Wall Street liggur yfir skrifum Klarmans

Seth Klarman er goð­sögn á Wall Street en hann rekur fjár­fest­ing­ar­sjóð sinn frá Boston. Í bréfi til fjár­festa lýsir hann áhyggjum sínum af efna­hags­stefnu Donalds Trump.

Seth A. Klarman í símanum.
Seth A. Klarman í sím­anum. Mynd: Scott Eells / Bloomberg

Maður er nefndur Seth A. Klarman og er 59 ára gam­all fjár­festir í Boston. Hann stýrir fjár­fest­ing­ar­stjóðnum Baupost Group, sem er með eignir upp á um 30 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 3.500 millj­örðum króna.

Hagnaðist á hruni íslensku bankanna

Sjóð­ur­inn sem Klarman stýrir hagn­að­ist einna mest á hruni íslensku bank­anna af öllum vog­un­ar­sjóðum sem áttu kröfur á þá. Í Við­skipta­blað­inu var fjallað um hagnað sjóðs­ins, 14. júlí í fyrra, og kom þá meðal ann­ars fram að Baupost hefði verið langstærsti kröfu­hafi föllnu bank­anna meðal vog­un­ar­sjóða við útgáfu fyrstu kröfu­skráa slita­bú­anna og átti sjóð­ur­inn kröfur á Kaupþing og Glitni upp á alls 464 millj­arða króna að nafn­virði í „nafni ýmissa skúffu­fé­laga sem kennd voru við íslensk kenni­leiti. Má þar nefna félög á borð við Geysir Fund, Grinda­vík Fund og Gullfoss Partners,“ eins og orð­rétt sagði í umfjöll­un­inni.

Í Við­skipta­blað­inu kom enn fremur fram að sjóð­ur­inn hefði hagn­ast í krónum talið um 96,1 millj­arð á fjár­fest­ingu sinni og miðað við 15% ávöxt­un­ar­kröfu, sem vog­un­ar­sjóðir gera gjarnan á fjár­fest­ingu sína, var hreint núvirði við­skipt­anna (e. Net Present Value) jákvætt um 45,7 millj­arða. Náði sjóð­ur­inn 51,3% árlegri ávöxtun.

Ross Sorkin segir Wall Street liggja yfir skrifum hans

Þessa dag­ana hafa skrif Klarmans um efna­hags­stefnu Donald J. Trump, Banda­ríkja­for­seta, náð eyrum fjár­festa á Wall Street en Klarman hefur áhyggjur af því að of mikil ein­angr­un­ar­stefna, sem Trump ætlar að hrinda í fram­kvæmd, muni til langs tíma valda miklu tjóni í banda­rísku efna­hags­lífi.

[adspot]

Andrew Ross Sorkin, blaða­maður New York Times og höf­undur bók­ar­innar Too Big To Fail, segir í umfjöllun á vef blaðs­ins í gær, að í bréfi sem Klarman sendi til fjár­festa komi fram miklar áhyggjur af áformum Trumps.

Sér­stak­lega nefnir hann að þrátt fyrir að til skamms tíma geti komið byr í seglin með því að kippa við­skipta­samn­ingum við aðrar þjóðir og ríkja­banda­lög úr sam­bandi, semja upp á nýtt og hálf­part­inn neyða fram­leiðslu­fyr­ir­tæki til þess að skapa störf heima fyrir, þá þurfi að hugsa málin alla leið. Trump hefur sagt að Banda­ríkin muni alltaf verða í fyr­ir­rúmi (America first) og sá tími, þar sem aðrar þjóðir hagn­ist á Banda­ríkj­unum, sé lið­inn. Hann hefur boðað úrsögn úr hinum svo­nefndu TPP-við­ræðum, þar sem tólf þjóða við­skipta­samn­ingur á að liðka fyrir við­skiptum á Kyrra­hafs­svæð­inu og þá ekki síst í Asíu og Ástralíu.

Ekki muni líða á löngu þar til þessi „efna­hag­spóli­tík“ muni byrja að vinna gegn fram­þróun banda­rísks efna­hags­lífs. Klarman gerir aukna sjálf­virkni og tækni­fram­þróun að umtals­efni, og segir að stefna Trumps kunni að hægja á því að mark­að­ur­inn fái að þró­ast eins og hann ætti að gera, en það muni aðeins bitna á sam­keppn­is­hæfni til fram­tíðar. Einmitt hlutir eins og þessir séu ástæðan fyrir því að Banda­ríkin hafi fyrir löngu flúið ein­angr­un­ar­stefnu. Það sé ekki nóg með að hún virki ekki til styttri eða lengri tíma, heldur „verði sam­fé­lögin fyrir miklum skaða“.

Gæti orðið „sjokk“

Klarman seg­ist enn fremur ótt­ast að skatta­lækk­anir - án þess að þær séu útfærðar nægi­lega vel - geti leitt til þver­öf­ugra áhrifa miðað við mark­miðið, um að örva fjár­fest­ingu. Sambland skatta­lækk­ana og síðan auk­innar ein­angr­un­ar­stefnu í hag­kerf­inu geti leitt til þess að aukið ójafn­vægi verði í hag­kerf­inu, sem geti síðan skilað sér í auk­inni verð­bólgu. Það gæti birst sem „sjokk“ fyrir fjár­festum.

Stjórnunarstíllinn sjálfur áhættuatriði

Klarman segir í bréf­inu að þó Trump reyni að koma fram, sem maður sem hafi mikið sjálfs­traust, þá birt­ist hann oft sem ólík­inda­tól og gefi ekki frá sér straum hins örugga og far­sæla leið­toga. Hann seg­ist auk þess ótt­ast, að í ljósi mik­il­vægis emb­ættis for­seta Banda­ríkj­anna, þá geti skap­ast stórt og mikið óvissu­ský á mörk­uðum, þar sem erfitt er að sjá fyrir hvað sé framundan og almennt að skilja hvað stjórn­völd séu að reyna að gera. „Jafnvel þó að hlut­irnir geti farið á besta veg, þá getur skap­ast far­vegur fyrir stöðu þar sem verð­bólga rýkur upp, vext­irnir með og erf­ið­leikar þar með í hinu alþjóða­vædda hag­kerfi,“ segir Klarman.

Goðsagnarkennd bók

Bók sem Klarman sendi frá sér árið 1991, Margin of Safety: Risk-averse Value Invest­ing Stra­teg­ies for the Thoughtful Investor, er goð­sagn­ar­kennd á meðal miðl­ara og fjár­festa á Wall Street. Bókin gengur kaupum og sölum dýrum dómum á net­inu og er nær ófá­an­leg í bóka­búðum. Á Ebay kostar hún 1.499 Banda­ríkja­dali, eða sem nemur um 175 þús­und krónum. Í bók­inni fjallar hann um fjár­fest­inga­stefnu sína og hvernig eigi að nálg­ast hluta­bréfa­mark­aði á grunni þess að þora að taka áhættu, en á sama tíma að horfa til langs tíma. Það sem helst þykir heill­andi við bók­ina er að hún er vel skrifuð og í henni er að finna nákvæm­is­at­riði, sem snúa að tíma­setn­ingum við­skipta og fram­kvæmd fjár­fest­inga­stefnu. Þetta hefur heillað les­endur allt frá útgáfu og vin­sældir bók­ar­innar aukast sífellt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár