Meirihluti Íslendinga fylgjandi stofnun miðhálendisþjóðgarðs

63 prósent almennings á Íslandi er fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu en tæplega 10 prósent andvíg honum.

Norðausturland
Norð­aust­ur­land Mynd: Bára Huld Beck

63 prósent almennings á Íslandi er fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendisins að þar sé einstök náttúra og þver­pólitísk nefnd vinnur nú að því að undirbúa stofnun miðhálendis­þjóðgarðs. Þetta er meðal þess sem kom fram á Umhverfis­þingi sem umhverfis- og auðlinda­ráðherra hélt þann 9. nóvember síðastliðinn og birtist í frétt ráðuneytisins.

Michaël Bishop kynnti niður­stöður spurninga­könnunar sem unnin var af Félags­vísinda­stofnun Háskóla Íslands og fram kom að tæplega 63 prósent af þeim sem tóku afstöðu eru fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu en tæplega 10 prósent andvíg honum.

Fram kom að ríflega 75 prósent þeirra sem eru fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu taka fram að hann myndi vernda mörg svæði sem ekki njóta verndar í dag, rúmlega 70 prósent þeirra að hann myndi vernda miðhálendið sem eina heild og 68 prósent að hann myndi auka skilning á verðmæti miðhálendisins. Rann­sóknin var hluti af meistara­verkefni Michaëls í land- og ferðamála­fræði við Háskóla Íslands.

Tillaga um miðhálendis­þjóðgarð er skrifuð í sáttmála ríkis­stjórnar Íslands og fram kom á Umhverfis­þinginu að þver­pólitísk nefnd sem umhverfis- og auðlinda­ráðherra skipaði síðastliðið vor vinnur nú að framgangi málsins. Í máli Óla Halldórs­sonar, formanns nefndarinnar, kom fram að nefndin væri byrjuð að fjalla um mörk þjóð­garðsins og að stefnt væri að samráðs­fundum með sveitar­félögum og nytja­réttarhöfum en slíkt samtal væri afar mikilvægt. Nefndin mun skila af sér tillögu að laga­frumvarpi næsta haust.

Anna Dóra Sæþórs­dóttir, prófessor í ferðamála­fræði við HÍ, kynnti rann­sóknir sína á viðhorfum ferða­manna á miðhálendinu en hún hefur í gegnum tíðina lagt spurninga­lista fyrir alls 9.000 ferðamenn á hálendinu og tekið viðtöl við hátt í 300 manns. Í máli hennar kom meðal annars fram að ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendis að þar sé einstök og lítt snortin náttúra, einfald­leiki, kyrrð og fámenni.

Beinn efnahagslegur ávinningur 10 milljarðar

Í frétt Kjarnans sem birtist síðastliðinn föstudag kemur fram að efna­hags­leg áhrif frið­lýstra svæða á Íslandi séu ótví­rætt jákvæð en á árinu 2017 hafi beinn efna­hags­legur ávinn­ingur tólf svæða og nær­sam­fé­laga þeirra verið um 10 millj­arðar króna. Ávinn­ing­ur­inn fyrir þjóð­ar­búið í heild hafi verið 33,5 millj­arðar króna.

Samkvæmt nið­ur­stöðum fyrstu rann­sóknar sem gerð hefur verið á lands­vísu á efna­hags­legum áhrifum frið­lýstra svæða á Íslandi eyða ferða­menn árlega sam­tals 10 millj­örðum íslenskra króna innan þeirra svæða sem rann­sökuð voru eða í næsta nágrenni þeirra. Þetta skapar um 1.800 störf á umræddum stöðum eða um 1.500 full stöðu­gildi. Um er að ræða bein störf í ferða­þjón­ustu, svo sem við gist­ingu, skipu­lagðar ferð­ir, akstur og veit­inga­þjón­ustu. 45 pró­sent af eyðslu ferða­fólks var inni á frið­lýstu svæð­unum eða í næsta nágrenni þeirra. Rann­sóknir sýnir að fyrir hverja 1 krónu sem ríkið leggur til frið­lýstra svæða skila 23 krónur sér til baka.

„Enginn má hafa afnot af þjóðlendu fyrir sjálfan sig“

Samráð um drög að stefnu um samþykki fyrir nýtingu lands og lands­réttinda í þjóð­lendum stendur nú yfir í samráðs­gátt stjórn­valda til 30. nóvember næst­komandi.

Í henni kemur fram að nú séu alls 217 þjóð­lendur á landinu og þeki þær um 86 hundraðs­hluta miðhálendisins og 44 hundraðs­hluta landsins alls, ef miðað er við þau landsvæði sem óbyggða­nefnd hefur tekið til meðferðar og úrskurðað.

„Enginn má hafa afnot af þjóðlendu fyrir sjálfan sig. Til slíkra afnota telst meðal annars að reisa mannvirki, hvers konar jarðrask sem og nýting hlunninda, vatns- og jarð­hita­réttinda. Öll slík afnot eru leyfis­skyld. Leyfis­veitingar­hlutverkinu er skipt á milli forsætis­ráðherra annars vegar og sveitar­stjórna hins vegar. Nýting vindorku, vatns- og jarð­hita­réttinda, námu­vinnsla og önnur jarðefna­nýting er háð leyfi ráðherra. Að öðru leyti þarf leyfi hlut­aðeigandi sveitar­stjórnar til að nýta land og lands­réttindi. Sé nýting sem sveitar­stjórn heimilar til lengri tíma en eins árs þarf jafnframt samþykki ráðherra.

Í ljósi mikil­vægis þess að setja fram í stefnu þau sjónarmið sem ráðherra leggur til grund­vallar við ákvörðun um samþykki fyrir nýtingu lands og lands­réttinda, sem sveitar­félög hyggjast veita leyfi fyrir, hefur forsætis­ráðuneytið mótað stefnu um það hvernig ráðherra beitir samþykktar­hlutverki sínu. Með því er unnt að skapa aukinn fyrirsjáanleika og festu í stjórnsýslu­framkvæmd ráðuneytisins,“ segir á samráðs­gátinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár