að nýrri eigenda­stefnu borgarinnar og atvinnu- og nýsköpunar­stefnu.“

Hún segist hafa átt gott kaffi­spjall við Einar Þorsteinsson, oddvita Fram­sóknar sem fékk fjóra menn kjörna um liðna helgi, þar sem þau fóru yfir málin og hvar flokkarnir tveir standa. „Af þeim meirihluta­möguleikum sem eru uppi er ekki ólíklegt að Viðreisn og Framsókn séu að fara að vinna saman, þó aðrir leikir séu vissulega í stöðunni. Hver sem niður­staðan verður í þessum blikkleik, þá skiptir það mestu að komast að niður­stöðu um málefna­samning sem bindur næsta meirihluta saman. Það eru málefnin sem eiga að ráða för en ekki stólarnir.“

Hún segir að enginn einn borgar­stjóri muni ráða í Reykjavík næstu árin. „Þannig var það ekki á síðasta kjör­tímabili og þannig verður það ekki á því næsta. Hver meirihluti er samstarf ólíkra flokka, þar sem sjónarmið allra komast að.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár