Kristrún: „Fjármálaráðherra þorir ekki að mæta mér í Kastljósi“

Formaður Samfylk­ing­ar­innar segir að til hafi staðið að hún og Bjarni Benediktsson ræddu skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um banka­söluna í Kastljósi í kvöld, en ráðherrann hafi ekki treyst sér til þess.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Baldur Kristjánsson

„Fjármála­ráðherra þorir ekki að mæta mér í Kastljósi. Enda veit ráðherra að hann hefur vonlausan málstað að verja í banka­sölumálinu. Þetta veit öll þjóðin,“ skrifaði Kristrún Frosta­dóttir formaður Samfylkingarinnar í færslu á Facebook síðdegis í dag.

Í færslunni segir Kristrún að upphaf­lega hafi staðið til að hún og Bjarni Benediktsson yrðu samtímis í Kast­ljósinu, en að ráðherra treysti sér ekki til þess.

„Vill ekki eiga orða­skipti við formann stjórnar­andstöðu­flokks um banka­söluna í beinni sjónvarps­útsendingu,“ skrifar Kristrún um Bjarna og lætur það fylgja að málinu sé „engan veginn lokið“.

Kallar skýrsluna áfellisdóm yfir Bjarna

Í samtölum við fjölmiðla og í ræðu á þingi í dag hefur Kristrún kallað skýrsluna áfellisdóm yfir því hvernig staðið var að sölunni, og fjármála­ráðherra beri ábyrgð á því.

Í umræðum á þinginu í dag sagði hún skýrsl­una þungan áfell­is­dóm yfir vinnu­brögðum fjár­mála­ráð­herra og að hún staðfesti „að sala á tug­millj­arða rík­is­eign var á sjálf­stýr­ingu, að ráð­herra hirti ekki um að sinna eft­ir­liti og sölu­ráð­gjafar fengu frítt spil í sölu­ferl­in­u“.

Bjarni, á hinn bóginn, hefur vísað frá kröfum stjórnar­andstöðu­þingmanna um skipan rannsóknarnefnar til þess að fara nánar ofan í kjölinn á sölunni. Hann sagði að það væru ekki neinar vísbendingar um lögbrot í skýrslunni og „svo sannarlega ekki hjá fjármála­ráðuneytinu“ heldur aðallega ábendingar um hluti sem betur hefðu mátt fara.

„Svona rann­sóknar­nefndir hefur Alþingi sem úrræði þegar menn sjá fyrir sér að það sé rökstuddur grunur um að menn hafi farið á svig við lög og það hafi orðið af því mikið tjón fyrir einhvern eða einhverja stærri almannahags­muni. Ég bara sé ekki slík mál í þessu tilviki sem kalli á slíka rannsókn,“ sagði Bjarni við Vísi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár