„Það er búið að rústa líf sonar míns. Þessar bætur eru smánarlegar. Ég er ofboðslega reið,” segir Hólmfríður Lúðvíksdóttir, móðir Aðalsteins Árdal Björnssonar. Aðalsteinn var lokaður inni í fangelsi án dóms og laga í 32 daga. Nú hefur fallið dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem Aðalsteini eru dæmdar 300 þúsund króna bætur vegna frelsissviptingarinnar. Hólmfríður segir líklegt að dómnum verði áfrýjað, enda bótakrafan upp á rúmar fimm milljónir króna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir