Hert á innflytjendalöggjöf í Bandaríkjunum – „Panikk“ hjá milljónum manna

Mikil hræðsla hefur gripið um sig hjá mörgum innflytj­endum vegna fyrir­hugaðra áherslu­breytinga stjórn­valda.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Stjórn­völd í Banda­ríkjunum ætla sér að herða verulega á innflytjenda­löggjöf og reglu sem snúa að innflytjendum með það að markmiði að fækka stórkost­lega innflytjendum sem ekki hafa leyfi til að vera í landinu samkvæmt laganna bókstaf.

Talið er að um 12 milljónir manna í Banda­ríkjunum séu ekki með leyfi til að dvelja í landinu í lengri tíma um þessar mundir, og þar með hvorki með landvistar­leyfi eða atvinnu­leyfi (Undocumented immigrants).

Margar borgir í Banda­ríkjunum hafa barist fyrir því að Donald Trump Bandaríkja­forseti og stjórn­völd undir hans stjórn, grípi ekki til þess ráðs að koma senda fólk úr landi, þar sem það geti skapað „panikk“ hjá milljónum manna og brotið upp fjölskyldu­mynstur um allt land, með tilheyrandi vanda­málum og félags­legu óöryggi.

Í reglu­verkinu, sem fjallað er um ítarlega á vef Washington Post, segir meðal annars að innflytjendur verði sendir úr landi fyrir minnstu mögulega frávik frá reglunum, svo sem fyrir minni­háttar brot af einhverju tagi, eða jafnvel bara grun um afbrot. Lögfræðingar samtaka innflytjenda segja að nú hafi stjórn­völd ákveðið að einblína á „alla“ þá sem ekki hafa tilskilin leyfi til að vera í landinu, en ekki einungis þá sem hafa þótt óæskilegir, t.d. Þá sem hafa framið alvarleg lögbrot. Þetta sé óásættanleg stefnu­breyting sem muni ala á ótta og valda miklum vandræðum í Banda­ríkjunum.

Árið 2015 voru 333 þúsund ólöglegir innflytjendur sendir úr landi, samkvæmt frétt Washington Post, en Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, var gagn­rýndur nokkuð fyrir sína stefnu þegar komið að innflytjendum, og þá fyrir að ganga fram af of mikilli hörku.

Eitt af því sem gerir innflytjenda­málin flókin í Banda­ríkjunum eru ólíkar tegundir dvalar- og atvinnu­leyfa sem veita misjafnlega mikinn rétt til samfélags­þátttöku í Banda­ríkjunum. Fyrir vikið er hópurinn á hverjum tíma oft stór, sem er með útrunnin leyfi til að vera í landinu. Borgir eru sérstak­lega með stóran hóp fólks sem ekki telst vera með tilskilin leyfi, en borgar­yfirvöld hafa víðast hvar metið stöðuna þannig, að ekki borgi sig að ganga of hart fram gagnvart þessum hópi. Við það skapist meiri vandi en leysist.

Þessi stefnu­breyting nú undir stjórn Trumps þykir, að mati lögfræðinga samtaka innflytjenda í Banda­ríkjunum, ganga alltof langt og bjóða hættuninni heim.

Á móti hafa stjórn­völd sagt, að þau hafi ekki mannafla eða vilja til að fara á eftir hverjum og einum sem mögulega er ólöglega í landinu, á þeim tíma­punkti. Þvert á móti verður einblínt áfram á að forgangs­raða. Vegna þessara áforma um að víkka út heimildir stjórn­valda til að grípa til aðgerða gagnvart fólki, þá geti fólk átt á hættu að vera vísað úr landi með svo til fyrirvara­lausum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár