Drífa: „Holur hljómur“ hjá forstjóra Play

Forseti ASÍ segir að með framgöngu Play hafi fyrir­tækið boðað til erfiðra átaka á vinnu­markaði til lengri tíma því barátt­unni gegn undir­boðum og sniðgöngu stéttar­félaga sé hvergi nærri lokið.

Drífa Snædal og Birgir Jónsson
Drífa Snædal og Birgir Jónsson Mynd: Samsett

„Það er holur hljómur í forstjóra fyrir­tækis sem biðst vægðar þegar framganga þess litast öll af átaka­sækni við vinnandi fólk og raun­veruleg samtök þeirra.“

Þetta segir Drífa Snædal forseti ASÍ í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag.

Vísar hún í frétt Vísis þar sem Birgir Jónsson forstjóri Play segir að verk­föll hjá flug­um­ferðar­stjórum séu það síðasta sem ferða­þjónusta og flug­iðnaður landsins þurfi á að halda. Fé­lag ís­lenskra flug­um­ferðar­stjóra (FÍF) á­kveður í dag hvort ráðist verði í verk­falls­að­gerðir á þriðju­daginn í næstu viku og skoða hvort kjósa eigi um frekari verk­falls­að­gerðir á næstunni.

Í fréttinni kemur fram að fé­lagið muni funda með Isavia hjá ríkis­sátta­semjara í dag. Búist sé við að sá fundur geti staðið langt fram á kvöld en FÍF hafi til klukkan fimm í nótt til að boða verk­fallið. Deilan strandi á vinnu­tíma flug­um­ferðar­stjóra.

„Ég held að við verðum að hafa traust á þessum aðilum að lenda málinu því þetta er náttúru­lega það síðasta sem ferða­þjónustan og flug­iðnaðurinn og í raun og veru bara landið þarf í þessu COVID-á­standi að það fari að bætast verk­föll ofan í kaupið,“ segir Birgir í sam­tali við Vísi.

Með „þessari framgöngu“ sé Play að boða til erfiðra átaka

Drífa segir í stöðu­uppfærslunni að verkföll séu neyðar­úrræði og aldrei ákjósanleg fyrir neinn. „En í tilefni orða Birgis þá er ágætt að hafa það í huga að Play sneiddi hjá raun­verulegu stéttar­félagi, gerði svokallaða kjara­samninga um störf flugliða við félag sem var ekki með neina flugliða innanborðs. Algerlega óboðlega kjara­samninga og neita svo að tala við raun­verulegt stéttar­félag flugliða.“

Hún segir jafnframt að með þessari framgöngu sé Play að boða til erfiðra átaka á vinnu­markaði til lengri tíma því barátt­unni gegn undir­boðum og sniðgöngu stéttar­félaga sé hvergi nærri lokið. „Þessi framganga á fyrstu skrefum flug­félags mun lita öll samskipti samtaka vinnandi fólks við þetta fyrirtæki og þau samtök sem tala fyrir hönd þess,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár