BioNTech gæti aukið hagvöxt Þýskalands um hálft prósentustig

Áætlaðar tekjur hjá BioNtech, sem fram­leiðir bóluefni gegn COVID-19 í samstarfi við Pfizer, nema tæpum 16 milljörðum evra í ár. Þetta jafn­gildir hálfu prósenti af lands­framleiðslu Þýska­lands í fyrra.

Bóluefni Pfizer og BioNTech, Corminaty.
Bóluefni Pfizer og BioNTech, Corminaty. Mynd: EPA

Lands­framleiðsla Þýska­lands gæti vaxið um hálft prósentu­stig vegna þeirra tekna sem þýska líftækni­fyrirtækið BioNTech fær vegna þróunar á bóluefni sínu gegn COVID-19 í samstarfi við lyfjarisann Pfizer. Fari svo gæti fyrir­tækið, sem hefur færri en tvö þúsund starfs­menn, staðið að baki tölu­verðum hluta hagvaxtar landsins í ár. Frá þessu greinir frétta­veitan Bloomberg.

Sebastian Dullien, hagfræði­prófessor við tækni- og viðskipta­háskólann í Berlín, var fyrstur til að greina frá þessu í Twitter-þræði, sem sjá má hér að neðan. Samkvæmt Dullien er BioNTech eitt af örfáum fyrir­tækjum sem hafa teljandi áhrif á hagvöxt stórra landa, sökum þess hversu hratt það hefur vaxið á einu ári og hversu stór hluti tekna þess koma frá Þýska­landi.

Í nýjasta árshluta­uppgjöri BioNTech gerir fyrir­tækið ráð fyrir að fá 15,9 milljarða evra í tekjur í ár, en það jafn­gildir um 80 prósent af lands­framleiðslu Íslands. Þar sem sala fyrir­tækisins var nánast engin í fyrra segir Dullien að nánast öll þessi upphæð skili sér í hagvöxt Þýska­lands. Lang­stærsti hluti teknanna kemur til vegna sölu á bólefninu.

Verg lands­framleiðsla Þýska­lands í fyrra nam 3.332,23 milljörðum evra. Því gæti líftækni­fyrirtækið aukið hagvöxt þar í landi um allt að hálft prósentu­stig í ár.

Samkvæmt hagspá Eurostat, hagstofu Evrópu­sambandsins, er búist við að hagvöxtur í Þýska­landi nemi 3,6 prósentum í ár og að verð­bólgan verði 2,8 prósent. Gangi þessar spár upp mætti því búast við að BioNTech verði að baki einum fjórtánda af hagvexti Þýska­lands í ár.

Alls unnu um 1.600 manns hjá BioNTech í lok árs í fyrra. Samkvæmt frétt Bloomberg er bóluefnið á góðri leið með að verða eitt mest selda lyf allra tíma. Fyrir­tækið hefur, ásamt Pfizer, skuld­bundið sig til að afhenda um 2,2 milljarða skammta af lyfinu á þessu ári og einn milljarð á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár