„Dapurlegt til þess að hugsa að Ísland eigi þar hlut að máli“

Atlantshafs­bandalagið hefur lýst yfir stuðningi við hernaðar­aðgerðir Tyrklands gegn ISIS og Kúrdum. Þingmenn Vinstri grænna, Katrín Jakobs­dóttir og Ögmundur Jónasson, gagnrýna þetta harðlega en beðið er eftir viðbrögðum frá utan­ríkis­ráðuneytinu.

Konur hafa verið áberandi í baráttu Kúrda gegn ISIS.
Konur hafa verið áber­andi í bar­áttu Kúrda gegn ISIS. Mynd: Shutterstock

Atlantshafs­bandalagið (NATO) lýsti yfir stuðningi við loft­árásir Tyrklands sunnan landamæra við Sýrland og Írak eftir neyðar­fund allra aðildar­ríkja í Brussel á þriðjudag. Fullyrti Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóri NATO, í fjöl­miðlum að náðst hefði algjör samstaða allra bandalags­þjóðanna um að lýsa yfir stuðningi við Tyrki. 

Loft­árásir Tyrkja beinast ekki aðeins gegn Íslamska ríkinu (ISIS) heldur einnig gegn Kúrdum, þ.e. liðs­mönnum Verkamanna­flokks Kúrda (PKK), sem borið hafa hitann og þungann af barátt­unni gegn ISIS. Tyrkir hafa varpað sprengjum á skýl­i, birgða- og stjórn­stöðvar og hell­a sem liðsmenn PKK halda til í og í dag var jafnframt ráðist á bækistöðvar þeirra í norður­hluta Írak. 

Stundin hefur óskað eftir upplýsingum frá utan­ríkis­ráðuneytinu um afstöðu Íslands til loftárása Tyrklands gegn Kúrdum og hvort fulltrúi Íslands hafi komið athuga­semdum á framfæri á neyðar­fundinum. 

Erdogan
Erdogan forseti Tyrklands

Samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins

Framfara- og réttlætis­flokkur Tyrklands er við völd í landinu, en um er að ræða samstarfs­flokk Sjálfstæðis­flokksins í Evrópu­samtökum íhalds­manna og umbóta­sinna (AECR). Eins og Stundin greindi frá í júní er Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, vara­formaður AECR, og með honum í stjórn situr meðal annars fulltrúi frá tyrkneska stjórnar­flokknum.

Flokkurinn, og ekki síður Recep Tayyip Erdogan, forseti og fyrrum forsætis­ráðherra Tyrklands, hafa sætt harðri gagnrýni vegna forræðis­hyggju, þjösnalegra aðgerða gegn blaða­mönnum og mótmælendum og lokun á samfélags­miðlunum Twitter og Youtube. Ofan á allt þetta bætist harkan gagnvart Kúrdum. 

Kúrdar í fremstu víglínu

„Hermenn Kúrda eru smám saman að ná yfir­lýstum markmiðum Obama-stjórnarinnar, um að berja niður og ganga milli bols og höfuðs á ISIS, jafn vel og jafnvel betur en nokkur annar her,“ skrifar blaða­maðurinn Lee Fang á miðlinum The Intercept.

Þá bendir hann á, líkt og rithöfundurinn David Graeber hefur áður gert, að Kúrdum í norður­hluta Sýrlands hefur tekist að koma á fót samfélags­gerð þar sem menn og konur, kristnir, jatsítar og múslimar lifa saman í sátt og samlyndi á grund­velli þátttöku- og samræðu­lýðræðis. Nú sé hætt við því að þessi árangur verði að engu vegna yfirgangs tyrkneskra stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið gegn ISIS

FréttirStríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loft­árásir með því að kveikja í dekkjum

Síðan borgara­styrjöldin í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að 470 þúsund manns látið lífið og 4 milljónir flótta­manna hafa flúið stríðs­átökin í landinu. Loft­árásir hafa verið daglegt brauð undan­farin misseri fyrir marga íbúa landsins, en börnin í borginni Aleppo hafa nú tekið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyrir að sprengjum sé sleppt á borgina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár