Nýtt íslenskt lágfargjaldaflugfélag heitir Play

Nýtt íslenskt lágfargjalda­flugfélag hefur verið opinberað. Það var mótað undir vinnu­heitinu WAB Air en mun heita Play.

Arnar Már Magnússon verður nýr forstjóri flug­félagsins Play, sem opinberað var í dag. Auk Arnars Más verða þeir Sveinn Ingi Steinþórsson, sem verður fjármála­stjóri, Bogi Guðmundsson, sem mun halda utan um lögfræði­sviðið, og Þóróddur Ari Þóroddsson, sem verður meið­eigandi.

Unnið hefur verið að stofnun félagsins í nokkra mánuði undir heitinu WAB Air, en það stóð fyrir „We Are Back“. Lykilfólk í hópnum á bakvið stofnun félagsins eru fyrr­verandi stjórn­endur hjá WOW air. Til að byrja með ætlar Play að gefa eitt þúsund frí flugmiða til þeirra sem skrá sig á heimasíðu félagsins nú, en vefslóð hennar verður www.flyplay.com.

Inni á heima­síðunni verður einnig hægt að sækja um störf hjá félaginu, og Arnar Már sagði að félagið þurfi að ráða inn „ógrynni“ af fólki á næstunni. „Við erum íslenskt flugfélag með höfuð­stöðvar á Íslandi og verðum með íslenska samninga við starfs­fólk. Það eru allir velkomnir til okkar, Íslendingar og aðrir.“

Arnar Már vildi ekki svara því hvenær fyrsta flug Play yrði, en að það myndi verða gefið út þegar sala miða myndi hefjast í nánustu framtíð.

Play ætlar að tengja Norður Ameríku við Íslands og Evrópu, en Arnar Már fór ekki yfir nákvæmlega hverjir áfanga­staðir félagsins yrðu né í hvaða skrefum þeir myndu koma inn. Í vor er stefnt að því að fjölga vélum félagsins í sex og hefja þá flug til Norður Ameríku.

Félagið er fjár­magnað til lengri tíma í samvinnu við breskan fagfjárfesta­sjóð og fjármála­fyrirtækið Íslensk verðbréf. Skiptingin verður þannig að 80 prósent af fjár­magninu mun koma erlendis frá en fimmtungur frá Íslandi.

Á kynningu sem nú stendur yfir í Perlunni sagði Arnar Már að vinna við að fá flug­rekstrar­leyfi væri á loka­metrunum. Sömuleiðis væri vinna við að fá inn flugvélar í verkefni félagsins langt komin. Þá er bókunarvél Play tilbúin og heima­síðan félagsins fer í loftið von braðar. Sala er ekki hafin, þar sem flug­rekstrar­leyfið er ekki komið, en til stendur að sala hefjist í nóvember.

Play ætlar að standa fyrir öryggi, sérstak­lega rekstrar­öryggi, og stundvísi. Þá sagði Arnar Már að flug­félagið vilji vera einfalt. Í því felst meðal annars að vera með einfaldan flota­strúktúr, þ.e. að fljúga einni gerð véla, Airbus A320. Sú vél er með þeim sparneytnari sem finnast og á að henta vel leiðar­kerfi hins nýja félags.

Play verður lágfargjalda­flugfélag sem mun bjóða upp á hagstæð verð.„Nafnið Play lýsir þessu félagi mjög vel. Við förum til útlanda til þess að leika okkur,“ sagði Arnar Már á fréttamanna­fundinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár