Mynd: Bára Huld Beck

Tekur minna en mánuð að hefja flugrekstur PLAY

Forstjóri og eigandi PLAY segja að þeir séu ekki að stefna á heims­yfirráð en búast við því að félagið nái stærri markaðs­hlutdeild en WOW air náði á fyrstu árum sinnar starfsemi.

Við erum tilbúin til þess að koma inn á markaðinn og gerum það þegar annað hvort þörf er á eða markaðurinn byrjar að koma til baka,“ segir Arnar Már Magnússon forstjóri PLAY, nýs lággjalda­flugfélags sem beðið hefur verið eftir í tæpt ár.

Í viðtali við Kjarnann ræddu Arnar og Skúli Skúlason eigandi félagsins um stöðu þess núna, framtíðar­horfur og þann ríkis­stuðning sem Icelandair hefur fengið á undan­förnum mánuðum.

„Eina vitið“ að draga sig til hlés

Í nóvember á síðasta ári var PLAY kynnt til sögunnar á blaðamanna­fundi. Félagið var með stórhuga áform, en það stefndi að því að hefja miðasölu nokkrum vikum seinna og vera með tíu flugvélar í rekstri innan þriggja ára.

Þessar áætlanir hafa þó ekki gengið upp. Þremur vikum eftir blaðamanna­fundinn tilkynnti flug­félagið að miðasölu þess yrði frestað þar sem félagið þyrfti að „ganga frá ýmsum hlutum.“ Miðasalan hefur nú enn ekki hafist, tíu mánuðum seinna.

Aðspurður hvers vegna starfsemi PLAY hefur ekki enn hafist bendir Arnar Már á að margir þættir hafi spilað þar inn, en þeirra á meðal voru ytri markaðs­aðstæður: „Við sáum það náttúru­lega bara mjög fljótt að það var mjög áhættu­samt að fara í rekstur síðla veturs eða í vor. Þá var eina vitið að draga sig aðeins til hlés og fara að hugsa lengra fram í tímann.“

Samkvæmt Arnari var þó stefnu­breyting innan félagsins aðal­ástæða þess að þau ákváðu að draga sig til hlés. Þegar flug­félagið var kynnt í fyrra var lagt upp með að það yrði byggt upp að hluta til á eigið fé og að hluta til á lánsfé, en nú sé það eingöngu byggt upp á eigið fé. 

Enginn „COVID-draugur“ fylgir félaginu

Arnar Már segir einnig að þau hafi verið mjög heppin með að fara ekki af stað. Útlitið væri mjög svart hjá flug­félaginu ef upphaf­legu áform þess um að hefja starfsemi síðasta vetur hefðu staðið, í ljósi þess erfiða rekstrar­umhverfis sem flugfélög um allan heim búa við þessa stundina.

Arnar Már Magnússon, forstjóri PLAY.
Arnar Már Magn­ús­son, for­stjóri PLAY.

Blaða­maður spyr Arnar hvort núverandi aðstæður hafi verið flug­félaginu í hag og játar hann að svo sé: „Bæði með því að hafa ekki farið af stað og vera ekki búin að auka kostnað félagsins til muna þá höfum við náð að halda okkur með mjög lágan kostnað í gegnum COVID-krísuna sem gefur okkur líka ákveðið forskot þegar eftir­spurnin eykst, vegna þess að það fylgir okkur ekki neinn COVID-draugur inn í fram­tíðina.“

Tekur minna en mánuð að hefja flugrekstur

Fyrir­tækið hyggst þó ekki liggja lengi í dvala, en samkvæmt Arnari bíður það eftir rétta tæki­færinu til að hefja flug­rekstur. Samningar séu í höfn og leyfi langt komin, en flug­rekstrar­leyfið verði innkallað um leið og framleiðslu­númerið á fyrstu flug­vélinni sem félagið mun leigja liggur fyrir og skráningu lokið á íslenska flug­rekstrar­leyfið. Ábyrgðar­aðilar á flug­rekstrar­sviði PLAY vinna náið með Samgöngu­stofu að útgáfu leyfisins

Arnar bætir einnig við að öll kerfi séu komin upp, þar á meðal tekju­stýring, bókunarvél, heimasíða og flugplans­kerfi. Þar að auki er markaðs­herferð á vegum félagsins tilbúin.

„Eins og við höfum sagt við stjórn­völd: Við erum tilbúin til þess að koma inn á markaðinn og gerum það þegar annað hvort þörf er á eða markaðurinn byrjar að koma til baka,“ segir Arnar og bætir við að litið sé sérstak­lega til takmarkana á flug­völlum í ljósi ástandsins.

Aðspurður hvað það taki langan tíma fyrir flug­félagið segir Skúli að það taki minna en mánuð.

Arnar Már bætir við að það sé svo sannarlega í áformum flug­félagsins að vera komið á markaðinn í vetur, en býst þó við að umfang starfseminnar verði takmarkað þangað til að eftir­spurn eftir flug­ferðum eykst aftur þegar COVID-krísunni lýkur.

„Við erum að koma inn á það að vera sýnileg í gegnum veturinn og fljúga eitthvað og þá helst til Evrópu og einhverra sólarlanda­staða, eða þar sem eftir­spurnin er, en svo er uppbyggingin hafin fyrir flug­rekstur og flug sumarið 2021,“ segir Arnar.

Geta alveg beðið lengur

Því gerir Arnar ráð fyrir því að eftir­spurnin taki við sér hratt eftir að bóluefni við COVID-19 verði komið í dreifingu og vonast hann til þess að það verði fyrir næsta sumar. Hins vegar segir hann það vera allt í lagi þótt dreifing bóluefnis dragist á langinn, flug­félagið geti alveg beðið í nokkra mánuði í viðbót ef markaðs­aðstæður krefjast þess.

Arnar Már og Skúli bæta einnig við að sá kostnaður sem hlýst af rekstri félagsins í núverandi mynd sé einungis fjár­festing í stofn­kostnaði, sem sé eitthvað sem öll fyrirtæki þurfa að gera. „Eðlilega eru allar tafir á að flug geti hafist í tekju­berandi rekstur neikvæðar, en ekki alveg „make or break“. Þetta getur alveg dregist á langinn, þess vegna erum við búin að draga það á langinn að sækja okkur vélar,“ segir Skúli.

Skúli Skúlason, eigandi PLAY, hefur mikla reynslu úr fluggeiranum.
Skúli Skúlason, eig­andi PLAY, hefur mikla reynslu úr flug­geir­anum.

„Af því að við erum ekki búin að taka þetta risaskref að hefja flug þá höfum við getuna í að halda okkur á þessum stað sem við erum á í mjög langan tíma. Við höfum þolinmæðina,“ bætir Arnar við. 

Eigendur að langstærstum hluta íslenskir

Þessa stundina er FEA ehf., sem er félag í eigu Skúla og hóps fjárfesta, eigandi alls hlutafjár PLAY. Arnar Már segir FEA veita flug­félaginu mjög sterkt bakland, en Skúli segir þó hópinn ekki verða eini eigandi flug­félagsins þegar fram í sækir.

„Við erum að vinna að því að það verði þrír sterkir hópar sem standa að félaginu, plús aðrir fjár­festar. Við erum komin langt með að loka viðræðum við einn hóp og erum síðan í viðræðum við nokkra aðra sem gætu verið hugsanlegur þriðji aðili í þessum kjarna,“ segir Skúli.

Hann bætir við að í þessum þremur hópum séu aðilar sem hafa mikla þekkingu á flug­rekstri, ferða­þjónustu og tengdum greinum og komi því með verðmæta reynslu að borðinu, en öðrum fjár­festum verði svo boðið að fylgja þessum hópum.

Aðspurður hverjir þessir hópar séu segir Skúli að félagið verði að langmestu leyti í eigu Íslendinga. Þá sé erlendur aðili þar á meðal, sem geti komi með mikil verðmæti fyrir reksturinn og félagið. 

COVID leiðir til lægri leigu og betri samninga

Samkvæmt Arnari býður núverandi lægð í flug­rekstri upp á gott tækifæri fyrir PLAY til þess að koma inn á markaðinn. Um átta þúsund flugvélar sitji tómar á jörðu niðri, sem þrýsti leigu­verði þeirra og allra annarra vara tengdum geiranum niður.

„Að koma inn á markaðinn núna og festa lága leigu á flugvélum eða kaupum eða hvað sem það er þá ertu að njóta þess til lengri tíma,“ segir Arnar. Hann bendir einniga á að önnur flugfélög séu einungis að fá tíma­bundnar niður­fellingar þessa stundina en fái svo aftur sömu kjör eftir COVID.

Skúli bætir einnig við að núverandi ástand hafi leitt til þess að samningar hafi náðst á milli PLAY og stærri flug­leigusala sem annars hefðu tekið lengri tíma. Venjulega séu flug­félögin „kannski að taka nokkrar leigur inn, kannski að koma sér fyrir á markaðnum og sýna fram á að reksturinn og annað sé í lagi, þá fara þessir stærri að sýna manni áhuga. Við erum að upplifa það að stærstu flug­leigu­salarnir hafa áhuga á að vinna með okkur. Þar á meðal erum við nú þegar að vinna með einum, þeim stærsta.“

„Það er vegna þess að þeir sjá í gegnum hvað er að gerast. Það er engin fortíð. Þeir eru sammála þeim þanka­gangi og eru bara klárir áfram með okkur og vita hvað þeir hafa í hendi þegar fram í sækir,“ bætir Skúli við. 

Mið-Evrópukjör

Með því að stefna að lágri leigu á flugvélum og hagkvæmum samningum stefnir PLAY að því að CASK-hlutfall félagsins, sem mælir kostnað á hvern floginn sætakílómeter, verði lægri en hjá öðrum flug­félögum í Norður-Evrópu.

Til þess að ná slíku hlutfalli hefur flug­félagið einnig samið um að halda launa­kostnað í lágmarki, en Kjarninn greindi frá því í fyrra að kjara­samningar PLAY við ÍFF fælu í sér 27 til 37 prósenta kostnaðar­lækkun launa flugmanna og flugliða, ef miðað væri við WOW air.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ákvað að veita Icelandair Group ríkisábyrgð.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur ákvað að veita Icelandair Group rík­is­á­byrgð.

Arnar og Skúli segjast líka vilja bera sig saman við flugfélög annars staðar í Evrópu í kjara­málum. „Við höfum alltaf haft það sem markmið að bera okkur saman við Evrópu. Flugkjör og annað í flug­geiranum er mjög hátt alls staðar í Evrópu, en á Íslandi hefur það verið svolítið í hærri kantinum. Við höfum meira verið að horfa í það og að vera samkeppnis­hæfir,“ segir Arnar. „Mið-Evrópu­kjör,“ bætir Skúli við.

Þó benda þeir á að flug­félagið verði íslenskt, með íslenskan kjara­samning og starfi á íslenskum vinnu­markaði.

„Algjör þvæla“ að það taki langan tíma að koma inn

Framtíðar­áætlanir PLAY gera ráð fyrir að félagið muni stækka ört um leið og eftir­spurnin tekur við sér á ný eftir yfir­standandi lægð.

Arnar segir að margir vilji meina að það taki mörg ár fyrir flugfélag að koma á markaðinn, „sem er bara þvæla, ef við tölum beint út.“ Því til stuðnings minnist hann á WOW air, sem náði að auka markaðs­hlutdeild sína umtals­vert um leið og félagið ákvað að verða tengiflug­félag árið 2016.

Raunar telur Arnar að PLAY geti komið inn á flug­markaðinn með enn brattari hætti á næsta ári en WOW air gerði árið 2016: „Önnur flugfélög í dag hafa skalað niður, þannig að markaðs­hlutdeild PLAY yrði miklu stærri heldur en WOW air var á þessum tíma­punkti. “ 

Ekki eins og menn séu að gera þetta í fyrsta skiptið

Fyrsta veturinn er flug­félagið þó að búast við að vera með eina til þrjár flugvélar, en samkvæmt Arnari eru samningarnir við flug­leigusala þess eðlis að auðvelt er að bæta við sig eða draga úr flugvélum.

Hins vegar búast Skúli og Arnar við að stækkunin verði mjög hröð á fyrstu árum flug­félagsins, þar sem virðis­keðjan er öll til. Öll þjónusta sem PLAY mun nota er nú þegar til og mun verða innt af hendi af fólki með reynslu. „Það er ekki eins og menn séu að gera hlutina í fyrsta skiptið,“ segir Skúli.

Eru ekki að stefna að heimsyfirráðum

Aðspurður hvort PLAY stefni að því að vera jafnstórt og WOW air segir Skúli að stærðin skipti ekki öllu máli: „Þú verður að vera með ákveðin umsvif til að ná hagræði í rekstrinum, en aðal­atriðið er að vera arðsamt fyrirtæki. Þetta er ekki spurning um heims­yfirráð.“

Samkvæmt Skúla er aðal­atriðið að skila lágum fargjöldum á markaðinn, góðri afkomu fyrir eigendurna og öruggum rekstri sem stendur undir sér og þolir áföll. „Það er ekkert verra bissness­konsept heldur en önnur,“ bætir hann við.

Arnar tekur undir orð Skúla og segir það vera skýra reglu innan flug­félagsins að halda sig við upphaflegt plan, sem eru ódýr tengiflug á minni flugvélum.

Alltaf pláss fyrir tvö flugfélög

Gjaldþrot tveggja annarra íslenskra lággjalda­flugfélaga á síðustu tíu árum, Iceland Express og WOW air, vekja þó upp spurningar hvort yfirhöfuð sé pláss fyrir tvö flugfélög á Íslandi. Skúli og Arnar svara því játandi, sér í lagi vegna þess mikilvæga hlutverks sem félögin sinna í tengi­flugum yfir Atlantshafið.

„Þetta er ekki spurning um bara Ísland. Ef það væri málið þá væri ekki einu sinni pláss fyrir eitt félag. En við búum við þau gæði á Íslandi að landið er bara gríðar­lega vel staðsett. Eins og hefur komið fram undan­farna daga þá lifir Icelandair ekki á Íslendingum að ferðast. Þetta er miklu stærra batterí, þetta er „hub operation“ þetta eru via-flugin. Helmingur farþega stoppar bara í Keflavík til að fara upp í næstu flugvél,“ segir Arnar.

PLAY kynnti sig til leiks seint á síðasta ári og opinberaði samhliða afar metnaðarfull vaxtaráform. Áætlanir félagsins hafa breyst umtalsvert síðan þá.
PLAY kynnti sig til leiks seint á síð­asta ári og opin­ber­aði sam­hliða afar metn­að­ar­full vaxt­ar­á­form. Áætlanir félags­ins hafa breyst umtals­vert síðan þá.

Skúli bendir einnig á möguleika Kefla­víkur­flugvallar á að verða að öflugum tengiflug­velli í Evrópu: „Við erum að horfa á þéttingu byggðar í Evrópu og takmarkanir á opnunar­tíma. Keflavík er flug­völlur sem er opinn allan sólar­hringinn, alla daga. Og eins og var sérstak­lega árið 2018 þegar allur þessi fjöldi flug­félaga var, þá ert þú kominn með nógu marga aðila inn á völlinn til að fólk er farið að horfa á hann sem mögulegan tengiflug­völl, svona eins og Amsterdam og Heathrow og fleiri, þótt þetta sé ekki af sama skala.“

Samkvæmt Skúla eru stjórn­völd einnig að horfa á uppbyggingu á Kefla­víkur­flugvelli þannig að þetta verði tengiflug­völlur: „Þá er alveg mjög eðlilegt að það séu eitt eða fleiri flugfélög sem eru staðsett á Íslandi.“

Ríkisábyrgðin skekki samkeppnina

Talið berst að Icelandair og nýlega ákvörðun ríkis­stjórnarinnar um að veita flug­félaginu ríkis­ábyrgð. Arnar Már gaf nýlega frá sér umsögn við frumvarp fjármála­ráðherra um ríkis­ábyrgðina þar sem hann hvatti til þess að sett yrðu frekari skilyrði fyrir veitingu hennar. PLAY skilaði einnig umsögn til fjár­laganefndar þar sem samkeppnis­hamlandi áhrif ríkisábyrgðinnar voru gagnrýnd.

Arnar segir ábyrgðina koma niður á samkeppnis­stöðu PLAY með ýmsum hætti. Til að mynda séu tveir þættir í frum­varpinu sem séu umshugsunarverðir, annars vegar að ríkið taki þetta skref til að hjálpa félaginu að komast í gegnum komandi hlutafjár­útboð en einnig að lánalínan sé til staðar ef félagið nær ekki tekju­markmiðum sínum vegan samkeppni á markaði. Arnar telur athuga­vert að minni tekju­sköpun Icelandair vegna aukinnar samkeppni á flug­markaði sé eitt af tilvikunum sem Icelandair yrði leyft að ganga á lánalínu með ríkis­ábyrgð. Þannig yrði PLAY refsað fyrir að hafa betur í samkeppni við Icelandair, verandi félag með lægri rekstrar­kostnað.

Að mati Arnars er líklegt að gengið verði á ríkis­ábyrgðina, þar sem hún getur verið virkjuð í tilfelli of hás kostnaðar, harðari samkeppni og eða lítillar tekju­sköpunar. Hann telur kostnaðar­áætlanir Icelandair byggja meðal annars á hæpnum forsendum á olíuverði, þar sem þeir gera ráð fyrir að tveggja ára spá fyrir olíuverðs­hækkun muni haldast út næstu fjögur árin. Þar að auki finnst honum spár flug­félagsins um tekju­aukningu vera nokkuð bjartsýnar í ljósi þess að helstu greiningar­aðilar í flug­geiranum búast ekki við hækkun tekna á næstu árum, ljóst er hinsvegar að tekjur félagsins verði að hækka til að áætlanir félagsins um arðsemi gangi eftir.

„Umræðan hefur alltaf verið að þetta sé til þrauta­vara, þessir 16 milljarðar, en hún er byggð á spá Icelandair á lækkandi kostnaði, hækkandi tekjum og engri samkeppni frá íslensku flug­félagi. Ef að eitt af þessu klikkar, sem verður að teljast líklegt , þá þurfa þeir að draga á línuna. Þannig að þessi þrauta­varalína, það verður dregið á henni,“ segir Arnar.

Stjórnendur PLAY sjá mikil tækifæri á Keflavíkurflugvelli í framtíðinni.
Stjórn­endur PLAY sjá mikil tæki­færi á Kefla­vík­ur­flug­velli í fram­tíð­inni.

Því segir Arnar ríkis­ábyrgðina vera til þess fallinn að niður­greiða samkeppnina á flug­markaði eftir tvö ár: „Í september 2022, þegar lánalínan sem ríkis­bankarnir tveir hafa veitt Icelandair er að renna sitt skeið, þá er félagið hugsanlega í ósjálfbærum rekstri. Ríkið kemur þá inn með fé til þess að greiða niður miðaverð til Icelandair á móti samkeppninni sem það verður fyrir vegna annarra flug­félaga.“

Hluti starfsfólks á hlutabótaleið

Ríkis­stuðningur til PLAY vakti þó einnig nokkra athygli fyrr í ár, en flug­félagið var á lista yfir fyrirtæki sem fóru á hluta­bótaleiðina í kjölfar samkomu­banns vegna heims­faraldursins. Arnar segir þó að fyrir­tækið hafi verið á hluta­bóta­leiðinni frá miðjum apríl og hættu á henni í maí. Styrkurinn náði einungis til hluta starfs­fólks fyrir­tækisins og þeir hafi ekki nýtt sér nein önnur ríkissúr­ræði, eins og t.a.m. uppsagnar­styrki. Þrátt fyrir að hafa ekki verið tekju­berandi taldi Vinnumála­stofnun að flug­félagið uppfyllti skilyrðin til þess að fara á leiðina, en stjórn PLAY hafi samt sem áður ákveðið að fara af henni.

„Þessi hluta­bótaleið snýr ekki að start-up fyrir­tækjum,“ segir Skúli. „Start-up-in þurfa bara að taka þetta á kassann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár