Ætlar að drepa son sinn ef hann er tengdur fíkniefnum

Forseti Fillipseyja sýnir enga miskunn í stríði við fíknefnin.

Forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, segist ætla að láta drepa son sinn ef ásakanir um að hann tengist kínverskum glæpa­samtökum, sem stunda fíkniefna­smygl, reynast réttar.

Paolo Duterte, 42 ára gamall sonur Rodrigo, kom fyrir þingnefnd fyrr í mánuðinum til að svara fyrir áskanir um fíkniefna­viðskipti.

Hefur Paolo verið ásakanir um að tengjast umfangs­miklum viðskiptum með verksmiðju­framleidd fíkniefni, meðal annars meta­amfetamín, að því er segir í umfjöllun ABC frétta­stofunnar.

Rodrigo Duterte hefur rekið miskunnar­lausa stefnu gagnvart fíkniefna­sölu og fíklum, og látið drepa hátt í 10 þúsund manns á einungis 18 mánuðum.

Sjálfur fullyrðir forsetinn að lögreglan sé að fara að lögum í landinu, og að flest drápin hafi verið í sjálfs­vörn. Ekkert bendir til þess að það sé rétt, og hafa fjöl­miðlar og mann­réttinda­samtök fullyrt að um skipulögð fjölda­morð sé að ræða sem forsetinn hefur fyrir­skipað. „Ég hef sagt það áður að ef börn mín eru í fíkni­efn­um þá drepið þau svo fólk hafi ekk­ert til að tala um,“ sagði Duterte í ræðu.„Ég sagði við Pulong (gælu­nafn Paolo) að ég hef fyr­ir­skipað að þú verði drep­inn ef þú verður grip­inn og ég mun vernda lög­reglu­mann­inn sem drep­ur þig,“ sagði forsetinn í ræðu frammi fyrir starfs­mönnum ríkisins.

Óhætt er að segja að stefna forsetans hafi verið umdeild á Fillipseyjum, en ekki síður um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár