Stundin og Eigin Konur hefja samstarf

Þættirnir Eigin Konur, undir stjórn Eddu Falak, verða birtir á Stundinni. Ritstjórn Stundarinnar kemur að heimildar­vinnu og umfjöllunum í tengslum við þættina.

Ritstjórn Stundarinnar og Eigin Konur, undir stjórn Eddu Falak, hafa hafið formlegt samstarf.

Í samstarfinu felst að ritstjórn Stundarinnar veitir ráðgjöf og aðstoð við heimildar­vinnu í undir­búningi þátta Eigin kvenna. Þá birtast þættir Eigin Kvenna áskrifendum Stundarinnar til jafns við styrkjendum Eigin Kvenna á Patreon. Þeir þættir Eigin Kvenna sem eru opnir öllum verða frum­sýndir á Stundinni.

Markmiðið valdefling og opnun umræðunnar

Í Eigin Konum hefur verið lögð áhersla á að veita brota­þolum rödd og rými, sem samræmist áherslum Stundarinnar um vald­eflingu. Stundin var stofnuð árið 2015 með því markmiði að starf­rækja fjölmiðil sem væri fyrst og fremst háður almannavaldi og almannavaldi, út frá þeim forsendum að vald hefur áhrif á hvaða upplýsingar eru veittar, og að upplýsingar hafa áhrif á ákvarðanir, upplýstar ákvarðanir eru undir­staða farsældar samfélagsins og hagsmunir valdsins eru ekki alltaf sömu og almennings.

Áhersla hefur verið lögð á rannsóknar­blaða­mennsku og var ritstjórn Stundarinnar í heild sinni valin blaðamenn ársins fyrir umfjöllun um uppreist æru barna­níðinga. Á þeim tíma sem Stundin hefur starfað hefur miðillinn hlotið flestar tilnefningar einka­rekinna miðla til blaðamanna­verðlauna. Ritstjóri Stundarinnar er Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir og rannsóknar­ritstjóri Helgi Seljan.

Fjöldi fólks hefur treyst Eigin Konum og Eddu Falak fyrir frásögnum sínum af erfiðri reynslu frá því hlaðvarps­þættirnir hófu göngu sína árið 2021 og hafa viðtölin haft afgerandi áhrif á þjóðfélags­umræðuna. Í samstarfi við Eigin Konur mun framlag Stundarinnar liggja í langri reynslu af  rannsóknar­blaða­mennsku. Eftir atvikum mun Stundin fylgja eftir umfjöllunum.

Hótanir eftir sambandsslit

Í fyrsta þætti Eigin kvenna eftir samstarf, sem er sá 71. í röðinni, segir Edda Péturs­dóttir frá andlegu ofbeldi í kjölfar sambands­slita þar sem hún sætti stöðugu áreiti frá fyrr­verandi kærasta sínum. Á fyrsta árinu eftir sambands­slitin fékk hún fjölda tölvu­pósta og smáskilaboða frá manninum þar sem hann ýmist lofaði hana eða rakkaði niður, krafðist viðurkenningar á því að hún hefði ekki verið heiðarleg í sambandinu og hótaði að birta kynferðislegar myndir og myndbönd af henni ef hún færi ekki að vilja hans. Stundin birtir hluta skila­boðanna í frétt í samstarfi við Eigin konur.

Hlaðvarps­þættirnir Eigin Konur verða því framvegis birtir á vef Stundarinnar, til viðbótar við miðla Eigin Kvenna. Styrkjendur Eigin Kvenna á Patreon og áskrifendur Stundarinnar fá aðgang að fjórum þáttum aukalega í hverjum mánuði. 

Áskrift að Stundinni má fá hér. Styrkja má Eigin Konur hér á Patreon og fylgja hér á Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þetta samstarf er aldeilis frábær hugmynd !!!
    2
  • Eiríkur Jónsson skrifaði
    Þá er líklega best að afskrá sig, hafandi verið áskrifandi Stundarinnar frá upphafi
    -3
    • BD
      Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
      Akkúrat það fyrsta sem ég hugsaði
      -3
    • GAG
      Guðni Arnar Guðnason skrifaði
      Sammála, segi upp áskrift í dag. Algjörlega fáránleg ákvörðun Stundarinnar.
      -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár