Tollastríðið harðnar

Donald Trump Bandaríkja­forseti er nú búinn að koma af stað tolla­stríði við Kína. Þessi tvö stærstu þjóðar­hagkerfi heimsins eiga í margþættu viðskipta­sambandi. Fjár­festar óttast hið versta.

Donald J. Trump Bandaríkja­forseti ræddi mikið um Kína í kosninga­baráttu sinni, ekki síst á fjölmennum fundum í miðríkjunum. Hann lofaði því að fjölga störfum í Banda­ríkjunum með því að hækka tolla á innflutning á vörum frá Kína.

Nú hefur hann hrint þessu í framkvæmd, þvert á ráðleggingar frá sínum nánasta efnahags­ráðgjafa, Gary Cohn, sem hætti störfum vegna ágrein­ings við forsetann.

Banda­ríkin hafa nú haft frumkvæði að tolla­stríði við Kína, og birtu í gær lista yfir um 1.333 vöru­tegundir sem munu bera 25 prósent tolla. Vörurnar sem um ræðir eru fjöl­breytilegar. Þar á meðal eru vara­hlutir í vélar, gervi­hnettir, fatnaður og lyf, svo fátt eitt sé nefnt.

Banda­ríkin höfðu áður lýst yfir tollum sem koma harkalega við kínverska hagsmuni, með 25 prósent tolli á stál­innflutning og 10 prósent toll á ál. Kínverjar hafa brugðist við þessum aðgerðum Bandaríkja­stjórnar með því að boða hækkun á tollum á ýmsum vörum, sem Banda­ríkin flytja til Kína.

Stjórn­völd í Peking hafa harðlega gagnrýnt aðgerðir Bandaríkja­stjórnar, og hafa hvatt til stillingar þegar kemur að breytingum á viðskipta­samningum sem nú þegar eru í gildi.

Trump telur að Banda­ríkin hafi farið illa út úr viðskiptum við Kína á undan­förnum árum, og vill með hækkun tolla reyna að tryggja að bandarísk fyrirtæki, ekki síst í þunga­iðnaði, nái vopnum sínum á nýjan leik.

Eins og rakið var í frétta­skýringu á vef Kjarnans í gær, þá bendir margt til þess að alþjóð­legir fjár­festar óttist afleiðingar þess að toll­stríðið hefjist af fullum krafti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár