Tollastríð og efasemdir um meðferð gagna grafa undan mörkuðum

Óhætt er að segja að hug­myndir um toll­stríð séu nú farnar að grafa undan til­trú fjár­festa á því sem gengur á í Banda­ríkj­unum. Tækni­fyr­ir­tækin eru einnig undir smá­sjánni, og gætu þurft að takast á við þyngra reglu­verk.

Hluta­bréfa­mark­aðir um allan heim hafa lækkað að und­an­förnu og hafa tæknirisar heims­ins leitt lækk­an­irnar.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að fimm af stærstu tækni­fyr­ir­tækj­unum, sem nefnd hafa verið FAANG-hluta­bréf (FAANG-stocks), hafi lækkað um 397 millj­arða Banda­ríkja­dala sam­an­lagt á um þremur vikum, eða sem nemur um 40 þús­und millj­arða króna. Facebook, Amazon, Apple, Netflix, og Google (Alphabet) eru félögin sem telj­ast til hina svo­nefndu FAANG-hluta­bréfa. Þrátt fyrir lít­ils háttar hækk­anir í dag, þá virð­ist sem áhyggjur fari vax­andi.

En hvað veldur?

Facebook-áhrifin

Þó aldrei sé hægt að segja með vissu til um ástæður lækk­ana hluta­bréfa, þar sem for­sendur við­skipta hverju sinni eru marg­breyti­legar, þá nefnir Wall Street Journal einkum tvær ástæður.

Annars vegar eru það vax­andi áhyggjur fjár­festa vegna starf­semi tækni­fyr­ir­tækja þar sem gögn eru með­höndluð. Þar hafa spjótin ekki síst beinst að Facebook.

Eftir að fjallað var um hvernig fyr­ir­tækið Cambridge Analytica komst fyrir upp­lýs­ingar um 50 millj­ónir not­enda, og nýtti í þau í vinnu sinni fyrir kosn­ingar, meðal ann­ars í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Og verð­mið­inn á Facebook hefur lækkað um 100 millj­arða Banda­ríkja­dala, um 10 þús­und millj­arða króna, á innan við þremur vikum. Það er um 20 pró­sent lækkun.

Svipaða sögu má segja af öðrum tæknirisum, eins og Amazon og Apple. Þar hefur verð­mið­inn lækkað mikið og greini­legt að efa­semdir eru nú komnar inn í hug fjár­festa, enda hefur hækk­unin á þessum félögum, einkum allt árið 2017, verið ævin­týri lík­ust.

Óttinn er ekki síst sá, að breytt reglu­verk, þegar kemur að með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, muni hefta starf­semi fyr­ir­tækj­anna, en þó einkum og sér í lagi Facebook. Þrátt fyrir að Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook, hafi boð­ist afsök­unar á því að fyr­ir­tækið hafi ekki staðið sig nægi­lega vel, þá segir hann að ekk­ert sé að ótt­ast, og að ávinn­ing­ur­inn af því að tengja fólk saman um allan heim sé óum­deil­an­legur.

Trump-áhrifin

Hin ástæðan sem fjallað hefur verið ítar­lega um í helstu við­skipta­fjöl­miðl­unum heims­ins, und­an­farin miss­eri, er það sem kalla má Trump-áhrifin. Þeim má skipta í tvennt. Annars vegar eru það tolla-áhrifin á mark­að­inn, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur beitt sér fyrir því að Banda­ríkin verji störf á heima­mark­aði með því að beita tollum á inn­flutn­ing vara.

Á það meðal ann­ars við um stál og ál, en fyrstu hug­myndir eru uppi um 25 pró­sent toll á inn­flutt stál og 10 pró­sent á ál. Und­an­þágur verða þó vega­miklar, meðal ann­ars og of snemmt að segja til um hvernig þetta verður útfært. Gary Cohn hætti sem efna­hags­ráð­gjafi Trumps vegna ágrein­ings um tolla­stefn­una, en Trump hefur þegar boðað mun víð­tæk­ari tolla á ýmsar vörur, ekki síst þær sem fluttar eru til Banda­ríkj­anna frá Asíu, Kína þar helst. Þessu hafa Kín­verjar svarað, og ótt­ast fjár­festar að tolla­stríð - versta martröð hins alþjóða­vædda við­skipta­heims - sé skollið á.

Kín­verjar og Evr­ópu­sam­bandið hafa þó varað við því að horfið verði frá þeim við­skipta­samn­ingum sem þegar eru í gildi, og hafa hvatt Trump til þess að fara var­lega. Óhætt er að segja fjár­festar hafi af þessu áhyggjur. Við­skipti með allar mögu­legar vörur - fatnað, heim­il­is­tæki, mat­vörur, hús­gögn og bíla þar á meðal - eru undir í þeim aðgerðum sem þegar hefur verið gripið til.

Einn þeirra sem viðr­aði áhyggjur sínar við fjár­festa, af því að Trump myndi fara í „tolla­stríð“ til að skapa störf heima fyrir - með þeim afleið­ingum að allir myndu tapa - var Seth Klarman, stofn­andi og for­stjóri Baupost Group, sem meðal ann­ars hefur hagn­ast veru­lega á end­ur­reisn íslenska fjár­mála­kerf­is­ins. Í bréfi sem hann sendi fjár­festum í febr­úar í fyrra, skömmu eftir að Trump hafði tekið við sem for­seti, sagði hann að tolla­stríð væru dæmd til að enda illa. Það væri raun­veru­leg hætta á því hag­kerfi heims­ins myndi sog­ast inn í erf­ið­leika vegna þess­arar póli­tísku stefnu for­set­ans.

Spjótunum beint að Amazon

Hins vegar eru það síðan Trump-áhrifin af óvild for­set­ans í garð tækni­fyr­ir­tækja, eins og t.d. Amazon. Hún hefur birst í beinum árásum for­set­ans á fyr­ir­tækið í Twitter-færslum, þar sem hann sakar það um að stunda ómerki­lega við­skipta­hætti og mis­nota banda­ríska póst­inn, UPS. Þá hefur hann sagt að fyr­ir­tækið reyni allt til að borga ekki skatt, og að áróður stofn­and­ans og for­stjór­ans, Jeff Bezos, birt­ist síðan á síðum Washington Post, sem Bezos á. Þá hefur hann sagt einnig að Amazon sé að stuðla að því að margar búðir séu að loka víða um Banda­ríkin.

Frá því að Trump hóf að beina spjótum sínum að Amazon, hefur virði félags­ins fallið um 100 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 10 þús­und millj­örðum króna. Jeff Bezos, sem er rík­asti maður heims, er með eignir sínar að miklu leyti bundnar í bréfum í Amazon en hann á ennþá um 17 pró­sent hlut í félag­inu. Eignir hans hafa rýrnað um 17 millj­arða Banda­ríkja­dala, um 1.700 millj­arða króna, frá því að Trump hóf að beina spjótum sínum að Amazon. Bezos hefur ekki viljað tjá sig um gagn­rýn­ina á fyr­ir­tækið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár