Fasteignamarkaðurinn í Svíþjóð fellur hratt

Fasteigna­verð í Svíþjóð hefur verið að falla hratt að undan­förnu. Einkum hefur verið verið að falla í Stokk­hólmi.

Merki um hraða lækkun fasteigna­verðs í Svíþjóð sjást nú víða, en verðið féll um 2,9 prósent í nóvember og 3 prósent í október, að því er fram kom í umfjöllun Bloomberg á dögunum.

Sé sérstak­lega litið til stöðu mál í Stokk­hólmi, þar sem hefur verið mikill efnahags­legur uppgangur á síðustu árum, þá hefur verð lækkað nokkuð mikið að undan­förnu, en í nóvember nbam lækkunin sex prósentum miðað við árið á undan. Þetta í fyrsta skipti í sex ár sem svo mikil lækkun sést á fasteigna­markaðnum í Svíþjóð.

Stjórn­völd í Svíþjóð, bæði ráðherrar og sérfræðingar sænska seðla­bankans, hafa talað um að þetta ætti ekki að koma á óvart eftir miklar hækkanir á undan­förnum árum.

Andreas Wallstrom, sérfræðingur hjá Nordea bankanum, segir í samtali við Bloomberg að þegar rýnt sé í tölur undan­farinna vikna, þá bendi margt til þess að verðið sé nú að ná stöðug­leika. Fátt bendi til þess að mikil verðfall verði á fasteigna­markaðnum, héðan í frá.

Í lok árs í fyrra bjuggu 9,9 milljónir manna í Svíþjóð, en landið er fjölmennast Norður­landa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár