Telja að fólk hafi ekki kynnt sér skýrslurnar nógu vel – Benedikt: „Ég kom ekkert nálægt skýrsluvinnunni“

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, viðurkennir að ekki sé hljóm­grunnur fyrir því að taka 10 þúsund króna seðilinn úr umferð. Hugmyndin hefur sætt harðri gagnrýni.

Viðreisn gagnrýnir umræðuna um skýrslur tveggja sérfræðinga­hópa um skattsvik sem lagðar voru fram í dag. Á Facebook-síðu flokksins er fullyrt að margir hafi „staðnæmst við algert auka­atriði í skýrslunum, en ekki kynnt sér þær til sem skyldi.“ Í annarri skýrslunni er lagt til að 10 þúsund króna seðilinn verði tekinn úr umferð og því næst 5 þúsund króna seðillinn.

Fram kom í viðtali við Benedikt Jóhannesson, fjármála­ráðherra og formann Viðreisnar, á vef RÚV um hádegis­leytið í dag að hann ætlaði að beita sér fyrir því að dregið yrði úr notkun reiðufjár. „Það eru ekki margir sem eru með 10 þúsund króna seðla í vasanum. Engu að síður þá eru það helmingurinn af reiðufé í umferð samkvæmt tölum seðla­bankans. Þannig að þá spyr maður, hverjir eru það sem eru með alla þessa tíu þúsund kalla,“ sagði hann og bætti við: „Með því að minnka seðlanna sem eru í umferð þá verður óþægilegra að nota þá

Í kjölfarið sætti Benedikt harðri gagnrýni í fjöl­miðlum og á samfélags­miðlum. Egill Helgason sagði að hugmyndin væri „einhver fávitalegasta efnahags­aðgerð sem maður hefur heyrt um“ og Teitur Björn Einarsson, þingmaður samstarfs­flokks Benedikts í ríkis­stjórn sagði að tillagan væri „kolröng nálgun og hreinlega galin hugmynd“.

Nú hefur Benedikt fjarlægt sig þeim tillögum sem kynntar voru í skýrslunum. „Ég kom ekkert nálægt skýrslu­vinnunni sjálfur og gaf engar skipanir um um niður­stöður,“ skrifar hann í pistli sem birtist á vef Viðreisnar í kvöld.

„Ég kom ekkert nálægt skýrslu­vinnunni sjálfur og gaf engar skipanir um um niður­stöður“

Þá viðurkennir hann, að því er varðar tillöguna um að taka 10 þúsund kallinn úr umferð, að „miðað við fyrstu viðbrögð er samfélagið ekki tilbúið í svo róttæka hugmynd.“

Benedikt telur að fæstir þeirra sem hafa tjáð sig um tillögurnar hafi lesið sér nægilega til. „Líklega hafa fæstir þeirra sem hafa tjáð sig um allar þessar tillögur í dag kynnt sér skýrslurnar enda báðar um 40 blaðsíður á lengd. Ég hvet alla til þess að kynna sér tillögurnar og móta sér svo skoðun,“ skrifar fjármála­ráðherra. 

Þá bendir hann á að starfs­hópurinn leggi ekki til að reiðufé verði bannað. „Meðaltals­útreikningar sýna að meðal-Íslend­ingurinn á tæplega 200 þúsund krónur í reiðufé þar af helminginn í tíuþúsundköllum. Vegna þess að fæstir kannast við að eiga slíkar fjárhæðir í seðlum vaknar grunur um að reiðufé sé súrefni svarta hagkerfisins.“

Með því að minnka notkun reiðufjár megi þannig þrengja að svarta hagkerfinu, en ætlunin sé ekki að vega að heiðar­legu fólki.„Tillögur nefndarinnar eru heldur ekki settar fram til þess að hygla greiðslu­korta­fyrirtækjum heldur leggur hún þvert á móti fram tillögur um gjald­frjálsa reikninga almennings í Seðla­bankanum, reikninga sem ekki bæru viðskipta­gjöld,“ skrifar Benedikt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár