Tíu sinnum fleiri efasemdir um Brexit en áður

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, sagði Theresu May að hann hefði tíu sinnum fleiri efa­semdir um að Brexit-sam­komu­lag náist eftir fund þeirra en fyrir.

Theresa May tók á móti Jean-Claude Juncker í London í dag.
Theresa May tók á móti Jean-Claude Juncker í London í dag. Mynd: EPA

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, er sagður enn fyllri efa­semda um Brexit en áður eftir kvöld­verð með Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Þetta herma heim­ildir Guardian, sem segir frá.

May og Juncker snæddu saman kvöld­verð í Downing-stræti í London á mið­viku­dag. Heim­ildir Guardian herma að sam­ræður þeirra á milli um útgöngu Bret­lands úr ESB og mögu­legt sam­komu­lag um það hafi endað á því að Juncker segði May að hann færi frá Downing-stræti með tíu sinnum meira af efa­semdum en hann var áður.

Fólk sem vinnur náið með Juncker segir einnig að nú séu lík­urnar á því að Brexit-sam­komu­lag mis­tak­ist komnar yfir 50%. Juncker er sagður hafa hringt í kansl­ara Þýska­lands, Angelu Merkel, að loknum kvöld­verð­inum og tjáð henni að breski for­sæt­is­ráð­herr­ann væri á „annarri vetr­ar­braut“.

Tals­maður hjá ESB vildi ekki tjá sig um málið við Guardian, fyrir utan að benda á opin­ber ummæli Juncker um að kvöld­verð­ur­inn hefði verið upp­byggi­legur fundur í vin­sam­legu umhverfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár