Tillerson segir Rússa hafa brugðist í Sýrlandi

Utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna mun á næstunni funda með Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands. Mikil spenna einkennir nú samskipti ríkjanna hefur stefnu­breytingu Banda­ríkjanna í málefnum Sýrlands.

Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna og fyrr­verandi forstjóri olíurisands Exxon Mobile, segir að Rússar beri mikla ábyrgð á efna­vopna­árásinni í Sýrlandi, sem kostaði yfir 80 mannslíf, og þar á meðal 20 börn. Banda­ríkin svöruðu árásinni með leiftur­snöggri breytingu á utan­ríkisstefnu sinni, og réðust gegn stjórnarher Sýrlands með flugskeyta­árás.

Samtals var 59 Tomahawk flug­skeytum skotið á valin skotmörk í Sýrlandi, þar á meðal á Shaytar flug­völlinn í Homs, þar sem bandarísk stjórn­völd segja að efna­vopnunum hafi verið skotið á loft af stjórnarher Sýrland undir forystu Assad forseta.

Í viðtali við CBS Face The Nation sagði Tillerson að engin gögn bentu til þess að Rússar hefðu átt aðild að efna­vopna­árásinni. Hins vegar hefðu Rússar átt að tryggja efna­vopna­afvopnum Sýrlands, eins og þrýst hefði verið á um, meðal annars af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefði ekki verið gert, og það væri alvarlegt.

Rússar hafa svarað því til að árás Banda­ríkjanna á Sýrland hafi verið ólögleg og sé til þess fallin að grafa undan samskiptum ríkjanna tveggja. Í The Independent í gær var meðal annars fullyrt að stjórn­völd í Rússlandi og Íran væru nú að stilla saman strengi, og ætluðu sér ekki að láta Banda­ríkin „stíga yfir rauðu línuna“ aftur með því að gera árás á Sýrland.

Samhliða þessum aðgerðum Banda­ríkjanna í Sýrland þá hefur spennan verið að aukast í samskiptum Norður-Kóreu annars vegar, og Banda­ríkjanna, Suður-Koreu og Japans hins vegar. Banda­ríkin hafa nú þegar aukið viðbúnað sinn með því að senda á vettvang í Japans­hafi, fleiri og betur vopnum búin herskip.

Tilraunir Norður-Kóreu, undir stjórn leið­togans Kim-Jong Un, með langdræg flug­skeyti og kjarna­orkuvopn, þykja ögrun við heims­friðinn og hefur Donald Trump Bandaríkja­forseti sagt að hann sé tilbúinn að beita frumkvæðis­hernaði - án stuðnings annarra ríkja - til að stöðva ögranir Norður-Kóreu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár