Efnahagsleg áhrif friðlýstra svæða á Íslandi jákvæð

Ný rann­sóknir sýnir að fyrir hverja 1 krónu sem ríkið leggur til frið­lýstra svæða skila 23 krónur sér til baka.

Mývatn
Mývatn Mynd: Bára Huld Beck

Efnahagsleg áhrif frið­lýstra svæða á Íslandi eru ótvírætt jákvæð en á árinu 2017 var beinn efnahags­legur ávinningur tólf svæða og nærsamfélaga þeirra um 10 milljarðar króna. Ávinningurinn fyrir þjóðar­búið í heild var 33,5 milljarðar króna. Þetta eru niður­stöður fyrstu rann­sóknar sem gerð hefur verið á landsvísu á efnahags­legum áhrifum frið­lýstra svæða á Íslandi.

Þetta kemur fram í frétt umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins.

Rann­sóknin var unnin af Hagfræði­stofnun Háskóla Íslands, að beiðni umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins, og niður­stöður hennar voru kynntar á Umhverfis­þingi í dag. Rannsökuð voru tólf svæði vítt og breitt um Ísland með það að markmiði að meta efnahagsleg áhrif frið­lýstra svæða á nærsamfélög þeirra og á atvinnulíf á svæðinu.

45% af eyðslu ferðafólks inni á friðlýstu svæðunum eða nálægt þeim

Samkvæmt rann­sókninni eyða ferðamenn árlega samtals 10 milljörðum íslenskra króna innan þeirra svæða sem rannsökuð voru eða í næsta nágrenni þeirra. Þetta skapar um 1.800 störf á umræddum stöðum eða um 1.500 full stöðu­gildi. Um er að ræða bein störf í ferða­þjónustu, svo sem við gistingu, skipulagðar ferðir, akstur og veitinga­þjónustu. 45 prósent af eyðslu ferða­fólks var inni á friðlýstu svæðunum eða í næsta nágrenni þeirra.

Svæðin sem voru rannsökuð voru Ásbyrgi/Jökulsár­gljúfur, Laki og Skafta­fell, sem öll eru í Vatna­jökuls­þjóðgarði, Þing­vellir, Dynjandi, Hraun­fossar, Landmanna­laugar, Mývatn, Þórsmörk, Hengifoss og Hvít­serkur. Tvö síðast töldu svæðin eru ekki friðlýst þótt svæðinu við Hengifoss sé stjórnað af Vatna­jökuls­þjóðgarði en voru tekin með í rann­sóknina til að ná að fanga ólík svæði vítt og breitt um landið. Niður­stöður frá áður birtri rannsókn á Snæfells­jökuls­þjóðgarði voru enn fremur uppfærðar, þannig að heildar­fjöldi svæðanna varð tólf, segir í frétt ráðuneytisins.

Fyrir hverja krónu sem ríkið leggur til skila 23 krónur sér til baka

Rann­sóknir sýnir að fyrir hverja 1 krónu sem ríkið leggur til frið­lýstra svæða skila 23 krónur sér til baka. Hlut­fallið er ólíkt á milli svæða, allt frá 10 á móti 1 við Dynjanda og upp í 158 á móti 1 við Hraun­fossa. Á Þing­völlum er hlut­fallið 25 á móti 1, í Vatna­jökuls­þjóðgarði 15 á móti 1 og í Þórsmörk 21 á móti 1.

Í frétt ráðuneytisins segir að alls hafi verið rætt við ríflega 3.000 ferðamenn á tíma­bilinu frá 6. júní til 10. september á þessu áari. Niður­stöðurnar úr viðtölunum við ferða­mennina sjálfa hafi síðan verið bornar saman við tölur frá Ríkis­skattstjóra og kannanir sem gerðar voru meðal atvinnu­rekenda. Alls hafi verið rætt við 415 fyrirtæki sem samtals eru með vel yfir 4.000 starfs­menn.

Jafnframt kemur fram að að meðaltali hafi friðlýstu svæðin í rann­sókninni skilað áttföldum tekju­skatti miðað við rekstrar­kostnað þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár