Treystir því að skattar lækki á næstunni

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, seg­ist hafa stutt hækkun fjár­magnstekju­skatts í trausti þess að nú verði ráð­ist í skatta­lækk­anir.

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, sagði í umræðum um störf þings­ins á Alþingi í gær að hann hefði greitt atkvæði með skatta­hækk­unum fyrir ára­mót, svo sem hækkun fjár­magnstekju­skatts, í trausti þess að framundan væri tíma­bil þar sem skattar yrðu lækk­aðir og tekju­skatts­kerf­inu jafn­vel umbylt.

„Ég tók þátt í því bæði sem for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og sem stjórn­ar­þing­maður að greiða atkvæði um skatt­kerf­is­breyt­ingar fyrir síð­ustu ára­mót. Það var mér erfitt,“ sagði hann. „Það var erfitt að hækka t.d. fjár­magnstekju­skatt þó að ég gæti haft rök fyrir því, en það gerði ég og greiddi því atkvæði og studdi í því trausti að við værum að fara inn í tíma­bil þar sem við myndum ná fram lækkun á neðra þrepi tekju­skatts­ins, hugs­an­lega umbylta tekju­skatts­kerf­inu, ég tala nú ekki um að lækka hressi­lega trygg­inga­gjaldið. Það eru lof­orð sem voru gefin og það eru lof­orð sem ég tek hátíð­lega og voru for­senda þess að ég tók þátt í að greiða atkvæði með hækkun skatta fyrir ára­mót.“

Fjár­magnstekju­skattur var hækk­aður um tvö pró­sentu­stig nú um ára­mótin og er gert er ráð fyrir að hækk­unin skili rík­is­sjóði rúm­lega 2,5 millj­arða tekjum. Ef miðað er við hlut­deild tekju­hæstu 10 pró­senta fram­telj­enda í fjár­magnstekju­skatt­stofn­inum und­an­farin ár má ætla að hóp­ur­inn þurfi að standa undir að minnsta kosti 1,5 millj­örðum af hækk­un­inni. 

Í stjórn­ar­sátt­mála boðar rík­is­stjórnin að neðra þrep tekju­skatts verði lækkað og að slík lækkun verði eitt af útspilum hins opin­bera í kjara­samn­ingum. Í kosn­inga­bar­áttu sinni lof­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að lækka neðra þrep tekju­skatts­kerf­is­ins úr 36,94 pró­sentum í 35 pró­sent. Þeir stjórn­ar­þing­menn sem Stundin hefur rætt við gera ráð fyrir að farin verði milli­leið og tekju­skatt­ur­inn lækk­aður um eitt pró­sentu­stig, niður í 35,94 pró­sent, en slíkt mun kosta rík­is­sjóð um 14 millj­arða á ári sam­kvæmt útreikn­ingum sem gerðir hafa verið í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þarna er um að ræða skatta­lækkun sem skilar fólki sem er með meira en 835 þús­und króna heild­ar­laun á mán­uði þrisvar sinnum meiri skatta­lækkun en fólki á lág­marks­launum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár