Eru forsendur fyrir því að stofna miðhálendisþjóðgarð?

Út er komin skýrsla um for­sendur fyrir stofnun þjóð­garðs á mið­há­lendi Íslands en þar er nátt­úru þess lýst, stefnu­mörkun sem fyrir liggur, verndun, nýt­ingu og innviðum. Einnig er fjallað um mis­mun­andi mögu­leika fyrir þjóð­garð og frek­ari verndun mið­há­lendis

Mikið hefur verið rætt um hvort stofna eigi þjóð­garð á mið­há­lendi Íslands. Nátt­úru­vernd­ar­hreyf­ingin, úti­vist­ar­sam­tök og Samtök ferða­þjón­ust­unnar und­ir­rit­uðu til að mynda vilja­yf­ir­lýs­ingu um stofnun þjóð­garðs á mið­há­lendi Íslands í mars á síð­asta ári. Sér­stakri vef­síðu um hálendis­verk­efn­is­ins var komið á lagg­irnar.

Mark­miðið með vilja­yf­ir­lýs­ing­unni var að ná sem víð­tæk­astri sam­stöðu um verndun mið­há­lendis Íslands með stofnun þjóð­garðs í eigu íslensku þjóð­ar­innar. Þau sam­tök sem und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­una voru sam­mála um að hálend­is­þjóð­garður geti orðið eitt stærsta fram­lag Íslend­inga til nátt­úru­verndar um leið og þjóð­garð­ur­inn yrði griða­staður fyrir þá sem vilja njóta nátt­úru mið­há­lend­is­ins og nýta hana til ferða­mennsku, úti­vistar og nátt­úru­upp­lif­unar.

Mið­há­lendið nær yfir um 40 pró­sent af flat­ar­máli lands­ins og er eitt stærsta sam­fellda svæðið í Evrópu þar sem ekki er föst búseta. Innan mið­há­lend­is­ins eru stærstu víð­erni lands­ins og fremur fá og dreifð mann­virki. Svæðið markast af svo­nefndri mið­há­lend­is­línu sem mið­ast í grunn­inn við línu dregna milli heima­landa og afrétta. Mið­há­lendið þykir ein­stakt af nátt­úr­unnar hendi og innan þess er mik­ill fjöldi nátt­úru­minja og sam­felldra svæða sem njóta verndar að ein­hverju leyti.

Þetta kemur fram í skýrslu á vegum Umhverfis-og auð­linda­ráðu­neytis sem kom út 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skip­aði nefnd 14. júlí á síð­asta ári sem falið var það hlut­verk að greina og kort­leggja svæðið innan mið­há­lend­is­línu á heild­stæðan hátt. Mark­miðið með starf­inu var að kanna for­sendur fyrir því hvort rétt þætti að stofna þjóð­garð innan mið­há­lend­is­ins, með stækkun Vatna­jök­uls­þjóð­garðs eða með ann­ars konar fyr­ir­komu­lagi. Þar yrði meðal ann­ars horft til reynslu af starf­semi Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.

Fjallað hefur verið um það af hálfu Alþingis, stjórn­valda, hags­muna­að­ila og almenn­ings hvert eigi að vera fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag varð­andi stjórnun land­nýt­ingar á þessu svæði. Þar hefur m.a. verið rætt um nýt­ingu og verndun og upp­bygg­ingu inn­viða, ekki síst vegna vax­andi fjölda ferða­manna sem koma til lands­ins.

Með þess­ari skýrslu er ann­ars vegar tekið saman heild­stætt yfir­lit um mið­há­lendið þar sem lýst er nátt­úru þess, stefnu­mörkun sem fyrir liggur, verndun, nýt­ingu og innviðum. Hins vegar er í skýrsl­unni fjallað um fjórar mis­mun­andi sviðs­myndir fyrir þjóð­garð á mið­há­lend­inu og frek­ari verndun innan mið­há­lend­is­ins og grein­ingu á áskor­unum og tæki­færum mis­mun­andi hags­muna gagn­vart hug­myndum um þjóð­garð eða þjóð­garða.

Lítt snortin náttúrusvæði má friðlýsa sem þjóðgarða

Á Íslandi eru þrír þjóð­garðar, þjóð­garð­ur­inn á Þing­völlum, Vatna­jök­uls­þjóð­garður og þjóð­garð­ur­inn Snæ­fells­jök­ull. Sá síð­ast­nefndi var stofn­aður á grund­velli heim­ildar í nátt­úru­vernd­ar­lögum en um hina tvo gildir sér­stök lög­gjöf.

Samkvæmt 47. gr. nátt­úru­vernd­ar­laga má frið­lýsa sem þjóð­garða stór nátt­úru­svæði sem eru lítt snortin og hafa að geyma sér­stætt eða dæmi­gert líf­ríki, jarð­minjar og/eða lands­lag, segja skýrslu­höf­undar. Einnig skuli líta til mik­il­vægis svæðis í menn­ing­ar­legu eða sögu­legu til­liti þegar tekin er ákvörðun um stofnun þjóð­garðs. Í þjóð­görðum séu bann­aðar allar athafnir og fram­kvæmdir sem hafa var­an­leg áhrif á nátt­úru svæð­is­ins, nema þær séu nauð­syn­legar til að mark­mið frið­lýs­ingar náist. Frjálsa för fólks sam­kvæmt almanna­rétti sé aðeins hægt að tak­marka á afmörk­uðum svæðum í þjóð­görðum þar sem það er nauð­syn­legt til að vernda plöntur, dýr, menn­ing­arminjar eða jarð­minjar. Land­svæði þjóð­garða skuli vera í rík­is­eign nema sér­stakar ástæður mæli með öðru og um það náist sam­komu­lag milli ráð­herra og land­eig­enda.

Jafn­framt kemur fram í skýrsl­unni að skil­grein­ing á þjóð­garði sé mis­mun­andi eftir ríkjum. Víða er höfð til hlið­sjónar skil­grein­ing Alþjóð­a­n­átt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna (IUCN) á þjóð­görðum. IUCN hafa skil­greint mis­mun­andi vernd­ar­flokka sem grund­vall­ast á því hver mark­miðin eru með stjórn svæð­anna en fleiri þættir skipta einnig máli, til dæmis ein­kenni þeirra og þau atriði sem gera þau ein­stök. Svæði geta raunar fallið undir fleiri en einn flokk en flokk­unin ræðst jafnan af meg­in­mark­miði með vernd þeirra. Þjóð­garðar, sam­kvæmt skil­grein­ingu IUCN, eru stór nátt­úru­leg eða lítt snortin svæði sem afmörkuð eru til verndar heild­stæðum vist­fræði­legum ferlum og þeim teg­undum og vist­kerfum sem ein­kenna svæðið. Jafn­framt skapa svæðin marg­vís­lega mögu­leika til and­legrar upp­lif­unar, vís­inda­iðk­unar, fræðslu, úti­vistar og afþrey­ingar fyrir ferða­menn af því tagi sem sam­rým­ist menn­ingu og umhverf­is­sjón­ar­miðum.

Móta þarf heildarstefnu fyrir miðhálendið

Sviðs­mynda­grein­ing dregur fram ýmis atriði sem verður unnið með við frek­ari ákvörðun um fram­hald þessa verk­efnis. Í skýrsl­unni var fjallað um verndun og sjálf­bæra nýt­ingu nátt­úru mið­há­lend­is­ins, hvernig tek­ist er á við áskor­anir sem því fylgja og hvernig tæki­færin, sem fel­ast í nýt­ingu þessa land­svæðis, verða best nýtt. Ekki hefur verið lokið við kort­lagn­ingu víð­erna en unnið er að því af hálfu Skipu­lags­stofn­unar að þróa aðferðir til að kort­leggja stað­setn­ingu, stærð og mörk víð­erna á Íslandi í sam­ræmi við nátt­úru­vernd­ar­lög. Af þessum sökum tekur umfjöllun um sviðs­mynd­irnar ekki til­lit til þessa mik­il­væga þáttar með beinum hætti, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum. Sviðs­myndir gætu tekið breyt­ingum þegar þess­ari vinnu er lokið.

Nefndin taldi mik­il­vægt að kalla eftir sjón­ar­miðum frá full­trúum sveit­ar­fé­laga sem liggja innan mið­há­lend­is­ins til hug­mynda um þjóð­garð á mið­há­lend­inu. Settar voru fram fjórar sviðs­myndir til að skapa umræður um verndun mið­há­lend­is­ins og fram­tíð­ar­skipu­lag þess. Í því skyni voru haldnir fimm fundir með full­trúum sveit­ar­fé­laga sem eiga land að mið­há­lend­inu í júní, ágúst og sept­em­ber 2017.

Enn fremur segir í skýrsl­unni að móta þurfi heild­ar­stefnu fyrir mið­há­lendið til langs tíma sem sam­staða er um. Margt hafi áhrif þar á, svo sem land­notkun og stefna fyrir þjóð­lendur, sam­spil skipu­lags­á­ætl­ana sveit­ar­fé­laga og ann­arra áætl­ana og fjár­mögnun þess sem gert er. Verði valið að stofna þjóð­garð þurfi traust að ríkja í sam­skiptum ríkis og sveit­ar­fé­laga og við hags­muna­að­ila. Heima­menn þurfi að hafa áhrif á stefnu­mótun og stjórnun þjóð­garða og leggja þurfi áherslu á að ná bæði mark­miðum jákvæðrar byggða­þró­unar og vernd­unar. Svæð­is­ráð séu góð teng­ing í heima­byggð en þau megi þó ekki vera of mörg og full­trúar í þeim eigi ekki að vinna í sjálf­boða­vinnu. Mik­il­vægt sé að kerfið verði ekki of þungt í vöfum og því þurfi að tryggja góð tengsl og sam­ráð milli svæð­is­ráða, stjórnar þjóð­garðs­ins og sveit­ar­stjórna. Æskilegt sé að sam­hæfa stjórn­sýslu þjóð­garða, til dæmis með nýrri þjóð­garða­stofnun.

Skýrslu­höf­undar segja að þjóð­garður megi ekki vera of háður sér­tekjum. Það þurfi að tryggja ákveð­inn rekstr­ar­grunn og þjón­ustu innan þjóð­garðs­ins sem og stofn­kostnað. 

Tillögur að fjórum sviðsmyndum

Til að varpa ljósi á þau tæki­færi og áskor­anir sem geta falist í núver­andi og auk­inni verndun og stjórn­skipu­lagi á mið­há­lend­inu eru settar upp sviðs­myndir í skýrsl­unni sem er ætlað að draga fram mis­mun­andi afmörkun svæð­is­ins, verndun og stjórn­skipu­lag og um leið til­högun stefnu­mót­unar og stjórn­sýslu fyrir svæðið. Markmið með því er fyrst og fremst að draga fram öll sjón­ar­mið gagn­vart frek­ari verndun mið­há­lend­is­ins.

Fjallað er um fjórar sviðs­myndir, þrjár sem fela í sér mis­miklar breyt­ingar frá núver­andi stöðu og eina sem byggir á óbreyttri stöðu mið­há­lend­is­ins. Þessar sviðs­myndir eru skoð­aðar með hlið­sjón af leið­ar­ljósi fyrir skipu­lag land­notk­unar á mið­há­lend­inu sam­kvæmt lands­skipu­lags­stefnu 2015 til 2026 og jafn­framt fyr­ir­liggj­andi mark­miðum um land­notkun innan mið­há­lend­is­ins

Möguleikar fyrir stofnun miðhálendisþjóðgarðs

Vernd­ar­svæði þjóð­garðs­ins afmarkast af mörkum þjóð­lendna á mið­há­lend­inu og frið­lýstra svæða sem er um 85 pró­sent af mið­há­lend­inu. Lönd í einka­eigu falla því ekki innan þjóð­garðs nema með sam­þykki við­kom­andi land­eig­enda, segir í skýrsl­unni.

Jafn­framt segir að núver­andi frið­lýst nátt­úru­vernd­ar­svæði hafi skil­greinda vernd­ar­flokka sem skoða þarf með til­liti til frek­ari vernd­unar og skil­grein­ingar jað­ar­svæða. Skil­greina þurfi vernd­ar­flokka í sam­ræmi við við­mið IUCN og nátt­úru­vernd­ar­lög fyrir önnur svæði innan þjóð­lendna, meðal ann­ars út frá fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um nátt­úru­far, vernd­ar­gildi og land­notkun.

Svæð­is­ráð yrðu sam­sett með svip­uðum hætti og í Vatna­jök­uls­þjóð­garði, þ.e. þrír full­trúar hlut­að­eig­andi sveit­ar­fé­laga, ferða­mála­sam­tök við­kom­andi svæðis, úti­vist­ar­sam­tök og umhverf­is­vernd­ar­sam­tök. Svæð­is­ráð er ráð­gef­andi um mál­efni þjóð­garðs­ins á við­kom­andi svæði og hefur yfir­um­sjón með gerð til­lögu að stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun fyrir við­kom­andi svæði auk verk­efna tengdum rekstri. Yfir þjóð­garð­inum væri stjórn sem væri skipuð full­trúum allra svæð­is­ráða, full­trúum sam­taka svo sem ferða­mála-, úti­vistar-, umhverf­is­vernd­ar­sam­taka og full­trúum skip­uðum af ráð­herra. Hlutverk stjórnar yrði stefnu­mót­andi, gerð stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætl­unar, rekstr­ar­á­ætl­anir, sam­ræm­ing, eft­ir­lit, 78 leyf­is­veit­ingar og gerð atvinnu- og byggða­stefnu. Stjórn myndi ráða starfs­fólk til að sinna þessum hlut­verkum.

Þessi sviðs­mynd getur, að mati skýrslu­höf­unda, tryggt mark­mið um heild­stæða nátt­úru­vernd á mið­há­lend­inu og tæki­færi fel­ast í heild­stæðri verndun lands­lags­heilda, vatna­sviða og víð­erna. Skil­greina þurfi vernd­ar­stig þjóð­lendna innan þjóð­garðs­ins, sem lenda utan núver­andi frið­lýstra svæða og eftir atvikum end­ur­skoða vernd­ar­flokka núver­andi frið­lýstra svæða. Sviðs­myndin feli í sér tæki­færi til að stjórna nýt­ingu innan mið­há­lend­is­ins með sam­ræmdum hætti.

Svæðið sem þjóð­garð­ur­inn nær til er mjög víð­feðmt eða um 40 pró­sent af land­inu og fjöl­breytt og því er stjórn land­nýt­ingar innan þess mikil áskorun, segir í skýrsl­unni. Sviðs­myndin tak­marki þróun nýrra mann­virkja­belta sem geta falist í bygg­ingu háspennu­lína í lofti, virkj­ana eða umfangs­mik­illar upp­bygg­ingar í ferða­þjón­ustu (hótel, veit­inga­staðir, bens­ín­stöðvar). Sviðs­myndin auki líkur á þróun aðstöðu fyrir ferða­menn á því svæði innan mið­há­lend­is­ins sem félli innan þjóð­garðs­ins og þurfi að skil­greina slíka upp­bygg­ingu í stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun.

Jöklaþjóðgarðar gætu orðið að veruleika

Fjórir þjóð­garðar afmarkast af núver­andi frið­lýstum svæðum auk jöklanna og jaðar-/áhrifa­svæða þeirra. Miðað sé við að þau sveit­ar­fé­lög, sem eiga stjórn­sýslu­mörk að eða innan þjóð­garðs, komi að stjórnun og stefnu­mótun. Lang­jök­uls­þjóð­garður afmarkast af Langjökli og Geitlandi. Hofs­jök­uls­þjóð­garður afmarkast af Guð­laugstungum, Hofsjökli og Þjórs­ár­verum. Mýrdals- og Eyja­fjalla­jök­uls­þjóð­garður afmarkast af Friðlandi að Fjalla­baki og Mýrdals- og Eyja­fjalla­jöklum. Vatna­jök­uls­þjóð­garður hefur núver­andi afmörkun en við bæt­ast Herðu­breið­ar­lindir, Kring­ils­árrani og Lónsör­æfi.

Afmörkun þess­ara þjóð­garða getur tekið breyt­ingum í sam­ræmi við sam­þykkta stefnu­mótun um verndun og nýt­ingu lands eins og nátt­úru­minja­skrá, mat á vernd­ar­gildi vist­gerða, grein­ingu og vernd­ar­gildi víð­erna og ramma­á­ætlun þegar hún liggur fyrir. Sviðs­mynd tvö getur því breyst, sam­kvæmt skýrsl­unni, þannig að verndað svæði þjóð­garða verði stækkað og mynd­aðar stærri vernd­ar­heildir í sam­ræmi við sam­þykkta stefnu­mótun.

Núver­andi frið­lýst nátt­úru­vernd­ar­svæði hafa skil­greinda vernd­ar­flokka, sem gæti þurft að end­ur­skoða í ljósi frek­ari vernd­unar og skil­grein­ingar jað­ar­svæða. Segir enn fremur í skýrsl­unni að skil­greina þurfi vernd­ar­flokka fyrir jöklana utan Vatna­jök­uls í sam­ræmi við við­mið IUCN og nátt­úru­vernd­ar­lög.

Í skýrsl­unni segir að sviðs­myndin auki vernd­ar­stig jökla, sem einnig eru flokk­aðir sem víð­erni en hafi lítil áhrif á vernd víð­erna að öðru leyti. Hún hafi lítil bein áhrif á vernd líf­ríkis eða líf­fræði­lega fjöl­breytni. Vernd þeirra jarð­minja og jarð­fræði­heilda sem tengj­ast jöklunum ætti að verða betur tryggð.

Skoða þurfi afmörkun jað­ar­svæða jöklanna sem eru í sumum til­vikum eign­ar­lönd. Sviðs­myndin geti leitt af sér frekara upp­brot mið­há­lend­is­ins í smærri ein­ingar í ljósi þess að hún við­heldur mögu­leika á upp­bygg­ingu orku­mann­virkja á milli jökla og á víð­ernum, svo sem háspennu­lína og miðl­un­ar­lóna. Vernd víð­erna yrði því einnig síður tryggð. Tækifæri sviðs­mynd­ar­innar teng­ist stækkun þjóð­garða vegna nýrra frið­lýs­inga í sam­ræmi við nátt­úru­minja­skrá og með skil­grein­ingu víð­erna. Mögulega geti tæki­færi legið í þróun lög­gjafar um þjóð­lendur sem myndi styrkja verndun mið­há­lend­is­ins.

Stofnaðir þjóðgarðar á miðhálendinu á núverandi friðlýstum svæðum

Vernd­ar­svæði þjóð­garð­anna afmarkast af frið­lýstum svæðum innan mið­há­lend­is­ins. Jafn­framt segir í skýrsl­unni að miðað sé við að þau sveit­ar­fé­lög sem eiga stjórn­sýslu­mörk að eða innan þjóð­garðs komi að stjórnun og stefnu­mótun. Afmörkun hvers þjóð­garðs geti breyst í sam­ræmi við stefnu­mótun, svo sem nátt­úru­minja­skrá, ramma­á­ætlun og verndun víð­erna. Vernd­ar­flokkar Friðlýst nátt­úru­vernd­ar­svæði myndi nokk­urs konar kjarna hvers þjóð­garðs. Þau megi tengja öðrum vernd­ar­svæðum, svo sem hverf­is­vernd.

Sviðs­myndin felur í sér sömu áskor­anir og tæki­færi og sviðs­mynd tvö nema að hún felur ekki í sér aukna vernd jökla, segir í skýrsl­unni.

Óbreytt staða verndunar

Vernd­ar­svæði innan mið­há­lendis afmarkast af núver­andi frið­lýstum svæðum. Breyt­ingar á verndun byggj­ast á sam­þykktri stefnu­mótun, svo sem nátt­úru­minja­skrá og ramma­á­ætlun. Vernd­ar­flokkar Vernd­ar­skil­málar fyrir frið­lýst nátt­úru­vernd­ar­svæði skil­greina vernd­ar­flokk hvers og eins.

Sviðs­myndin felur ekki í sér for­sendur fyrir heild­stæðri verndun mið­há­lend­is­ins, hún tryggir ekki vernd víð­erna og hefur ekki áhrif á vernd líf­ríkis eða líf­fræði­lega fjöl­breytni eða vernd jarð­minja og jarð­fræði­heilda. Sviðs­myndin heldur opnum þeim mögu­leika að byggja upp fleiri orku­mann­virki og háspennu­línur á mið­há­lend­inu. Tækifæri tengj­ast frið­lýs­ingum í sam­ræmi við nátt­úru­minja­skrá og með skil­grein­ingu víð­erna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár